Morgunblaðið - 19.10.2019, Page 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
V ð f á
2024 SLT
L iðLé t t ingur
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
er r
3.190.000
án vsk.
STUTT
● Í nýrri spá hag-
deildar ASÍ sem kom
út í gær segir að eft-
ir átta ára samfellt
hagvaxtarskeið sé
útlit fyrir lítils háttar
og skammvinnan
samdrátt í lands-
framleiðslu á þessu
ári, eða um 0,3%,
og að á næsta ári
taki hagkerfið við
sér að nýju.
Í spánni segir að talsverð óvissa ríki
um efnahagsþróun á næsta ári s.s. um
þróun á alþjóðavísu og í innlendri ferða-
þjónustu en útlit sé fyrir að ágætis
vöxtur þjóðarútgjalda drífi viðsnúning á
næsta ári og þokkalegan vöxt á árinu
2021. Segir deildin að vöxturinn gæti
orðið 0,6% árið 2020, en árið 2021
verði hann 2,3%.
Hagkerfið tekur við
sér að nýju árið 2020
Flug Óvissa ríkir í
ferðaþjónustu.
● Fossar markaðir
hafa samkvæmt til-
kynningu, gengið til
liðs við Climate
Bonds Initiative
(CBI) sem bakhjarl,
fyrst íslenskra fyrir-
tækja.
Climate Bonds Ini-
tiative eru alþjóðleg
samtök sem vinna
að því að virkja
skuldabréfamarkaði
á heimsvísu í þágu umhverfismála.
Í tilkynningu Fossa segir að sérfræð-
ingar CBI séu ráðgjafar ríkisstjórna í
grænum skuldabréfaútgáfum auk þess
sem CBI standi að alþjóðlegu staðla- og
vottunarkerfi fyrir græn skuldabréf. Þá
standi CBI að víðtækri skýrslugjöf varð-
andi umfang og tækifæri grænnar
skuldabréfaútgáfu á heimsvísu.
Fossar verða bakhjarl
Climate Bonds Initiative
Fé CBI eru sér-
fræðingar í græn-
um skuldabréfum.
Tæplega 40% svarenda í nýrri könn-
un MMR fyrir netverslunina Heim-
kaup.is, nefndu Heimkaup.is fyrst
þegar spurt var „Hvaða íslenska vef-
síða sem selur vörur eða þjónustu
kemur fyrst upp í hugann?“
Könnunin var framkvæmd dagana
30. september-9. október sl. og náði
til úrtaks fólks eldra en 18 ára, af öllu
landinu.
Þegar rýnt er í niðurstöður könn-
unarinnar má sjá að Heimkaup.is er
mun betur þekkt en aðrar íslenskar
netverslanir, en sú sem er næst best
þekkt, Hópkaup.is, var nefnd í 9,2%
tilvika. Í þriðja sætinu er Elko.is
með 7,4%, Aha.is kemur þar á eftir
með 5,5% og Bland.is kemur þar á
eftir með 3,6%.
Til gamans má geta þess að Heim-
kaup.is, Hópkaup.is og Bland.is eru
öll í eigu sama fyrirtækisins, Wedo.
Eins og sjá má í niðurstöðum
könnunarinnar þá hefur Heimkaup-
.is lengi haft yfirburði í þessum efn-
um, eða allt frá árinu 2015 þegar
mælingin var fyrst framkvæmd. Þá
nefndu 30,8% svarenda Heimkaup.is
fyrst.
Gleðiefni að fleiri og fleiri
kjósi innkaup á netinu
„Þetta er óneitanlega gleðiefni
fyrir okkur þegar fleiri og fleiri neyt-
endur kjósa að gera sín innkaup á
netinu. Skýr ásýnd er greinilega að
skila sínu. Að auki er sterk innkoma
okkar í matvörunni án vafa að skila
sér og við því neytendum ofarlega í
huga. Einnig vekur athygli að við er-
um jafnvel enn ofar í huga innkaupa-
stjóra heimilisins því 45% kvenna
nefna Heimkaup.is fyrst,“ segir Guð-
mundur Magnason, framkvæmda-
stjóri Heimkaup.is.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu á dögunum lauk Wedo ný-
lega hlutafjáraukningu og fjármögn-
un að upphæð 300 milljónir króna. Í
þeirri frétt kom einnig fram að tvö-
falda eigi vöruúrvalið í matvörunni,
og fara úr fimm þúsund vörunúm-
erum í tíu þúsund. tobj@mbl.is
Styrkja stöðu sína
í huga neytenda
Netverslun Heimkaup.is er vel
þekkt meðal Íslendinga.
40% nefndu Heimkaup.is
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
„Við gjörbreyttum fyrirtækinu.
Þetta var lítil stevíudropaframleiðsla
í Hafnarfirði sem við fluttum til Hol-
lands. Við breyttum strúktúrnum og
um leið víkkuðum við vörulínuna yfir
í sykurlausar matvörur án viðbætts
sykurs. Í dag erum við með þróun og
hönnun ásamt sölu- og gæðamálum
hér á Íslandi,“ segir Garðar Stef-
ánsson hjá íslenska fyrirtækinu Good
Good sem hefur vaxið hratt und-
anfarin ár og selur vörur sínar, m.a.
sultur, sýróp, súkkulaðismjör og ste-
víudropa, í 11 löndum víða í Evrópu
og í Bandaríkjunum, í um 1.000 versl-
unum. Good Good vinnur með við-
urkenndum aðilum í Hollandi og
Belgíu sem framleiða uppskriftir
fyrirtækisins sem gerir því kleift að
stækka hraðar en mögulegt hefði
verið með sína eigin framleiðslu hér á
landi. Áætluð velta fyrirtækisins á
þessu ári er 250 milljónir króna sem
er rúm sexföldun í veltu á tveimur ár-
um og er stefnan sett á að tvöfalda
veltuna á næsta ári.
Sulturnar kveikja áhuga
„Hönnunin, uppskriftirnar og í
raun allt hugvit er hér á landi. Við
seljum vörur til 11 landa. Það væri
rosalega erfitt að standa undir öllum
þessum vexti ef þetta væri allt á Ís-
landi. Það að skala upp frá 1.000
verslunum upp í 10.000 verslanir er
vel innan færis en ég ætla þó ekki að
segja að það sé vandkvæðalaust. En
það er mun auðveldara að gera það
með þessu fyrirkomulagi.“
Sykurlausu sulturnar eru að sögn
Garðars yfirleitt það sem kveikir
áhuga verslana á fyrirtækinu en í
kjölfarið koma fyrirspurnir vegna
annarra vara.
„Við förum alltaf fyrst inn með
sulturnar. Þær hafa mikla sérstöðu
og það er miklu léttara að komast inn
á markað með glænýja vöru og fara
svo inn með hinar. Svo í kjölfarið
kemur áhuginn á öðrum vörum: ste-
víudropunum, sætuefnunum, súkku-
laðismjörinu og sírópinu,“ segir
Garðar í samtali við Morgunblaðið.
Fyrst um sinn einblíndi Good Good
á Evrópumarkað, og eru vörur fyrir-
tækisins m.a til sölu í Føtex, Bilka, El
Corte Ingles, Auchan, Holland &
Barret og SuperValu. Good Good hóf
svo að selja vörur á Bandaríkjamark-
aði fyrir um ári en þar hefur salan
vaxið hvað hraðast og nemur nú þeg-
ar um 46% af heildarveltu fyrir-
tækisins. Sultur Good Good eru afar
vinsælar en þær innihalda aðeins
náttúruleg sætuefni á borð við stevíu.
Sulturnar eru allar að sögn Garðars
með þeim söluhæstu í sultuflokknum
hjá Amazon.com þar sem fyrirtækið
keppir við stærstu sultumerki í
heimi, og er jarðarberjasultan í
fyrsta sæti og hinar í topp 10. Hefur
það hjálpað fyrirtækinu gríðarlega á
Bandaríkjamarkaði.
Amazon er lykill
„Amazon er algjör lykill að Banda-
ríkjamarkaði. Innkaupastjórar versl-
anakeðja geta þar fengið mikilvægar
upplýsingar og t.d. lesið dóma um
vörurnar og sölusögu. Okkar vörur
tala sínu máli þar,“ segir Garðar og
heldur áfram.
„Næsta verkefni er að ráða fleira
fólk, bæði á Íslandi og í Bandaríkj-
unum, til að fylgja eftir þeirri miklu
eftirspurn frá bandarískum versl-
unum í framhaldi af velgegni á Ama-
zon. Við erum búin að klára samn-
inga um að fara inn í Safeway,
Albertssons, Rouses, Loblaws og
Amazon GO-búðirnar á næstu mán-
uðum samtals 650 búðir. Amazon
GO-verslanirnar eru verslanir fram-
tíðarinnar. Það eru snertilausar búð-
ir þar sem viðskiptavinurinn gengur
inn, tekur vöruna, gengur út og fær
svo reikning í tölvupósti án þess að
þurfa að koma við á búðarkassa. All-
ar verslanakeðjur í Bandaríkjunum
eru að horfa á Amazon. Hvað fyrir-
tækið er að gera og hvaða vörur eru
vinsælar þar. Það er hjálpa okkur að
ná þessari góðu dreifingu og vekur
áhuga stærri keðjanna. KeHE, eitt
stærsta vörudreifingar fyrirtæki
Bandaríkjanna, sér svo um dreifingu
fyrir Good Good í Bandaríkjunum en
þeir dreifa heilsuvörum í rúmlega
40.000 búðir um öll Bandaríkin,“
segir Garðar.
Svar við sykruðum sultum
Að sögn Garðars felast mikil tæki-
færi fyrir Good Good í aukinni til-
hneigingu fólks til þess að forðast
sykur.
„Það er mikil vitundarvakning á
heimsvísu hvað þetta varðar. Aðal-
ástæðan er sú að sykur er búinn að
skaða heilsu manna í langan tíma og
sykursýki tvö hefur t.a.m. aldrei
mælst jafn mikil í Bandaríkjunum og
er að aukast í Evrópu og Asíu. En
þessu fylgir krafa um betri vörur og
við búum til sætar vörur án sykurs,“
segir Garðar.
„Ef við tölum um sultur almennt
þá eru þær venjulega 60-70% sykur
og súkkulaðismyrjur meira en 50%
sykur. Við gefum börnunum okkar
þetta á ristað brauð og erum þá í
raun að setja hvítan sykur á brauðið
þeirra. Maður myndi auðvitað aldrei
gera það en í þessum vörum er svona
mikill sykur. Við erum að finna lausn-
ir við því sem fólki líkar vel við. Þær
eru sætar en á sama tíma án sykurs-
ins með öllum þeim vandamálum sem
honum fylgir,“ segir Garðar.
Good Good í sókn án sykurs
Fyrirtækið Good Good selur sykurlausar matvörur í um 1.000 verslunum í
11 löndum Hóf sölu í Bandaríkjunum fyrir ári Veltan sexfaldast á 2 árum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sykurlaust Mikil tækifæri felast í aukinni vitund almennings um skaðsemi sykurs fyrir Garðar og félaga hjá Good Good sem selja sykurlausar matvörur.
19. október 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.36 124.96 124.66
Sterlingspund 160.28 161.06 160.67
Kanadadalur 94.35 94.91 94.63
Dönsk króna 18.484 18.592 18.538
Norsk króna 13.572 13.652 13.612
Sænsk króna 12.79 12.864 12.827
Svissn. franki 125.38 126.08 125.73
Japanskt jen 1.1426 1.1492 1.1459
SDR 171.04 172.06 171.55
Evra 138.11 138.89 138.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.8274
Hrávöruverð
Gull 1484.45 ($/únsa)
Ál 1703.0 ($/tonn) LME
Hráolía 58.99 ($/fatið) Brent