Morgunblaðið - 19.10.2019, Page 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
✝ Kristín BjörgJóhannsdóttir
fæddist 18.
september 1930 á
Patreksfirði. Hún
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
1. október 2019.
Foreldrar Krist-
ínar voru Jóhann
Pétursson skip-
stjóri á Patreks-
firði, f. 18. febrúar
1894, d. 1. apríl 1961, og Elín
Bjarnadóttir húsmóðir, f. 27.
júlí 1899, d. 18. júlí 1982. Krist-
ín átti þrjú systkini, Odd-
björgu, Pétur og Elínu Guð-
björgu sem eru öll látin.
Kristín var gift Rafni Hafn-
fjörð, f. 21. desember 1928, d.
21. maí 2011. Rafn og Kristín
eignuðust sjö börn, þau eru:
Hjördís Hafnfjörð, f. 1950, gift
Hirti Rúnari Zakaríassyni og
eiga þau þrjár dætur, átta
barnabörn, fjögur stjúp-
barnabörn og eitt
barnabarnabarn.
Birna Hafnfjörð, f.
1954, gift Gunnari
Erni Kristjánssyni,
fjögur börn og sjö
barnabörn. Hrafn-
hildur Hafnfjörð, f.
1954, gift Kristjáni
Gunnarssyni, tvö
börn og fjögur
barnabörn. Elín
Þóra, f. 1955, var
gift Steingrími Guðmundssyni,
tvö börn og eitt barnabarn.
Þyri, f. 1958, gift Elvari Erni
Unnsteinssyni, þrjú börn og
þrjú barnabörn. Jóhann Hafn-
fjörð, f. 1961, d. 1965. Jóhann
Hafnfjörð, f. 1965, var giftur
Lilju Kúld, d. 2016, ein uppeld-
isdóttir og eitt barnabarn. Nú-
verandi sambýliskona Jóhanns
er Dómhildur Árnadóttir, hún
á tvö börn og eitt barnabarn.
Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey.
Elskuleg móðir okkar er látin
eftir stutta sjúkdómslegu, 89 ára
gömul. Það kom okkur öllum í
opna skjöldu þegar hún veiktist
síðastliðið sumar, en fram að því
hafði hún verið heilsuhraust.
Foreldrar mömmu voru bæði
fædd á Vatnsleysuströnd en
fluttu til Patreksfjarðar þar sem
Jóhann afi var skipstjóri í 25 ár.
Sextán ára flutti mamma til
Reykjavíkur og hóf nám við
Verslunarskóla Íslands. Á þess-
um árum bjó hún hjá Bjarna
móðurbróður sínum og eiginkonu
hans Báru á Bergstaðastræti 51.
Mamma kynntist pabba í Gúttó
árið 1949 og var það ást við fyrstu
sýn. Þau gengu í hjónaband 30.
desember 1950 á Patreksfirði og
hófu búskap skömmu síðar, fyrst
á Bergstaðastræti en fluttu síðan
til foreldra mömmu að Sætúni á
Seltjarnarnesi og bjuggu hjá
þeim í fjögur ár. Síðar flutti fjöl-
skyldan að Tunguvegi 40 og það-
an að Austurgerði 5 þar sem
mamma og pabbi byggðu sér ein-
býlishús.
Þegar börnin voru flutt að
heiman seldu þau húsið sitt og
fluttu í íbúð í Krókavaði og þar
bjuggu þau þegar pabbi lést. Ári
seinna flutti mamma í Árskóga
þar sem hún undi hag sínum ein-
staklega vel.
Mamma var heimavinnandi á
meðan við vorum ung. Við minn-
umst þess hvað hún lagði mikla
áherslu á að hafa heimilið fallegt
og okkur börnin fallega klædd.
Hún var mjög nýtin, saumaði á
okkur fatnað eftir nýjustu tísku.
Mjög erfiður tími var í lífi fjöl-
skyldunnar þegar Jóhann bróðir
okkar varð veikur og lést aðeins
þriggja ára gamall. Söknuður
okkar allra var mikill en á sama
ári fæddist foreldrum okkar son-
ur sem þau skírðu einnig Jóhann
og varð hann mikill ljósgjafi í lífi
okkar.
Pabbi og mamma ráku Prent-
smiðjuna Litbrá og gáfu út póst-
kort, myndabækur um Ísland og
fleira. Vegna þessa ferðuðust þau
mikið um landið til að taka mynd-
ir og dreifa póstkortum og ýms-
um öðrum varningi. Þau voru
bæði ákaflega hrifin af náttúru-
fegurð Íslands og smituðu þau
okkur systkinin af áhuga sínum.
Á hverju ári voru margir viðburð-
ir sem mamma og pabbi skipu-
lögðu fyrir alla fjölskylduna s.s.
veiðiferðir, jólaboð, jólaböll og
samvera á gamlárskvöld.
Mamma hætti að vinna 75 ára
gömul, þegar foreldrar okkar
seldu Litbrá og hefði hún alveg
viljað vinna lengur. Hún var ein-
stök kona, falleg, hlý, skapgóð,
skemmtileg og fróð. Hún var
bókhneigð og beið spennt, líkt og
smástelpa, eftir bókabílnum alla
föstudaga. Henni var margt til
lista lagt, var góður veiðimaður
og snilldar kokkur. Síðustu árin
naut hún þess að sauma út gull-
fallega dúka og prjóna. Gott var
að leita ráða hjá mömmu og mun-
um við sakna þess sárt að geta
ekki deilt með henni sorgum og
gleði í lífinu. Mamma fylgdist vel
með fólkinu sínu, var góður hlust-
andi, hafði gaman af rökræðum
og var mjög pólitísk. Síðustu árin
hittumst við systkinin alltaf hjá
mömmu á miðvikudögum og
borðuðum saman kvöldmat.
Þessar stundir eru okkur algjör-
lega ómetanlegar.
Við þökkum þér, elsku
mamma, fyrir allan stuðninginn
og að vera alltaf til staðar fyrir
okkur öll. Við elskum þig og þú
lést okkur, hverju og einu, líða
eins og við værum uppáhalds. Þín
verður sárt saknað.
Þín börn,
Hjördís, Birna, Hrafnhildur,
Elín Þóra, Þyri og Jóhann.
Elskuleg tengdamóðir mín lést
1. október síðastliðinn. Okkar
kynni hófust 1974 þegar ég fór að
venja komur mínar í Austurgerði
5 og gera hosur mínar grænar
fyrir dóttur hennar Hrafnhildi.
Kristín eða Diddí eins og hún var
kölluð var alin upp á Patreksfriði,
í Jóhannshúsi, en faðir hennar
Jóhann Pétursson var farsæll
skipstóri og mikil aflakló. Við
Hrafnhildur byrjuðum okkar bú-
skap hjá Elínu móður Kristínar
þegar hún var orðin ekkja.
Frá okkar fyrstu kynnum fann
ég að Kristín var einstök kona.
Hún bar ekki tilfinningar á torg
og vildi ekki kossaflangs eða
knús, en hún var afskaplega hlý
og góð manneskja, heilsteyptari
kona er vandfundin. Hún var frá-
bær kokkur og fram á síðasta dag
safnaði hún uppskriftum og eld-
aði fyrir börn og barnabörn.
Þau hjónin Kristín og Rafn
Hafnfjörð ráku prentsmiðjuna
Litbrá til fjölda ára, ferðuðust
um landið, tóku myndir og stund-
uðu veiði. Það er varla sá staður á
landinu sem Kristín þekkti ekki
með nafni. Hún var góður veiði-
maður, kastaði flugu eins og best
gerist og veiddi vel. Það eru ófáir
stórlaxar sem hún landaði.
Kristín las mikið sakamálasög-
ur og hafði áhuga á stjórnmálum
og þjóðmálum almennt. Hún
hafði einstakt minni og þeir sem
spiluðu við hana Trivial Pursuit
töpuðu oftast. Það var virkilega
gaman að ræða við Kristínu um
stjórnmál og hin síðari ár kom ég
oft í heimsókn til hennar í Ársali
og við ræddum pólitík.
Diddí var mjög hógvær og
mikil fjölskyldumanneskja. Oft
sat hún við árbakkann og las
sakamálasögur til að leyfa öðrum
að veiða, það var hennar stíll.
Hún var mikill dugnaðarforkur,
vann til 75 ára aldurs og eignaðist
sjö börn. Diddí var afskaplega
réttsýn og það var gott að fá
hennar álit, því mátti treysta.
Ég kveð einstaka konu, á
henni mikið að þakka og mun
sakna hennar.
Kristján Gunnarsson.
Elsku yndislega amma og
langamma.
Mikið er ég þakklát fyrir að
hafa átt margar góðar stundir
með þér í gegnum árin, hvort sem
það var í prentsmiðjunni, á ferða-
lögum eða í rólegheitum heima
hjá þér. Þú hafðir svo góða nær-
veru og það var alltaf gott að vera
hjá þér. Það var svo yndislegt að
vinna hjá ykkur í prentsmiðjunni
og ennþá nota ég 8 og 1-aðferðina
við talningu.
Mér þykir ótrúlega skrítið að
geta ekki heimsótt þig næst þeg-
ar ég fer í bæinn en heimsóknir
til þín voru gríðarlega mikilvæg-
ur hluti af bæjarferðum okkar
mæðgna. Ferðirnar voru skipu-
lagðar með það í huga að við gæt-
um alltaf komið við hjá þér og
fengið ís, kaffibolla og eitthvað
sætt með.
Ef ég var á ferðinni í hádeginu
varstu búin að elda ommelettu
eða hita upp afganga. Ég var far-
in að leggja það í vana minn að
láta þig ekki vita fyrirfram að við
værum að koma svo þú værir
ekki að hafa of mikið fyrir okkur
enda varstu með eindæmum
gestrisin.
Núna geta systurnar ekki
klárað ísinn þinn, farið í keppni
um hver fær að sitja í hæginda-
stólnum og Freyja Kristín fær
ekki poka hjá þér svo hún geti
valið gullpeninga úr smámynta-
krúsinni þinni.
Þú varst alltaf með allt á
hreinu, mundir alla afmælisdaga,
varst mjög áhugasöm um hvað
við fjölskyldan værum að gera,
hvað væri að frétta af okkur og
það var ekkert sem þú vissir ekki.
Elsku amma, það verður skrít-
ið að geta ekki spjallað um
glæpasögur við þig eða fengið
lánaða eins og eina bók, að fara
ekki á jólaball hjá þér og að geta
ekki knúsað þig.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
fengið að vera hjá þér á sjúkra-
húsinu, að geta setið og spjallað
um allt milli himins og jarðar og
að hafa verið hjá þér þegar þú
kvaddir okkur. Þú varst mér
ótrúlega dýrmæt og mikill missir
að hafa þig ekki hjá okkur aðeins
lengur.
Þín er og verður alltaf saknað.
Þín ömmustelpa,
Kristín og langömmustelp-
urnar Esther Júlía, Þóra
Vigdís og Freyja Kristín.
Elsku amma Diddý mín er fall-
in frá. Það sem situr eftir er gíf-
urlegt þakklæti. Ég er þakklát
fyrir að hafa átt ömmu sem tók
virkan þátt í lífi mínu, mætti á
alla tónleika og spurði mig spjör-
unum úr um líf mitt í hverri ein-
ustu heimsókn.
Ég er þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast þessari mögn-
uðu konu sem elskaði bæði að
lesa og horfa á góðan „krimma“
og fylgdist betur með hvað var að
gerast í heiminum heldur en við
unga kynslóðin. Ég er líka sorg-
mædd að ég náði ekki að kveðja
og að hún féll frá þegar hún átti
svo mikið eftir að gefa. En að-
allega er ég sorgmædd yfir að ég
fái aldrei að sjá hana aftur. Ég
elska þig, amma, takk fyrir allt
sem þú hefur gefið mér.
Edda María Elvarsdóttir.
Kristín Björg
Jóhannsdóttir
✝ Jóhann Sigurð-ur Jónsson,
Siggi Bessa, fædd-
ist 7. október 1925
í Neskaupstað.
Hann lést á Skjól-
garði, Höfn í
Hornafirði, hinn 7.
október 2019.
Foreldrar hans
voru Jón Bessason
frá Neskaupstað, f.
16. apríl 1874, d. 2.
október 1959, og Þóranna Arn-
olda Pétursdóttir Andreasen
frá Mjóafirði, f. 10. júlí 1907, d.
16. september 1972.
Alsystkini hans voru Ágústa,
f. 3.8. 1927, d. 2.1. 1996, Árni, f.
22.4. 1929, d. 2.10. 2019, Helgi,
f. 29.8. 1930, d. 27.8. 2014, Þor-
geir, f. 6.2. 1932, d. 13.3. 2015,
Bjarnlaugur, f. 27.9. 1933, d.
11.6. 1936, Karen, f. 1.10. 1934,
d. 12.3. 2009, Bjarnlaugur, f.
12.9. 1936, d. 4.11. 1936, Anton,
f. 28.10. 1937, d. 15.10. 1992,
Jón, f. 14.11. 1939, d. 3.7. 2000.
Sammæðra: Pétur Hákon
Björnsson, f. 8.7. 1941, d. 6.5.
17.6. 1953, gift Árna Sigurðs-
syni. Börn þeirra eru Petrína
Margrét (d. 2011), Kristófer Ei-
ríkur og Þorkell. 4) Þorgerður,
f. 11.11. 1956, gift Guðmundi L.
Magnússyni. Dætur þeirra eru
Ingibjörg og Sigrún Bessý. 5)
Margrét Þóra, f. 9.2. 1962, gift
Halldóri Lúðvígssyni. Börn
Margrétar frá fyrra hjónabandi
eru Kristjana, Guðmundur
Theodor, Jóhanna Ellen og Sig-
urður Örn. 6) Ólöf Ragnhildur,
f. 15.9. 1963, gift Bjarka Gunn-
arssyni. Börn þeirra eru Eva
Björt, Marinó Bessi og Rakel
Hulda. Dóttir Ólafar frá fyrra
hjónabandi er Jóhanna Vilborg.
7) Guðrún, f. 4.4. 1968. Sonur
hennar er Brynjar Páll.
Langafabörnin eru 32 og
langalangafabörnin fimm.
Sigurður hóf ungur að aldri
að stunda sjómennsku sem varð
að hans ævistarfi og gerði hann
út eigin báta að mestu leyti all-
an sinn starfsferil. Síðustu þrjá-
tíu árin stundaði Sigurður sjó-
mennsku við hlið sinnar ást-
kæru eiginkonu, eða allt til
ársins 2015, þá orðinn níræður
að aldri. Hann gerði út bátinn
sinn Glað SU 97 allt til ársins
2019.
Útför Sigurðar fer fram frá
Djúpavogskirkju í dag, 19. októ-
ber 2019, kl. 13.
2005. Samfeðra:
Sigríður, f. 19.6.
1900, d. 18.11.
1965, Mettkín, f.
23.9. 1905, d. 19.11.
1905, Pétur, f. 23.3.
1907, d. 4.11. 1969,
Ingibjörg, f. 28.10.
1910, d. 6.2. 1918.
Eiginkona Sig-
urðar til 70 ára var
Hulda Kristófers-
dóttir frá Holti á
Djúpavogi, f. 19.7. 1925, d. 1.10.
2015. Árið 1947 byggðu þau
húsið sitt Dagsbrún á Djúpavogi
og bjuggu þar öll sín búskap-
arár. Börn Sigurðar og Huldu
eru: 1) Þráinn, f. 12.12. 1948,
giftur Emiliönu Lovísu, dætur
þeirra eru María Emily og Þór-
unn Amanda. Börn Þráins frá
fyrra hjónabandi eru Unn-
steinn, Hulda Sigurdís og Katr-
ín Birna. 2) Jóna Sigurbjörg, f.
19.12. 1950, sambýlismaður
hennar er Mustafa M. Koca.
Dætur Jónu frá fyrra hjóna-
bandi eru Kristbjörg, Ásta Huld
og Íris Sif. 3) Sigurbjörg, f.
Elsku pabbi. Þegar þú
kvaddir vorum við á leiðinni til
þín, ætluðum að heimsækja þig
á afmælisdaginn en kallið kom
og þú sáttur við að fara. Ég
trúi því að mamma hafi tekið á
móti þér á afmælisdaginn þinn
með vöfflum og kaffi og þið
notið veitinganna saman. Með
söknuði kveð ég þig pabbi minn
en minningarnar lifa í hjörtum
okkar. Á langri lífsleið er ekki
bara sól og sæla en þið mamma
voruð svo sannarlega sólarmeg-
in í lífinu. Þið megið vera stolt
af því hver þið voruð og af
verkum ykkar. Dugnaður og
iðjusemi fleytti ykkur áfram
eins og svo mörgum af ykkar
kynslóð. þið bjugguð fjölskyld-
unni fallegt og notalegt heimili,
húsið ykkar Dagsbrún, þangað
var alltaf gott að koma til ykk-
ar með barnabörnin, sem eru
orðin mörg. Það er margs að
minnast og ofarlega í huga mér
eru gönguferðirnar sem var
farið svo iðulega í á sunnudög-
um og haft nesti með í för, sem
gerði þetta allt meira spenn-
andi. Berjaferðirnar eru
ógleymanlegar þegar farið var
á bátnum yfir fjörðinn og lagt
við klettana fyrir neðan Skála,
þetta voru sannkallaðar ævin-
týraferðir. Það var ekki alltaf
hægt að fara í næstu verslun og
kaupa það sem vantaði og þá
varð að bjarga sér, ég man sér-
staklega eftir sleðunum sem þú
gerðir fyrir okkur og hillunum
sem þú smíðaðir í herbergin
okkar enda flottar hillur.
Mamma var mikil húsmóðir,
saumaði föt á okkur krakkana,
prjónaði, bakaði og enginn bak-
aði eins góðar kleinur, hún var
líka listakokkur. Þó svo að við
værum mörg í heimili þá voru
allir velkomnir í Dagsbrún til
ykkar og oft var margt um
manninn hjá okkur sem gerði
lífið svo sannarlega skemmti-
legra. Þú hafðir gaman af því
að segja frá og hafðir einstaka
hæfileika á því sviði og áttir
auðvelt með að fá fólk til að
hlæja. Þið mamma voruð mjög
náin og það var aðdáunarvert
hve vel þú hugsaðir um hana
síðustu árin hennar. Þið voruð
okkur góð fyrirmynd og ég er
sannarlega stolt af því að hafa
átt ykkur sem foreldra.
Elsku pabbi, í dag kveð ég
þig í hinsta sinn en minningin
um þig og mömmu mun lifa í
hjörtum okkar. Ég trúi því að
þið séuð saman á ný og siglið
um heimsins höf. Takk fyrir
allt elsku pabbi.
Þú vakir, faðir vor,
og verndar börnin þín,
svo víð sem veröld er
og vonarstjarna skín,
ein stjarna hljóð á himni skín.
(Sigurbjörn Einarsson)
Hvíldu í friði.
Þín dóttir,
Ólöf Ragnhildur.
Fallinn er frá Sigurður Jóns-
son í Dagsbrún, Siggi Bessa
eins og við vinir og vandamenn
þekktum hann. Það má segja
að Siggi og hans fjölskylda hafi
verið hluti af daglegu lífi fjöl-
skyldu minnar sem bjó í Hátúni
um og yfir 50 ár, enda ekki
margir metrar á milli heimila
okkar sem bjuggum þar og fjöl-
skyldunnar í Dagsbrún. Þessar
tvær fjölskyldur reistu sér hús
á hæðinni fyrir ofan voginn á
Djúpavogi á Holtshæðinni upp
úr 1950 og bjuggu þar öll sín
búskaparár. Það var mikið líf á
Holtshæðinni, ellefu börn í
þessum tveimur húsum og sjö
fullorðnir. Það reyndi því oft á
þolinmæði foreldra okkar þegar
uppátækin fóru yfir ákveðin
mörk.
Siggi var natinn við okkur
krakkana, umburðarlyndur.
Fór með okkur á vorin út í eyj-
ar til að tína egg, en í þá daga
voru eyjarnar úti á Búlands-
nesinu margar hverjar ekki
landfastar. Þá óð Siggi með
okkur á bakinu yfir sundin milli
lands og eyja.
Siggi var sjómaður alla sína
tíð. Reri á bátum frá Djúpa-
vogi, oftar en ekki sem skip-
stjóri.
Hann var glúrinn sjómaður,
fiskinn og þekkti miðin vel.
Lengst af gerði hann út sína
eigin báta.
Það var ekki óalgengt að
hann gaukaði að okkur krökk-
unum fiski til að fara með heim
til foreldra okkar.
Oftar en ekki endaði fisk-
urinn hjá Sigrúnu og Halldóri
sem ráku verslun í Framtíðinni,
þar sem við fengum ýmis sæt-
indi að launum.
Ég hafði mikið dálæti á
Sigga Bessa, fannst hann
ákveðin fyrirmynd á upp-
vaxtarárum mínum á Djúpa-
vogi. Tímanum var því oft eytt í
beitningarskúrnum hjá honum.
Hann var natinn við að leið-
beina manni við línubeitn-
inguna.
Eftir að hafa ná tökum á
beitningunni var markmiðið að
beita sem mest og fá að launum
línuróður með honum og félaga
hans. Ég man eftir róðri með
línu vestur að Hvítingum með
þeim félögum á Jakobi NK,
Gísla og Sigga Bessa.
Eftir að búið var að draga
línuna og ganga frá var ég sett-
ur við stýrið og þeir félagar
lögðu sig.
Mér var sagt að stefna á
ákveðin mið við Papey og þegar
þangað væri komið að beygja
þá inn í Sandeyjarálinn og
vekja þá félaga. Allt gekk þetta
vel og stoltur 13 ára peyi lærði
þar hvernig siglt væri frá Hvít-
ingum inn á Djúpavog.
Ég kveð þennan hægláta og
vingjarnlega 94 ára öðling með
ákveðnum söknuði. Mann sem í
tvígang á langri ævi var nánast
talinn af.
Í fyrra skiptið þegar bátur
sem hann var á hraktist á sjó
vélarvana í átta daga og þegar
skot úr byssu hans fór í höfuðið
á honum með þeim afleiðingum
að honum var ekki hugað líf.
Þegar maður lítur um öxl og
fer yfir þá þætti sem skipta
máli í lífinu, þá er umhverfið
sem maður elst upp í þar stór
þáttur og þar með nágrannar. Í
þeim málum hefði ég ekki viljað
breyta neinu. Hvíldu í friði
kæri vinur.
Ólafur Áki Ragnarsson.
Jóhann Sigurður
Jónsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann