Morgunblaðið - 19.10.2019, Qupperneq 26
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Hver króna sem fer
í gott atlæti og örvun
ungra barna skilar sér
í sjö krónum síðar til
samfélagsins. Nóbels-
verðlaunahafi í hag-
fræði, James Heck-
man, reiknaði það út
með vísindalegum að-
ferðum að snemmtæk
íhlutun er varðar alla
þroskaþætti ungra
barna skiptir sköpum
fyrir framtíð þeirra. Það helgast af
því að einstaklingur
sem fær góða umönn-
un, mikla mál- og vits-
munaörvun á fyrstu ár-
um ævinnar er líklegri
til að ljúka grunn- og
framhaldsskóla, fara í
frekara nám í iðn- eða
háskólagreinum, fer
síður á atvinnuleysis-
bætur, þarf síður að
nota félags- og heil-
brigðisþjónustu og
lendir síður á glap-
stigum með tilheyrandi
fangelsisvist. Þá er ekki
reiknað út verðmæti þess sem ham-
ingja og heilbrigði færir einstaklingi
sem tekst að láta drauma sína ræt-
ast, læra og fást við það sem hugur
hans og hjarta stendur til.
Á Íslandi er mikil og góð umræða
um máltækni og snjalltækjavæðingu
íslenskunnar sem mun þá hljóma í
þeim tækjum og tólum sem ung
börn nota frá degi til dags. Íslensk
stjórnvöld eru að taka mikilvæg
skref í samstarfi við háskólasamfé-
lagið til að íslenskan lifi í stafrænum
heimi. Viðhald og verndun tungu-
málsins okkar er líklega að stórum
hluta undir því komið. Það verður
hins vegar ekki hægt að líta framhjá
því að tækni framtíðarinnar mun
líka byggjast á því að einstaklingar
hafi góðan orðaforða, góð tök á les-
skilningi, hugtakaskilningi, stærð-
fræði og skilningi á úrlausnum og
hvernig ýmis vandamál eru leyst.
Allir þessir þættir byggjast á góðum
mál- og vitsmunaþroska, grunni sem
er lagður frá unga aldri þegar heil-
inn er hvað næmastur fyrir örvun.
Frumkvöðlar framtíðarinnar
spretta úr frjóum jarðvegi hugsunar
sem er nátengd málþroska og læsi.
Góð færni á talað og ritað mál er
dýrmætur auður sem fylgir barni
fram á fullorðinsár. Jöfn tækifæri
barna inn í framtíðina grundvallast
á því að einstaklingur hafi góðan
málþroska sem hefur áhrif á allt síð-
ara nám.
Um allan heim er alþjóðlegum
degi málþroskaröskunar fagnað.
James Heckman minnti okkur á að
þegar um krónur og aura er að ræða
í umönnun barna er þeim vel varið.
Spörum ekki í aðbúnaði og góðu
atlæti fyrir börn. Spörum ekki orða-
fjöld, gagnvirku samtölin og sam-
veruna með börnunum okkar.
Spörum ekki í menntun og launum
fagstétta sem vinna með börnunum
okkar. Framtíðin er vissulega í húfi.
Málþroski og tækni
Eftir Bryndísi
Guðmundsdóttur
Bryndís
Guðmundsdóttir
» Íslensk stjórnvöld
eru að taka mikil-
væg skref í samstarfi
við háskólasamfélagið
til að íslenskan lifi í staf-
rænum heimi.
Höfundur er talmeinafræðingur.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Rétt eftir aldamótin
1800, þegar Napóle-
onsstríð geisuðu og ár-
ferði var á köflum
slæmt á Íslandi, sat
sýslumaður einn norð-
ur í landi og skrifaði
Íslandssögu. Þetta var
Jón Espólín (1769-
1836). Hinn 22. októ-
ber 2019 verða 250 ár
liðin frá fæðingu hans.
Í tilefni þess mun Fé-
lag um átjándu aldar fræði halda
málþing í dag, 19. október, til að
heiðra minningu Espólíns og vekja
athygli á hinu mikilvæga starfi sem
hann innti af hendi. Ævistarf hans á
sviði sagnaritunar og ættfræði, þar
sem hann átti fáa jafnoka, var sann-
arlega drjúgt og þakkarvert. Sam-
tímamaður Espólíns og frændi,
Bjarni Thorarensen, skáld og amt-
maður, lýsti honum með fallegum
hætti í bréfi. Bjarni sagði að Jón
Espólín hefði verið „einhvör hinn
lærdasti Madur og mesti Ydiumadur
á Islandi og þaradauki mesta Gód-
menni“.
Telja má Íslands Árbækur í sögu-
formi (oftast nefndar Árbækur
Espólíns) merkasta rit Jóns Espól-
íns. Hið íslenska bókmenntafélag gaf
ritið út á árunum 1821-1855. Þetta
sagnfræðiverk, sem er geysimikið að
vöxtum, fjallar um Íslandssöguna frá
1262 til 1832. Espólín
var ljóst að hverju
mannsbarni var nauð-
synlegt að fá tækifæri
til þess að öðlast skiln-
ing á sögu þjóðar sinn-
ar, jafnt þeirri nýju sem
gömlu. Með ritverkinu
fetaði Espólín ótroðnar
slóðir því að ekkert rit
sem fjallaði um Íslands-
söguna í heild á þessu
tímabili var til fyrir.
Verkið naut vinsælda
meðal almennings.
Jón var fæddur inn í höfðingja-
ættir á Íslandi, sonur Sigríðar Stef-
ánsdóttur, systur Ólafs Stefánssonar
stiftamtmanns, og Jóns Jakobs-
sonar, sýslumanns í Eyjafjarðar-
sýslu og sagnritara. Fjölskyldan bjó
á Espihóli í Eyjafirði.
Jón Espólín var mikill eljumaður
við ritstörf. Skrifaði hann um öll
tímabil Íslandssögunnar og sömu-
leiðis um mörg tímabil í sögu Evrópu
og heimsins. Honum var því fátt
óviðkomandi. Ættvísi Jóns Espólíns
var annáluð. Liggur eftir hann mikið
verk á því sviði en ættfræðin var öðr-
um þræði einn máttarstólpi sög-
unnar og mátti með henni greina
rætur hátt settra valdsmanna og
margra annarra Íslendinga, svo og
konungsætta.
Jón Espólín var fremur íhalds-
samur embættismaður og eindreg-
inn stuðningsmaður konungs-
stjórnar á þeim tímum er vaxandi
fylgi var við nýja stjórnarhætti sem
komu fram um hans daga, m.a. í kjöl-
far frönsku byltingarinnar sem hófst
árið 1789 þegar Espólín var nítján
ára gamall. Áhrif upplýsingarinnar,
hinnar fjölþjóðlegu hugmynda-
stefnu, má þó hæglega greina í skrif-
um sagnaritarans Espólíns en hann
var hlynntur auknu frelsi á til-
teknum sviðum mannlífsins, m.a. í
verslun. Þá vildi hann að fleiri hefðu
tækifæri til menntunar en var á hans
tíð.
Á málþinginu „Jón Espólín – 250
ára minning“, mun Guðmundur
Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði
og forseti Hugvísindasviðs Háskóla
Íslands halda erindi undir yfirskrift-
inni „Legið á hleri: samfélagslegur
boðskapur sögunnar um Árna ljúf-
ling“; Ingi Sigurðsson, prófessor em-
eritus í sagnfræði við Háskóla Ís-
lands, mun fjalla um þær viðtökur
sem Árbækur Espólíns hlutu, en
Ingi hefur rannsakað ítarlega þær
hugmyndastefnur sem mótuðu skrif
Espólíns á sviði sagnaritunar; Krist-
rún Halla Helgadóttir, sagnfræð-
ingur og sérfræðingur hjá Íslenskri
erfðagreiningu, mun fjalla um sam-
skipti Espólíns við stórfjölskyldu
sína; og Margrét Gunnarsdóttir,
doktorsnemi í sagnfræði við Háskóla
Íslands, mun halda erindi undir yf-
irskriftinni „Skyggnst inn í heim
bréfritarans Jóns Espólíns“.
Fundarstjóri verður Halldór Bald-
ursson, sagnfræðingur og læknir.
Málþingið fer fram í Þjóðar-
bókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, og
stendur kl. 13.30-16.15.
Eftir Margréti
Gunnarsdóttur
Margrét
Gunnarsdóttir
»Espólín var ljóst að
hverju mannsbarni
var nauðsynlegt að fá
tækifæri til þess að öðl-
ast skilning á sögu þjóð-
ar sinnar.
Höfundur er sagnfræðingur
og formaður Félags um
átjándu aldar fræði.
mag59@hi.is
Jón Espólín – 250 ára minningVelvakandiSvarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Lesandi hafði fyrir stuttu samband
við Velvakanda og vildi koma þeirri
ábendingu á framfæri við ráðamenn
og aðra hversu ofnotuð sögnin að
rýna er. Menn tala um að nefndir
séu að rýna í niðurstöður kannana
og skýrslna þegar vel er hægt að
nota fjölbreyttara orðalag. Eins rifj-
aði hún upp að í æsku hennar hefði
sögnin að rýna verið notuð í því sam-
hengi að einhver væri sjóndapur,
sæi illa og þyrfti því að rýna í bækur
sökum þess.
Halldóra.
Að rýna eða
rýna ekki
Samrýndar Rýnt inn um glugga.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS