Morgunblaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
✝ Kjartan Jó-hannesson
fæddist 13. októ-
ber 1925 í Breiðu-
vík á Tjörnesi.
Hann lést á
Skógarbrekku 8.
október 2019.
Móðir hans var
Jakobína Guðna-
dóttir, f. 16. sept-
ember 1893, og
faðir hans Jóhann-
es Kristjánsson, f. 29. desem-
ber 1857. Kjartan fór í fóstur
til móðursystur sinnar, Konst-
antínu Vilhelmínu Sigurjóns-
dóttur, f. 28. maí 1878 á Hall-
bjarnarstöðum, og manns
hennar, Árna Sigurbjarnarson-
ar, f. 25. desember 1873.
Kjartan átti eina hálfsystur,
sammæðra, Margréti Vigfús-
dóttur. Konstantína og Árni
ólu Kjartan upp sem sinn eigin
son, ásamt þeirra sonum, þeim
Sigurbirni, Valdimar og
Baldri. Þau eru nú öll látin.
Kjartan kvæntist Kristínu
Aðalheiði Þórðardóttur, 13.
október 1949, d. 21. september
2018.
Kjartan og Kristín bjuggu
Sigurður Gíslason, hann á
dóttur sem heitir Eygló Arna.
5) Árný Ósk, f. 10. júní 1957,
d. 19. júlí sama ár. 6) Árni
Óskar, f. 1958, börn hans eru
Árni Már, Hulda Berglind og
barnabörnin eru fjögur. 7) Að-
alheiður, f. 1961, gift Jóni
Ingasyni, þau eiga dóttur sem
heitir Guðný. Aðalheiður á
fjögur börn úr öðrum sam-
böndum þau eru Elí, Kristján,
Álfheiður, Sóley Hulda og eitt
barnabarn. 8) Rósa Guðbjörg,
f. 1963, gift Jónasi Jónassyni,
börn þeirra eru Bjarni, Haf-
þór, Heiða og barnabörnin eru
sjö. 9) Berta Jóhanna, f. 1964,
gift Jóhanni Garðari Ólafssyni,
börn þeirra eru María Jó-
hanna, Björn Rúnar og eitt
barnabarn. 10) Aðalsteinn, f.
1965, kvæntur Stellu Árna-
dóttur, börn þeirra eru Eva
Rakel, Anna Marý og Elmar
Leó.
Kjartan ólst upp á Hall-
bjarnarstöðum á Tjörnesi.
Kjartan vann ýmsa verka-
mannavinnu, s.s. við akstur
bíla, húsbyggingar, pípulagnir,
póstútburð og fiskvinnslu.
Kjartan átti um tíma lítinn bát
sem hét Hafliði, stundaði grá-
sleppu, síðan handfæri og línu
og veiddi vel, enda þekkti
hann vel miðin út með nesinu.
Útför Kjartans verður gerð
frá Húsavíkurkirkju í dag, 19.
október 2019, klukkan 14.
lengst af á Þórð-
arstöðum á Húsa-
vík. Þau eignuðust
10 börn. Þau eru:
1) Dalrós Hulda, f.
1950, gift Ólafi
Jóni Héðinssyni,
börn þeirra eru
Kristín Svanhild-
ur, Héðinn, Eydís
og barnabörnin
eru tvö. 2) Þórður,
f. 1952, kvæntur
Steinunni Hrund Jóhanns-
dóttur og eiga þau tvo syni,
þeir eru Skarphéðinn og Haf-
steinn. Þórður á tvo syni og
eina uppeldisdóttur af fyrra
hjónabandi, þau eru Júlíana
Sigríður, Kjartan Arnþór, Páll
Bergþór og barnabörnin eru
þrjú. 3) Vilhelmína Ásdís, f.
1953, gift Vigfúsi Sigurðssyni,
börn Ásdísar eru Skarphéðinn,
Steinþór, Kristbjörg Lilja og
barnabörnin eru níu. 4) Sig-
rún, f. 1955, eiginmaður henn-
ar var Haukur Tryggvason, f.
1949, d. 2011, börn þeirra eru
Sólrún, Árný Ósk, Kjartan Jó-
hannes, barnabörnin eru átta
og langömmubörnin þrjú.
Sambýlismaður Sigrúnar er
Elsku pabbi minn, nú ertu
kominn í sumarlandið til
mömmu. Hún og litla systir
hafa örugglega tekið á móti þér
opnum örmum. Þú hefðir orðið
94 ára á sunnudaginn 13. októ-
ber ef þú hefðir lifað. Þá áttuð
þið mamma 70 ára brúðskaups-
afmæli. Núna yljar maður sér
við góðar minningar frá æsku-
dögum.
Ég man vel þegar ég var lítil
stelpa þegar þú varst að spila á
harmonikkuna þína. Það var
gaman, stundum dönsuðum við
systur inn í stofu við harm-
onikkuspilið. Núna spila ég
diskinn sem þú spilaðir þín
uppáhaldslög og gafst okkur
öllum í jólagjöf eitt árið.
Ég man eftir ógleymanlegri
ferð með ykkur mömmu út á
Tjörnes, nánar tiltekið í Hall-
bjarnastaði. Faratækið var
vörubíll. Börnin voru svo mörg
að þú settir okkur fjögur elstu
upp á pallinn. Við sátum þar og
þú settir eitthvert reipi um
mittið á okkur til að halda okk-
ur kyrrum á pallinum. Mamma
var inni í bílnum með líklega
tvö systkini okkar og örugglega
ólétt. Því þið eignuðust tíu börn
á 15 árum. Geri aðrir betur. En
þetta gekk allt vel. Við sem
eldri vorum pössuðum þau
yngri.
Ég man líka einu sinni þegar
mamma skrapp að heiman, sem
ekki var oft, að mér datt í hug
að plata agúrku ofan í pabba
minn. Hann borðaði ekki
agúrku. Ég smurði brauð
handa honum, setti þunna sneið
af agúrku svo smjör og álegg.
En, viti menn, hann fann lykt-
ina af agúrkunni og snerti ekki
brauðið. Svo þessi hrekkur mis-
tókst.
Pabbi var líka duglegur að
smíða. Gaman að segja barna-
börnunum sínum þegar þau
koma til okkar og labba með
okkur um bæinn að afi þeirra
hafi rennt alla pílárana við
Veitingahúsið Sölku.
Svo spilaði hann með Stráka-
bandinu og þeir gáfu út tvo
geisladiska. Þeir hafa verið
honum einstaklega góðir fé-
lagar.
Ég man líka þegar við fórum
með ykkur mömmu út í Tungu-
lendingu þegar hún var opnuð.
Þá sagðir þú „sólarlagið er svo
fallegt á Tjörnesinu“. Þú dýrk-
aðir að koma í Hallbjarnastaði.
Þar áttir þú þínar bestu stundir
í uppvextinum.
Takk, elsku pabbi, fyrir allt
sem þú hefur gert fyrir mig.
Þín dóttir
Vilhelmína Ásdís.
Ég vil kveðja pabba minn í
hinsta sinn með örfáum orðum.
Hann var alinn upp á Hall-
bjarnastöðum á Tjörnesi, hon-
um þótti ofurvænt um Nesið
sitt. „Það er fallegt sólsetrið á
Nesinu,“ sagði hann fyrir
stuttu. Þó að heilabilunin hafi
verið farin að taka margt frá
honum, tók hún ekki gömlu
minningarnar hans, frá honum.
Hann gat alltaf rifjað upp eitt-
hvað fallegt og gott af Nesinu,
Hallbjarnastaðakamburinn og
Tungulending voru honum sér-
lega hjartkær, hann mundi
mörg örnefni þaðan. Á Nesinu
lærði hann að dansa og á balli í
gamla félagsheimilinu 1948
kynnist hann mömmu, sem var
hans stóra ást í gegnum lífið.
Pabbi var heiðarlegur, hæg-
látur, fámáll, hafði jafnaðargeð,
var félagslyndur, handlaginn og
iðinn.
Ég er þakklát fyrir góða for-
eldra. Ég átti góða barnæsku.
Mamma var mest heimavinn-
andi, pabbi vann fyrir heim-
ilinu, framanaf. Verkaskipting-
in var skýr, mamma eldaði,
bakaði, þreif, þvoði þvotta,
saumaði, prjónaði og keypti
inn. Pabbi vann úti, hugsaði um
garðinn, mokaði snjó á vetrum,
smíðaði, málaði og teppalagði,
hann var alltaf að betrumbæta
húsið, utan sem innan.
Þau mamma ólu upp stóran
barnahóp, það hefur sennilega
ekki alltaf verið úr miklu að
moða en ég man ekki til þess
að okkur hafi skort nokkurn
hlut, alltaf nóg að bíta og
brenna, enda voru þau nægju-
söm, fóru vel með, en voru allt-
af til í að gefa til góðra mál-
efna.
Pabbi lærði ungur að spila á
harmónikku af Baldri bróður
sínum og naut þess svo innilega
að grípa í nikkuna, hann spilaði
alltaf eftir eyranu. Hann spilaði
í mörg ár með Strákabandinu,
þeim yndislegu mönnum og
góðu vinum okkar allra. Hann
naut sín best með harmónikk-
una framan á sér.
Ég minnist æskunnar við ör-
yggi, áhyggjuleysi, leik og
frjálsræði í Brekkunni okkar.
Ég þakka þér samfylgdina
pabbi minn og óska þér góðrar
ferðar í sumarlandið til hennar
mömmu. Nú getið þið aftur
tekið upp hald og dansað inn í
eilífðina.
Aðalheiður
Kjartansdóttir.
Elsku pabbi.
Þá ertu kominn í sumarland-
ið til mömmu sem kvaddi fyrir
ári, þið áttuð 70 ára brúðkaups-
afmæli núna 13. október, það er
býsna langur tími. Þú ólst upp
á Hallbjarnarstöðum, nesið var
alltaf þinn uppáhaldsstaður. Á
veturna þegar veður var gott
og færðin góð settirðu á þig
gönguskíðin á laugardags-
morgni og skíðaðir út í Hall-
bjarnarstaði og komst til baka
seinnipart á sunnudegi. Þegar
hugurinn reikar til bernskuár-
anna þá fór oft rafmagnið af á
veturna, þá varst þú fljótur að
taka fram prímusinn og bjarga
málunum. Þú áttir bát sem hét
Hafliði, eitt sinn fékk ég að
fara með þér á sjó, ég hef lík-
lega verið 8 eða 9 ára gömul.
Við fórum um fimmleytið um
morguninn af stað, mér fannst
skrýtið að ganga um bæinn og
enginn á ferli. Þú varst á hand-
færum, við veiddum ágætlega,
mikið var gaman að sitja á
þóftunni með nestið og heyra i
máfunum og hlusta á öldunið-
inn.
Þetta var skemmtileg ferð
sem ég gleymi ekki. Þú varst
einstaklega handlaginn, sama
hvað það var. Þú málaðir,
breyttir og stækkaðir húsið eft-
ir þörfum því fjölskyldan var
stór. Þú eignaðist ungur harm-
onikku sem þú spilaðir á þér til
skemmtunar. Þú hafðir unun af
því að spila, þú kenndir mér að
spila eitt lag á nikkuna þegar
ég var 10 ára, það var lagið Nú
blika við sólarlag.
Mér þótti vænt um að geta
gripið í nikkuna og spilað þetta
lag fyrir þig þegar þú gast ekki
lengur spilað sjálfur. Elsku
pabbi, þá er komið að leiðarlok-
um, góða ferð í sumarlandið.
Takk fyrir allt.
Þín dóttir,
Sigrún.
Kjartan
Jóhannesson
Mjög góð vin-
kona mín er látin,
Ásta Þórðardóttir,
mikil mannkosta-
kona. Maður hennar var Theodór
Georgsson lögmaður, mjög góður
og traustur maður sem lést fyrir
nokkrum árum.
Ég hitti Ástu hjá Indu tengda-
móður minni en þær voru mjög
góðar vinkonur og bjuggu báðar
uppi á lofti á Þingvöllum. Við
hjónin fórum að byggja á sama
tíma, við á Sóleyjargötu en þau á
Fjólugötu. Stutt var á milli og
mikill samgangur var á meðal
okkar. Þau voru búin að eignast
tvær yndislegar stelpur en stuttu
seinna bættust við tveir góðir
drengir.
Við eignuðumst einnig tvo
drengi á svipuðum tíma og léku
þeir sér mikið saman og voru
góðir vinir.
Þau fluttu svo til Reykjavíkur
1966 en við héldum alltaf sam-
Ásta Þórðardóttir
✝ Ásta Þórðar-dóttir fæddist
16. október 1930.
Hún lést 19.
september 2019.
Útför hennar fór
fram 16. október
2019.
bandi í síma og
heimsóttum þau
þegar við áttum leið
til Reykjavíkur.
Fyrir nokkrum ár-
um komu þau til
Eyja á ættarmót og
gistu hjá okkur og
var það yndislegur
tími. Ásta vildi alltaf
ganga menntaveg-
inn en aðstæður
leyfðu það ekki hjá
öllum í þá daga en eftir að þau
fluttu til Reykjavíkur með fjögur
börn hóf hún nám. Mikill var
dugnaður hennar og lauk hún
prófi sem félagsráðgjafi og vann
hjá Reykjavíkurborg sem slíkur.
Í seinni tíð höfum við hjónin
farið oft til útlanda með þeim
hjónum Ástu og Ted og voru það
yndislegar ferðir. Mikið var oft
gaman hjá okkur enda mikið
hlegið og talað. Það vafðist ekki
fyrir okkur að leysa heimsmálin,
þó aðallega á Íslandi.
Innilegar samúðarkveðjur til
elsku Katrínar, Finnu, Georgs og
Þórðar.
Ásta mín, það verður vel tekið
á móti þér. Guð blessi heimkomu
þína. Ég kveð þig með söknuði,
blessuð sé minning þín.
Ingibjörg (Lilla) og Svanur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNA HALLDÓRA BJARNADÓTTIR
frá Hóli í Bolungarvík,
lést miðvikudaginn 9. október á
hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum.
Útför hennar fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti
mánudaginn 21. október klukkan 15.
Gunnlaugur Jónsson
Kristín Jónsdóttir
Gísli Geir Jónsson
Bergþóra Jónsdóttir Eggert Gunnarsson
Gerður Jóndóttir
Eldey Huld Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN A. FRIÐLEIFSSON,
Gerðhömrum 25,
Reykjavík,
lést mánudaginn 9. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Guðmundur Guðjónsson Lára Bergsveinsdóttir
Agnar Georg Guðjónsson
Örn Ómar Guðjónsson Seble Work Mamo
barnabörn og barnabarnabörn
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
auglýsingateiknari,
Hamragerði 31, Akureyri,
lést laugardaginn 12. október á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Hlíð.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 25. október
klukkan 13.30.
Björg Þórðardóttir
Kristján Kristjánsson Kristín S. Hjálmtýsdóttir
Jakob Þór Kristjánsson
Þórunn Bryndís Kristjánsd. Högni Hjálmtýr Kristjánsson
Brynja Björg Kristjánsdóttir Kári Kristjánsson
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 10-17 alla virka daga
Eiginmaður minn og bróðir okkar,
SNORRI ÞORSTEINN PÁLSSON
frá Dagverðartungu,
Fjólugötu 13,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 13. október.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 24. október klukkan 13.30.
Nittaya Nonghee
Gylfi, Ragna, Gísli og Snjólaug Pálsbörn
Ástkær bróðir minn, mágur og frændi,
RANDVER VÍKINGUR RAFNSSON,
Akursíðu 2, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 12. október.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 28. október klukkan 13.30.
Jarðsett verður í Hólakirkjugarði
Eyjafjarðarsveit.
Geirlaug Jóna Rafnsdóttir Hörður Hallgrímsson
Klara Árný Harðardóttir
Guðni Rafn Harðarson
Davíð Örn Harðarson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN SIGURVEIG
JÓHANNSDÓTTIR
dagmóðir,
lést á Landspítalanum Hringbraut
16. október.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 25. október
klukkan 13:00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameins- og/eða Blindrafélagið.
Jóhanna Gunnarsdóttir
Sigurður Gunnarsson Rannveig Gunnarsdóttir
Ólafur Gunnarsson Þórný Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn