Morgunblaðið - 19.10.2019, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra, en undir hatti
Umhyggju starfa 18 foreldrafélög langveikra barna á Íslandi. Markmið Umhyggju er að standa vörð
um réttindi langveikra barna og styðja við fjölskyldur þeirra á margvíslegan hátt. Sálfræðiþjónusta
fyrir foreldra langveikra barna er meðal þeirrar þjónustu sem Umhyggja býður upp á.
Umhyggja – félag langveikra barna
óskar eftir sálfræðingi í 50-100% starfshlutfall
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stuðnings- og ráðgjafarviðtöl við foreldra langveikra barna
• Þátttaka í fræðslustarfi, fyrirlestrum eða námskeiðum um
sálfræðileg málefni fyrir fjölskyldur langveikra barna
• Önnur verkefni sem framkvæmdastjóri/stjórn felur starfs-
manni
Menntun og hæfniskröfur
• Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi
• Þekking og reynsla á málefnum langveikra barna æskileg
• Þekking og reynsla af vinnu með áföll æskileg
• Sérlega góð færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og sveigjanleiki
Umhyggja býður sanngjörn kjör og sveigjanleika í starfi. Umsóknum ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal
skilað til Umhyggju -félags langveikra barna, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík, eða í tölvupósti á netfangið
arny@umhyggja.is eigi síðar en 1. nóvember. Miðað er við að starf hefjist sem fyrst eftir áramótin, eða í
samráði við starfsmann.
Nánari upplýsingar veitir Árný Ingvarsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri í
síma 6617166 eða arny@umhyggja.is
Mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga leitar nú að öflugum aðila til þess að leiða
markaðs-, sölu- og vöruþróunarmál á öðrum framleiðsluvörum en hefðubundnum
mjólkurvörum. Um er ræða spennandi vöruþróunarverkefni sem bæði snúa að núverandi
framleiðslu en einnig mörgum nýjum framleiðsluvörum m.a. úr prótein- og etanólafurðum
ásamt samhæfingu á kynningar-, markaðs- og sölustarfi á þessum hluta framleiðslunnar.
Starfsstöðin er á Sauðárkróki.
FORSTÖÐUMAÐUR SÖLU-, MARKAÐS- OG
VÖRUÞRÓUNAR HJÁ MJÓLKURSAMLAGI KS
Ábyrgðarsvið
• Skipuleggja og leiða virðisaukandi
vöruþróunarstarf
• Leiða kynningar- og markaðsstarf
• Daglegur rekstur á hluta framleiðslunnar
• Virkja og viðhalda mælikvörðum til að meta
árangur starfsins
• Þátttaka í stefnumótun og gæðastarfi
• Önnur tilfallandi verkefni og sem samlagsstjóri
úthlutar
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði viðskipta, vöruþróunar,
markaðsfræða eða önnur menntun sem nýtist
í starfi æskileg
• Reynsla af stýringu sölu- og markaðsmála
• Reynsla af rekstri æskileg
• Skilningur í lestri rekstrar- og
efnahagsupplýsinga
• Sjálfstæði, frumkvæði, metnaður og vinnusemi
• Góð samskiptahæfni
• Gott vald á talaðri og ritaðri ensku nauðsynlegt
• Góð tölvukunnátta
Umsóknarfrestur til og með 28. október nk.
Mjólkursamlag KS skiptist í tvö svið,
mjólkurafurðasvið og aðra framleiðslu.
Það sem tilheyrir annarri framleiðslu
eru m.a. vörumerkin E. Finnsson,
Mjólka, Voga, kaldir kaffidrykkir og
fæðurbótarefni. Einnig gert ráð fyrir
virðisaukandi framleiðslu úr þurrkuðu
mysupróteini og mysuetanóli.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Vacant positions at the
Official Residence:
CHEF (full time)
U.S. Ambassador’s Residence is currently
hiring one full time Chef with knowledge of
Japanese and Asian cuisine.
Please submit your CVs to
ReykjavikOREVacancy@state.gov latest by
October 24, 2019.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á