Morgunblaðið - 19.10.2019, Qupperneq 19
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnlaugur Auðunn Árnason
Stykkishólmi
Sumarið hefur farið almennt vel
með Hólmara. Eftirminnilegastur er
37 daga kafli þegar ekki féll dropi úr
lofti. Alveg úrkomulaust var frá 21.
maí til 26. júní og er það lengsti sam-
felldi þurrkur sem mælst hefur þar
frá upphafi mælinga haustið 1856.
Fyrra met var 35 dagar frá árinu
1931 þegar þurrt var í Stykkishólmi
frá 15. maí til 20. júní.
Þurrkurinn í ár féll þó þannig á
mánuði að hvorki féll þurrkamet í
maí né júní eða í mánuðunum tveim-
ur sameiginlega. Í júlí og ágúst var
úrkoma nærri meðallagi og í sept-
ember var hún nærri þreföld á við
það sem venjulegt er og hefur aðeins
einu sinni mælst meiri í september.
Sérlega mikið rigndi þá um miðjan
mánuðinn, 93,5 mm á þremur dög-
um, og er það óvenjulegt.
Grásleppan er ein af auðlindum
Breiðafjarðar og eru veiðar á henni
mikið stundaðar frá Stykkishólmi á
sumrin. Þessum veiðiskap hafa alltaf
fylgt sveiflur í verði og veiði. Í sumar
voru aðstæður óvenju góðar, góð
veiði og gott verð. Það liggur vel á
grásleppukörlum að vertíð lokinni
Alls stunduðu 34 bátar veiðarnar og
hafa sjaldan verið fleiri. Alls var
landað 1.096 tonnum af heilli grá-
sleppu sem er óvenju mikill afli.
Verð fyrir grásleppuna var 340
kr. fyrir hvert kíló og er það 35%
hækkun frá því í fyrra. Mestur aflinn
var verkaður í Stykkishólmi hjá Ag-
ustson ehf. og Þórishólma ehf. Afla-
hæsti báturinn var Djúpey BA frá
Flatey sem landaði 56,2 tonnum.
Dúntekja gekk mjög vel við
Breiðafjörð í sumar. Má það fyrst og
fremst þakka einstöku þurrviðri sem
var við fjörðinn í vor meðan á varp-
tíma og dúntekju stóð. Almennt var
dúntekja meiri en síðasta sumar á
svæðinu. Bæði voru fleiri hreiður í
vörpum og svo var dúnninn ein-
staklega þurr og góður. Þegar
veðurfar er svona þurrt verður nýt-
ingin á dúninum betri og dúnninn
verður því meiri.
Verð fyrir dúninn sveiflast líka á
milli ára. Á síðustu árum hefur verð
farið lækkandi eftir góð ár þar á
undan. Íslenskur æðardúnn ehf. í
Stykkishólmi tekur á móti miklu
magni af dúni til hreinsunar og sölu.
Stærstu framkvæmdir Stykk-
ishólmsbæjar á árinu tengjast lóðum
við grunnskólann og dvalarheimilið.
Fyrsti áfangi við skólalóðina fólst í
jarðvegsskiptum, malbikun og öðr-
um frágangi. Kostnaður var um 65
milljónir króna. Íbúar á dvalarheim-
ilinu höfðu lengi beðið eftir lagfær-
ingum á aðkomu að heimilinu. Í sum-
ar var gengið í það verk. Bílastæði
lagfærð og malbikuð og hitalagnir í
gangstéttir verða brátt tiltækar.
Eftir langa bið er skriður kom-
inn á að hefja endurbyggingu á St.
Fransiskusspítala með það að
markmiði að koma fyrir 16
hjúkrunarrýmum í stað þeirra sem
eru á dvalarheimilinu og bæta að-
stöðu bak- og endurhæfingardeildar
sjúkrahússins. Aðilar sem koma að
breytingunum hafa gefið út tíma-
áætlun. Teikningar að fyrsta áfanga
eiga að liggja fyrir í lok mánaðarins
og í kjölfarið verður verkið boðið út.
Verklok eru áætluð í ágúst 2021.
Endurbæturnar munu styrkja mik-
ið rekstur St. Fransiskusspítala og
þjónustu við þá sem þurfa á henni
að halda.
Mikil gróska er í byggingariðn-
aðinum. Mörg íbúðarhús eru í bygg-
ingu og í haust var úthlutað íbúðar-
húsalóðum sem framkvæmdir
hefjast við í vetur. Auk þess hefur
verið unnið við viðhald á eldri
húsum. Má þar nefna Hótel
Stykkishólm og húsnæði Marz-
sjávarafurða sem áður var gamla
pósthúsið. Atvinnuástand hefur ver-
ið gott á þessu ári og líkur eru á að
flestir geti fengið vinnu sem það
vilja.
Ásbyrgi er vinnustaður fyrir
fólk með skerta starfsgetu. Fyrir
stuttu var tekið í notkun nýtt og
glæsilegt hús sem byggt er fyrir
starfsemi Ásbyrgis, sem er á vegum
Félags- og skólaþjónustu Snæfells-
ness. Í Ásbyrgi starfa fimm nem-
endur og þrír starfsmenn. For-
stöðumaður er Sigríður Erna
Guðmannsdóttir sem hóf störf í
haust.
Bensó, einu sjoppu bæjarins,
var lokað 1. september. Þar hefur
Olís verið með sjoppu frá því að
bensínstöðin var byggð árið 1985.
Nú er ekki hægt að kaupa sígar-
ettur né neftóbak í Stykkishólmi.
Það hefði áður fyrr þótt saga til
næsta bæjar. Það ríkir afar slæmt
ástand hjá reykingafólki þegar ekki
er hægt að hlaupa út í sjoppu og
versla. Það þarf að sýna fyrirhyggju
til að verða ekki uppiskroppa og fá
þá sem eru á ferðinni til að kaupa
fyrir sig. Háværar kvartanir hafa þó
ekki heyrst. En öll él birtir upp um
síðir. Eigendur veitingastaðarins
Skúrsins hafa tekið Bensó á leigu og
ætla að flytja veitingastaðinn þang-
að og veita líka þjónustu þeim sem
nota tóbak.
Samkvæmt úttekt frá Byggða-
stofnun hefur opinberum stöðugild-
um í Hólminum fækkað um 17% síð-
ustu 15 ár og það er sárt að sjá á
eftir þeim. Opinber störf eru lands-
byggðinni ekki síður mikilvæg en
höfuðborgarsvæðinu þar sem þeim
störfum fjölgar áreynslulaust.
Framkvæmda-
gleði og góð
grásleppuveiði
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmur Nemendur og starfsmenn vinnuheimilisins Ásbyrgis eru ánægðir með nýja og fína aðstöðu.
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Eskifjörður | Sporður hf. á Eski-
firði hefur hætt framleiðslu á bita-
harðfiski. Fyrirtækið var stofnað
1952 af svilunum Agli Karlssyni og
Lúðvík Ingvarssyni sýslumanni.
Þegar Egill féll frá 1994 tóku börn
hans, Atli Börkur og Ágústa, við
rekstrinum.
Það er mikill sjónarsviptir að
fyrirtækinu og munu fjölmargar
kröfuharðar harðfiskætur sakna
bitafisksins frá Eskifirði.
Upphafið á rekstri fyrirtækisins
má rekja til áranna 1947-1948 en þá
hóf þáverandi
sýslumaður Suð-
ur-Múlasýslu,
Lúðvík Ingvars-
son, tilraunir til
verkunar á harð-
fiski. Þar byggði
hann á eigin
reynslu og ann-
arra, að fiskur
sem frystur er við vægt frost er sæt-
ari og bragðmeiri en ferskur fiskur
eða hraðfrystur.
Einnig keyptu þeir félagar gamalt
sláturhús og breyttu því í frystihús,
sem notað er til flökunar og fryst-
ingar. Einnig var keyptur gamall
herbraggi sem var notaður við
þurrkunina og hófst verkun og fram-
leiðsla á þessum gæðabitaharðfiski
1952. Fyrsti bitafiskurinn á Íslandi
var í upphafi nefndur sætfiskur en
líka sýslumannskonfekt.
Allt ferli vinnslunnar er handa-
vinna og nostur sem líkja má við
framleiðsluaðferðir dýrustu vína.
Vinnsluaðferðin hefur lítið breyst
frá upphafi.
Sporður hættir framleiðslu
Morgunblaðið/Emil Thorarensen
Harðfiskur Þurrkhúsið gamla sem Sporður notaði á Eskifirði, allt frá 1952.
Framleiðsla Sporðs á harðfiski hófst 1952 á Eskifirði
Tilraunir hófust 1947 hjá þáverandi sýslumanni
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma