Morgunblaðið - 19.10.2019, Qupperneq 18
Agnes segir að MS Brim hafi
kostað um 48 milljónir norskra
króna, eða um 650 milljónir ís-
lenskra. Skipið er úr áli, 50% af því
eru nú þegar endurnýtt, byggt hjá
Maritime Partner í Álasundi og
hönnuður þess er Einar Hareide.
Fyrirtækið Brim Explorer var stofn-
að í byrjun síðasta árs og með-
stofnandi Agnesar var Espen
Larsen-Hakkebo, nú fjármálastjóri
Brim Explorer. Agnes, foreldrar
hennar, systkini og vinir eiga rúm-
lega 50% hlutafjár í fyrirtækinu,
en alls eru hluthafar um 40. Síð-
asta vor, þegar ákveðið var að ráð-
ast í smíði skips númer tvö, sem
verður sömu gerðar, hafi norskt
fjárfestingarfélag verið fengið í
hluthafahópinn með 17% hlut.
ÍSLENDINGAR MEÐ STÓRAN HLUT Í BRIM EXPLORER
Kostaði um
650 milljónir
Lagt af stað Á siglingu út úr höfn í Álasundi til Tromsö.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Íslendingar með sterk tengsl við
Húsavík standa í stafni í norska
ferðaþjónustufyrirtækinu Brim
Explorer í Tromsö. Fyrir rúmri
viku tók fyrirtækið í notkun nýjan
umhverfisvænan bát, MS Brim,
sem gerður verður út til að fylgjast
með norðurljósum og hvölum.
Fyrst í stað er stefnan tekin á
svæðið úti fyrir Tromsö, en á næsta
ári bætist nýtt skip við og þá einnig
ferðir frá Svalbarða og Lofoten.
Frumherjar í hvalaskoðun
Agnes Árnadóttir frá Húsavík er
framkvæmdastjóri Brim Explorer
og annar stofnenda fyrirtækisins
fyrir hálfu öðru ári. Faðir hennar
er Árni Sigurbjarnarson, en hann
og Hörður bróðir hans voru frum-
herjar í hvalaskoðun hér við land
og stofnuðu Norðursiglingu á
Húsavík 1995.
Agnes segir að það hafi verið
dýrmætt að hafa föður sinn og afa
með um borð er nýju skipi var siglt
frá Álasundi norður til Tromsö.
„Afi minn, Sigurbjörn Sörensson,
er gamall sjómaður, sem fylgdi
Norðursiglingu þétt frá upphafi.
Þrátt fyrir að hann sé orðinn 89 ára
lét hann sig ekki muna um að vera
með okkur í fyrstu siglingunni í síð-
ustu viku,“ segir Agnes.
MS Brim er tvíbytna, 24 metra
langt skip og 11 metrar á breidd.
Það tekur 146 farþega í dags-
ferðum og eru tveir stórir salir um
borð, báðir bjóða upp á mikið út-
sýni. Brúin er á palli eða þriðja þil-
farinu með útsýni til allra átta.
Skipið er ýmist knúið með rafoku
eða olíu og eru tveir rafhlöðupakk-
ar, samtals 800 kílóvött. Agnes seg-
ir að hægt sé að keyra í um 10 tíma
á einni hleðslu þegar siglt sé á 8-9
sjómílum, sem sé algengur hraði í
skoðunarferðum. Þegar nauðsyn sé
til að auka hraðann eða fara lengri
vegalengdir sé notast við dísil.
Hljóðlátur og umhverfisvænn
Dýrmætt sé að geta verið með
hljóðlátan og umhverfisvænan bát í
skoðunarferðum til að auka upp-
lifun ferðamanna, hvort sem mark-
miðið sé að skoða norðurljós eða
hvali. Þar hafi þau meðal annars
notið góðs af reynslu frá Norður-
siglingu, sem hafi breytt tveimur
eldri fiskibátum, Ópal og Andvara,
sem nú eru rafdrifnir. „Við
ákváðum hins vegar að byggja nýj-
an bát í stað þess að endurgera
gamlan,“ segir Agnes.
Hún flutti til Noregs rétt fyrir
efnahagskreppuna fyrir rúmum
áratug og hóf nám í stjórnmála-
fræði haustið 2008 við Háskólann í
Osló. Hún er nú 33 ára og er í sam-
búð í Tromsö þar sem verkefnin
tengjast ekki háskólamenntuninni
heldur miklu frekar því sem hún
ólst upp við á Húsavík.
Agnes segir að fjölmörg fyrir-
tæki í Norður-Noregi skipuleggi
skoðunarferðir á sjó með ferða-
menn. Að mörgu leyti sé ferðaþjón-
ustan þó ekki komin jafn langt í
Tromsö og á Íslandi og fyrirtækin
mest með gamla fiskibáta eða
gamlar ferjur í bátaferðum með
ferðamenn. Þau séu bjartsýn á
reksturinn og telji sig hafa margt
að bjóða umfram aðra.
„Þess vegna þorðum við að fjár-
festa í þessum rekstri,“ segir
Agnes. „Þetta fer ágætlega af stað
hjá okkur, en ferðamennirnir eru
flestir frá Þýskalandi og Bretlandi.
Það er þó alls ekki þannig að við
séum ein um hituna hér í Tromsö,
en við teljum að það sé nægt pláss
fyrir fyrirtæki eins og okkar sem
býður gæðaþjónustu á nýjum, full-
komnum, hljóðlátum og umhverfis-
vænum skipum. Við ætlum okkur
og þurfum að veita mjög góða þjón-
ustu, það verður okkar sérstaða.“
Með samning við Hurtigruten
Nýtt skip er vætanlegt í mars í
vetur og hefur það fengið nafnið
MS Bard. Stefnan verður þá tekin
norður til Svalbarða, en þar hefur
verið gerður samstarfssamningur
til nokurra ára við Hurtigruten,
stærsta ferjufyrirtæki í Noregi.
Siglt verður frá Longyearbyen með
ströndum þessarar norðlægu eyjar,
m.a. til rússnesku bæjanna Bar-
entsburg og Piramiden.
„Síðustu daga höfum við verið að
þróa leiðirnar sem við siglum,
þjálfa mannskapinn og vinna í sölu-
málum,“ segir Agnes. „Háannatím-
inn í þessum siglingum frá Tromsö
er yfir veturinn frá nóvember og
fram í febrúar, þá er yfirleitt mest
af norðurljósum og hnúfubakar og
háhyrningar elta síldina upp á
grunnið. Norðurljósin eru lang-
mesta aðdráttaraflið fyrir ferða-
mennina, hvalirnir koma þar á
eftir.
Á Svalbarða er ferðamannatím-
inn hins vegar yfir sumartímann og
Bard verður gerður út frá Tromsö
yfir veturinn. Brim verður hins
vegar gerður út frá Lofoten allt ár-
ið þegar skipin verða orðin tvö,“
segir Agnes framkvæmdastjóri,
leiðsögumaður og háseti, en frá því
að Brim Explorer hóf siglingar
með ferðamenn laugardaginn 12.
október hefur Agnes gengið í flest
störf um borð.
Gert út á gæðin frá N-Noregi
Fyrirtækið Brim Explorer með tengsl við Húsavík Nýtt umhverfisvænt skip gert út frá Tromsö
Svalbarði og Lofoten á næsta ári Ferðafólk sækir í norðurljós og hvalaskoðun yfir vetrartímann
Ljósmyndir/Brim Explorer
Þrír ættliðir Árni Sigurbjarnarson, Sigurbjörn Sörensson og Agnes Árnadóttir í jómfrúarsiglingu MS Brims.
Tröllafjörður Ferðir verða á Lofoten-svæðinu á næsta ári.Í brúnni Espen Larsen-Hakkebo og Agnes Árnadóttir.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
Hugsaðu vel um
húðina þína – alltaf
Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir
andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan.