Morgunblaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Glæsilegir skartgripir
innblásnir af íslenskri sögu
GULL SM IÐUR & SKARTGR I PAHÖNNUÐUR
Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Samkomulag Bandaríkjastjórnar við
Tyrki um hlé á árásum þeirra í
norðanverðu Sýrlandi er álitið sigur
fyrir Recep Tayyip Erdogan Tyrk-
landsforseta, sem fékk það sem hann
vildi. Sigurinn gæti þó reynst
skammgóður vermir án stuðnings
Rússa, að mati fréttaskýrenda.
Mike Pence, varaforseti Banda-
ríkjanna, skýrði frá samkomulaginu
eftir að hann átti fund með Erdogan
í Ankara í fyrradag. Tyrkneski for-
setinn samþykkti að gera hlé á árás-
um á yfirráðasvæði Kúrda í norðan-
verðu Sýrlandi í fimm daga og hætta
þeim alveg að þeim tíma liðnum ef
Kúrdar hafa flutt herlið sitt frá um
32 km breiðu landamærabelti þar
sem Erdogan hyggst koma á
öryggissvæði. Stjórn Donalds
Trumps Bandaríkjaforseta hét því
að aflétta refsiaðgerðum sem hún
hafði gripið til gegn tyrkneskum
embættismönnum og ráðuneytum
og kvaðst ekki ætla að grípa til frek-
ari refsiaðgerða gegn Tyrklandi ef
hernaðinum yrði hætt.
„Eins og börn sem slást“
Trump lýsti yfir sigri á Twitter
þegar skýrt var frá samkomulaginu.
„Þetta er frábær dagur fyrir hinn
siðmenntaða heim,“ sagði forsetinn.
„Fólk hefur reynt að ná þessum
„samningi“ í mörg ár. Milljónum
mannslífa verður bjargað.“
Seinna líkti forsetinn Tyrkjum og
Kúrdum við börn þegar hann varði
þá ákvörðun sína að flytja banda-
ríska hermenn frá landamærunum
og greiða fyrir hernaði Tyrkja gegn
Kúrdum eftir símasamtal við Erd-
ogan. „Það sem ég gerði var óhefð-
bundið. Ég sagði að þeir myndu
þurfa að berjast um tíma,“ sagði
hann á fundi með stuðningsmönnum
sínum í Texas. „Eins og tvö börn á
lóð, maður þarf að leyfa þeim að slást
en stía þeim síðan í sundur,“ sagði
hann.
Nær 100 óbreyttir borgarar hafa
beðið bana í átökunum frá því að
hernaður Tyrkja hófst og allt að
300.000 manns hafa þurft að flýja
heimkynni sín, að sögn sýrlensku
mannréttindahreyfingarinnar
SOHR.
Hersveitir Kúrda voru mikilvægir
bandamenn Bandaríkjahers í barátt-
unni gegn samtökunum Ríki íslams
og ákvörðun Trumps um að greiða
fyrir hernaði Tyrkja gegn þeim hef-
ur því sætt gagnrýni margra þing-
manna í Bandaríkjunum, þeirra á
meðal repúblikana. Repúblikaninn
Marco Rubio, annar öldungadeildar-
þingmanna Flórída, sagði á Twitter
að svo virtist sem samkomulagið í
fyrradag breytti ekki markmiðum
Erdogans. „Hann ætlar enn að losa
sig við Kúrda af svæðinu og koma á
„öryggissvæði“ en setur þeim úr-
slitakosti: þeir geta farið þaðan sjálf-
viljugir eða farið dauðir.“
„Hernaðurinn borgaði sig“
Segja má að Erdogan hafi ekki
getað óskað sér betri gjafar frá
stjórn Trumps verði samkomulagið
til þess að herlið Kúrda fari af landa-
mærasvæðinu án frekari átaka. Hen-
rik Breitenbauch, yfirmaður her-
fræðistofnunar Kaupmannahafnar-
háskóla, segir að stjórn Trumps hafi
í raun heimilað Tyrkjum að leggja
landamærasvæðið undir sig. Erdog-
an hafi ekki þurft að fallast á neinar
tilslakanir aðra en þá að gera hlé á
árásunum í fimm daga og svo virðist
sem Tyrkir hafi frjálsari hendur að
þeim tíma liðnum.
Anthony Skinner, sérfræðingur í
málefnum Mið-Austurlanda, segir að
með samkomulaginu skuldbindi
bandarísk stjórnvöld sig til að sjá til
þess að herlið Kúrda skilji eftir
þungavopn við landamærin og fari
frá bækistöðvum sínum þar eins og
Tyrkir hafi krafist síðustu árin.
„Þetta er sigur fyrir Erdogan for-
seta,“ hefur fréttaveitan AFP eftir
Skinner. „Hann fær skriflega stað-
festingu frá Bandaríkjaforseta á því
að hann samþykki að her Tyrklands
fái yfirráð yfir norðausturhluta Sýr-
lands.“
„Við fengum nákvæmlega það sem
við vildum á fundinum,“ hefur AFP
eftir hátt settum embættismanni í
Tyrklandi um viðræður Pence og
Erdogans. „Hernaður Tyrklands
borgaði sig.“
Fjölmiðlar í Tyrklandi lýstu einn-
ig samkomulaginu sem sigri fyrir
Erdogan. „Við sigruðum við samn-
ingaborðið og á vígvellinum,“ sagði
dagblaðið Sabah sem styður stjórn
Erdogans.
Fréttaskýrendur segja þó líklegt
að sigurinn verði skammgóður
vermir og sumir þeirra telja að
markmið Erdogans með hernaðinum
séu óraunhæf. „Samkomulagið verð-
ur sennilega til þess að vinsældir Er-
dogans aukast í Tyrklandi, en þær
höfðu minnkað áður en hann hóf
hernaðinn 9. október,“ hefur AFP
eftir Gareth Jenkins, stjórnmála-
skýranda í Istanbúl. „Meðbyrinn
verður þó líklega skammvinnur.
Tyrkir hljóta að þurfa að hætta
hernaðinum á einhverju stigi án þess
að ná markmiðum sínum.“
„Pútín ræður ferðinni“
Gert er ráð fyrir því að öryggis-
svæðið nái um 32 kílómetra suður
fyrir landamærin og Erdogan vill að
það verði 444 km langt. Sérfræðing-
ar í öryggismálum telja að erfitt
verði fyrir Tyrki að ná öllu þessu
svæði á sitt vald. Þeir benda m.a. á
að Sýrlandsstjórn hefur þegar sent
hermenn til tveggja bæja á landa-
mærasvæðinu eftir að Kúrdar ósk-
uðu eftir aðstoð sýrlenska hersins.
Hermt er að Rússar hafi einnig sent
hermenn á svæðið.
Líklegt þykir að afdrif samkomu-
lags Erdogans og stjórnar Trumps
ráðist af viðbrögðum Vladimírs Pút-
íns Rússlandsforseta, mikilvægasta
bandamanns einræðisstjórnarinnar í
Sýrlandi. Gert er ráð fyrir því að Er-
dogan eigi fund með Pútín í rúss-
nesku borginni Sotsjí við Svartahaf á
þriðjudaginn kemur. Ege Seckin,
sérfræðingur í málefnum Tyrklands,
telur líklegt að á fundinum ráðist
hversu viðamikill hernaður Tyrkja
verði. „Pútín ræður ferðinni í þessu
máli,“ sagði hann.
Álitið sigur fyrir Erdogan
AFP
Þjáningar Móðir huggar stúlku sem lögð var inn á sjúkrahús nálægt bænum
Ras al-Ain eftir að hún særðist í árás Tyrkja á svæði Kúrda í Sýrlandi.
Tyrklandsforseti fékk það sem hann vildi með samkomulaginu við stjórn Trumps en sigur hans gæti
reynst skammgóður vermir Forseti Bandaríkjanna líkir átökum Tyrkja og Kúrda við slagsmál barna
Mannskæð loftárás þrátt
fyrir samkomulagið
» Tyrkir gerðu loftárás á þorp í
norðanverðu Sýrlandi í gær og
fjórtán óbreyttir borgarar biðu
bana, að sögn mannréttinda-
hreyfingarinnar SOHR.
» Skv. samkomulagi Banda-
ríkjastjórnar við Recep Tayyip
Erdogan, forseta Tyrklands,
eiga Tyrkir að gera hlé árásum
á svæði Kúrda í fimm daga.
» Erdogan sagði í gær að hann
myndi hefja hernaðinn að nýju
á þriðjudagskvöld ef herlið
Kúrda færi ekki af öryggis-
svæði sem hann hyggst koma
á við landamærin.
Til átaka kom milli lögreglumanna
og hundraða ungmenna í Barcelona
í gær þegar rúm hálf milljón manna
tók þátt í götumótmælum gegn
fangelsisdómum yfir níu leiðtogum
katalónskra sjálfstæðissinna á
mánudaginn var. Þúsundir manna
tóku þátt í „frelsisgöngu“ frá fimm
bæjum í Katalóníu og henni lauk í
miðborg Barcelona. Lögreglan
sagði að alls hefðu 525.000 manns
tekið þátt í mótmælunum og þau
fóru friðsamlega fram þar til óeirð-
ir blossuðu upp meðal ungmenna
sem kveiktu elda á breiðgötunni
Via Laietana. Lögreglan beitti
táragasi til að dreifa ungmenn-
unum.
Efnt var einnig til verkfalls í
Katalóníu og það varð m.a. til þess
að 57 flugferðum var aflýst á flug-
velli Barcelona, loka þurfti versl-
unum og ferðamannastöðum og al-
menningssamgöngur röskuðust.
AFP
Fjölmenn mótmæli og átök í Barcelona