Morgunblaðið - 19.10.2019, Page 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Ein óvæntustu úrslit Ís-landsmóts skákfélaga ádögunum urðu þegarSkákfélag Akureyrar
vann Hugin 5½:2½ í 4. umferð. Akur-
eyringar höfðu styrkt sveit sína með
hinum kunna danska stórmeistara
Sune Berg Hansen en það var á neðri
borðunum sem úrslit keppninnar
réðust. Jón Kristinn Þorgeirsson,
Rúnar Sigurpálsson, Áskell Örn
Kárason og Arnar Þorsteinsson
unnu á fjórða, fimmta sjötta og átt-
unda borði og það gerði útslagið.
Fyrr á þessu ári vann hinn tvítugi
Jón Kristinn elsta aldursflokkinn á
Norðurlandamóti 20 ára og yngri.
Skákir hans margar einkennast af
dirfsku og hugmyndaauðgi. Hann
virtist ætla að brjóta allar brýr að
baki sér í eftirfarandi viðureign á 4.
borði en Einar Hjalti missti tækifæri
strax í 8. leik og lenti fyrir vikið í
varnarstöðu:
Jón Kristinn Þorgeirsson (SA) –
Einar Hjalti Jensson (Huginn)
Ítalskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3
Rf6 5. d4 cxd4 6. cxd4 Bb4+ 7. Rc3
Rxe4 8. d5?!
Hæpinn leikur en þekkt er að 8. 0-0
Bxc3 9. d5 Bf6! gefur ekki neitt.
8. … Bxc3+?
Stór mistök. Eftir 8. … Rxc3 9.
bxc3 Bxc3+ 10. Bd2 Bxd2+ 11. Dxd2
Re7 hefur hvítur engar teljandi bæt-
ur fyrir peðin tvö.
9. bxc3 Ra5 10. Bd3 Rf6 11. Da4 c5
12. Bg5 b6 13. 0-0 h6
Einari gast ekki að 13. … 0-0 14.
Dh4 og varla er hægt að stugga við
biskupinum vegna fórnar á h6.
14. Hfe1+ Kf8 15. Dh4 Bb7 16.
He5 Kg8 17. Bxf6 Dxf6
18. Hae1! Hf8
Ekki 18. … Dxh4 19. He8+ og
mátar.
19. Dg3 c4 20. Bb1 g6 21. Rd4 Kh7
22. H1e4 d6 23. Hf4!
Glæsilega leikið. Ef nú 23. … Dxe5
þá 24. Hxf7+! Hxf7 25. Dxg6 mát.
Svartur getur einnig reynt 23. …
Dxf4 24. Dxf4 dxe5 25. Dxe5 He8 en
þá kemur 26. Re6! og vinnur, t.d. 26.
fxe6 27. Dc7+ Kg8 28. Bxg6 Hf8 29.
dxe6 o.s.frv.
23. … Dg7 24. He7 Bxd5 25. Rf5!
Df6 26. He3 He8 27. Rxh6 Hxe3 28.
fxe3
– og svartur gafst upp. Eftir 28. …
Dxc3 29. Rxf7! er hann varnarlaus.
97 skákir án taps
Magnús Carlsen hefur nú teflt 97
kappskákir í röð án taps og nálgast
met á þessu sviði. Kínverjinn Liren
Ding var taplaus í 100 skákum og
Mikhail Tal tefldi 95 skákir án taps á
tímabilinu 1973-’74. Rússinn Sergei
Tiviakov á samt metið en hann tefldi
110 skákir án taps fyrir nokkru.
Magnaðasta sigurganga skáksög-
unnar er hins vegar eignuð Bobby
Fischer, sem vann 20 skákir í röð
með sigrum í sjö síðustu umferðum
millisvæðamótsins í Palma á Mall-
orca í árslok 1970 og fram að annarri
skákinni í einvíginu við Tigran Petr-
osjan í Argentínu haustið 1971ásamt
12 sigrum í einvígjunum við Mark
Taimanov og Bent Larsen. Talið er
útilokað að það afrek verði nokkru
sinni endurtekið meðal bestu skák-
manna heims.
Litlu munaði að Magnús tapaði
fyrstu skák sinni frá 31. júlí 2018 fyrir
Mamedyarov á skákmóti í Sviss. Í 4.
umferð FIDE Grand Swiss-mótsins á
Mön sl. sunnudag var hann með gjör-
tapað tafl gegn Rússanum Kovalev
en slapp með jafntefli. Eftir sjö um-
ferðir af ellefu er hann í námunda við
toppinn. Staða efstu manna er þessi:
1.-2. Caruana og Aronjan 5½ v.
3.-9. Magnús Carlsen, Wang,
Grischuk, David Anton, Maghsood-
loo, Alekseenko og Vitiugov 5 v.
Sigurvegarinn öðlast sæti í áskor-
endakeppninni á næsta ári. Caruana
á þar víst sæti og Magnús Carlsen
hefur einnig frítt spil.
Hinir taplausu og
sigurgangan mikla
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/John Saunders
Stóri fiskurinn slapp
Rússinn Kovalev var
með unnið tafl gegn
Magnúsi Carlsen.
Indriði Þórkelsson fæddist 20.
október 1869 í Sýrnesi í Aðaldal.
Foreldrar hans voru hjónin
Þórkell Guðmundsson og Ólöf
Indriðadóttir.
Indriði ólst upp á Syðra-
Fjalli, hann naut ekki skóla-
göngu en var þó víðlesinn. Hann
varð bóndi á Ytra-Fjalli, en á
Syðra-Fjalli var Jóhannes bróð-
ir hans bóndi, faðir Þorkels há-
skólarektors. Indriði kvæntist
1893 Kristínu Friðlaugsdóttur
og áttu þau níu börn.
Indriði réð yfir ágætu búi og
var einnig oddviti, hreppstjóri
og formaður sóknarnefndar.
Hann gaf sér einnig tíma til að
sinna skáldskap og ættfræði-
fræðirannsóknum. Urðu marg-
ar vísna hans þjóðkunnar en gaf
ekki ljóðin sín út fyrr en hann
stóð á sjötugu en þá kom út bók-
in Baugabrot. Sigurður Nordal
sagði í afmælisgrein um Indriða
að sér væri til efs að hafa heyrt
nokkurn mann tala jafn góða
íslensku.
Þegar á fermingaraldri var
Indriði farinn að grúska í ætt-
fræði og þegar hann lést þá lét
hann eftir sig yfir fimmtíu bindi
handrita af uppskriftum og
frumsömdu efni um þingeysk
fræði og ættfræði. Sonur hans,
Indriði, hélt verki föður síns
áfram og gaf út bækurnar Ættir
Þingeyinga.
Indriði lést 7.1. 1943.
Merkir Íslendingar
Indriði
Þórkelsson
Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík
Sími 588 0488 | feldur.is
BELGINGUR
mokkahanskar
6.200
MÓA
prjónahúfa
11.500
HRÖNN
refaskinnsvesti
79.000
GOLA
Finn raccoonkragi
16.800
Velkomin í hlýjuna
ELÍN
mokkakápa
248.000
EIR úlpa
m/refaskinni
158.000
DRÍFA
skinnkragi
31.900
Fasteignir
Það er fagnaðarefni
að loksins skuli hafa
náðst sátt um að fara
þurfi í samgöngu-
bætur á höfuðborgar-
svæðinu. Hins vegar
verður nýr samgöngu-
sáttmáli að teljast ansi
rýr í roðinu hvað varð-
ar fjármögnun. Þá
verður jafnframt að
teljast ansi sérstakt að
samgöngusamningur ríkis og
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
skuli vera nefndur sáttmáli, enda
ríkir engin sátt um hinn svokallaða
sáttmála. Menn hljóta að spyrja sig
hvaðan sáttin dregur nafn sitt en
benda má á að í borgarstjórn
Reykjavíkur var meirihlutinn klof-
inn í afstöðu sinni til þessa máls. Pír-
atar sáu ástæðu til þess að gera
fyrirvara við hinn svokallaða sátt-
mála á sama tíma og allur minnihlut-
inn, eins og hann lagði sig, lagðist
gegn þessum sáttmála.
Í samkomulaginu eru þó stigin
ákveðin skref í rétta átt. Lögð er
áhersla á alla mögulega ferðamáta.
Engu að síður er óvissuþættirnir
margir, eins og kom fram hér að
ofan, en sá stærsti snýr að skatt-
borgurum og vösum þeirra.
Samkomulagið kveður á um að
ráðast strax í markvissar aðgerðir
um bætt umferðarljósakerfi á höf-
uðborgarsvæðinu og nýtingu nýrra
tæknilausna, eins og Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur áður lagt til.
Verði staðið við þann hluta samn-
ingsins má búast við því að umferð á
stofnbrautum gangi greiðar fyrir sig
og leysi tímabundið úr þeim vanda
sem víða má finna í borginni.
Byrjað á öfugum enda
Næsta skref ætti eðlilega að snúa
að vinnu um heildstætt og hlutlaust
umferðarmódel fyrir svæðið allt.
Með því væri hægt að öðlast ýmsar
forsendur fyrir framkvæmdum með
upplýsingum um fjölgun íbúa, fyrir-
tækja og stofnana á ákveðnum
svæðum. Enn fremur myndu fást
sviðsmyndir varðandi fjölgun far-
þega í almennings-
samgöngum sem og
fjölgun þeirra sem nýta
munu hjóla- og göngu-
stíga til þess að komast
leiðar sinnar í leik og
starfi.
Niðurstöður úr slíku
umferðarmódeli með
forsendum fyrir fram-
tíðarskipulagi um
íbúaþróun og staðsetn-
ingu fyrirtækja og
stofnana á höfuð-
borgarsvæðinu ættu að leggja grunn
að þeim áætlunum og fram-
kvæmdum sem nauðsynlegt yrði að
fara í, með tilliti til arðsemismódels.
Slíkt hefur ekki verið gert.
Tvískattaðir höfuðborgarbúar
Sú spurning hlýtur að vakna hvort
byrjað hafi verið á öfugum enda í
vinnslu þessa samkomulags. Fjár-
mögnun verkefnisins er í óvissu,
ekki er vitað hvernig og hvaðan eigi
að sækja aurinn í vasa almennings,
hver borgar framúrkeyrslur verk-
efna, hvernig sveitarfélögin ætla að
reka nýtt almenningssamgöngu-
kerfi, hvort íbúar höfuðborgar-
svæðisins verði tvískattaðir og svo
áfram mætti telja.
Óvissa fjármögnunarinnar er svo
mikil að í fyrsta sinn á kjörtíma-
bilinu klofnar meirihlutinn í borgar-
stjórn. Það sætir miklum tíðindum
að meirihlutinn gangi ekki í takt í
þessu risastóri máli, en hingað til
hafa allir samstarfsflokkar borg-
arstjóra varið hann og samflokks-
menn hans fram í rauðan dauðann,
þrátt fyrir ótal afglöp í starfi.
Klofinn meirihluti
í Reykjavík
Eftir Egil Þór
Jónsson
Egill Þór Jónsson
» Óvissa fjármögn-
unarinnar er svo
mikil að í fyrsta sinn
á kjörtímabilinu
klofnar meirihlutinn
í borgarstjórn.
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
egill.thor.jonsson@reykjavik.is