Morgunblaðið - 19.10.2019, Qupperneq 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Blár vinur í stofunni,
yndislegur litur sem nýtur
sín vel í flestum rýmum.
Skoðaðu litaúrvalið
okkar á slippfelagid.is
Notalegur
50 ára Jóhanna ólst
upp í Skerjafirði í
Reykjavík en býr í
Kópavogi. Hún er
lyfjafræðingur að
mennt frá Háskóla Ís-
lands og starfar sem
ábyrgðarhafi hjá
Actavis. Jóhanna hefur gaman af því
að fara í fjallgöngu og mun fara upp á
Þyril í tilefni dagsins. Hún hefur einnig
gaman af því að syngja og hefur verið
í kór.
Börn: Steinar Andri Einarsson, f.
1993, Grétar Atli Einarsson, f. 1996,
og Björk Sigríður Steinarsdóttir, f.
2007.
Foreldrar: Sveinn Jónsson, f. 1935,
löggiltur endurskoðandi, búsettur í
Mosfellsbæ, og Ásta Ólafsdóttir, f.
1932, fyrrverandi skrifstofumaður,
búsett í Reykjavík.
Jóhanna Þyri
Sveinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gamalt mál úr fortíðinni lifnar við og
kemur þér á óvart. Einhver kemur þér ræki-
lega á óvart.
20. apríl - 20. maí
Naut Fólk veitir þér eftirtekt í dag. Þér
finnst best að vera í einrúmi og reyndu af
fremsta megni að fá tíma með sjálfum þér á
degi hverjum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er komið að því að vinur þinn
verður að endurgjalda þér greiða. Reyndu
að fara gætilega og láta þér ekki sjást yfir
smáatriði, lestu smáa letrið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ekki er ósennilegt að þú hafir
áhyggjur af einhverju sem tengist vinnunni.
Mundu að margur verður af aurum api.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gerðu þér grein fyrir því að þú nærð
engum árangri án fórna og fyrirhafnar.
Löngun þín til að eignast hlutina er ekki í
neinu samræmi við þarfir þínar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Töfrar verða til hvar sem er og hve-
nær sem er. Allir hafa gott af einhverjum
breytingum þótt bylting sé ekki á dagskrá.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú færð fullt af góðum hugmyndum
sem bætt gætu stöðu þína hvað varðar
tekjur. Ef þú heldur svona áfram að tala áð-
ur en þú hugsar þá muntu örugglega missa
eitthvað út úr þér á óheppilegum tíma.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Skipulagning er lykilorð fyrir þá
sem vilja færast upp á við í valdabrölti.
Kíktu eftir tækifærum til þess að ganga í
augun á öðrum þeim sem þú hefur auga-
stað á.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu á verði gagnvart tungu-
lipru fólki og mundu að ekki er það alltaf
sannleikurinn sem hrýtur af munni þess.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það sem þú veist ekki getur ekki
skaðað þig, en það gæti sóað tíma þínum.
Njóttu þess að vera með öðrum í starfi og
leik því félagsskapurinn mun endurnæra
þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Líttu á björtu hliðarnar og gerðu
sem flest sem gleður þig. Láttu ekki brjóta á
rétti þínum, sæktu það sem er þitt af öryggi
og festu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft ekki að takast á við ævintýr-
ið ein/n, hetjurnar hafa þegar rutt brautina.
Ekki gera hlutina með hangandi hendi.
spilamennskunni. „Ég vann verka-
mannavinnu á bryggjunni frá því
ég man eftir mér. Svo fór ég í
byggingarvinnu; ég vann við bygg-
ingu Sólvangs, ég vann líka í tækj-
unum í Íshúsi Hafnarfjarðar og á
Mölunum, líka á bílaverkstæði, við
réttingar, logsuðu og sprautun.“
Guðmundur hóf einnig kokkanám
en það starf passaði illa við spila-
mennskuna svo hann hætti því
námi. Síðast vann hann hjá Skatt-
stofunni í Reykjavík, frá 1978 til
2001.
G
uðmundur Steingrímur
Steingrímsson er
fæddur 19. október
1929 á Norðurbraut-
inni í Hafnarfirði.
Hann ólst upp í Hafnarfirði og átti
heima lengst af í Arahúsi við Ara-
stétt ofan Thorsplans við Strand-
götuna og einnig á Norðurbraut-
inni.
„Systir mín Þuríður lærði á gítar
og meðal annars um ýmsar takt-
tegundir. Hún miðlaði þekkingu
sinni áfram til mín, notaði fingurna
til útskýringar og sló taktinn á
borðplötuna í eldhúsinu. Ég varð
fljótt hugfanginn af þessum galdri
og fór að berja í sífellu á allt sem
fyrir varð, bæði heima og í skól-
anum.“
Guðmundur gekk í Barnaskóla
Hafnarfjarðar, sem síðar hét Lækj-
arskóli. Hann var í sveit á Bala á
Suðurnesjum og einnig í Norð-
urkoti á Kjalarnesi og líkaði svo vel
þar að hann var tvo vetur í skóla á
Klébergi á Kjalarnesi.
„Við Eyþór Þorláksson vorum
saman í Lækjarskóla og kynntumst
þar. Hann spurði mig einu sinni
hvort ég væri eitthvað að spila og
bauð mér að grípa í trommusett
sem hann var með í láni og ég fór
heim til hans á Öldugötunni og við
fórum að spreyta okkur tveir.“ Þeir
fóru ásamt öðrum að spila á árshá-
tíðum og fleiri skemmtunum í
Hafnarfirði en fyrsta alvöruballið
var í félagsheimilinu Vatnsleysu í
Biskupstungum 1944. Þar léku
Eyþór á gítar og harmonikku, Guð-
mundur á trommur og Bragi
Björnsson á harmonikku. Guð-
mundur keypti fyrsta trommusettið
sitt árið 1945 og var það Ludwig-
sett, allt úr timbri nema skrúf-
urnar.
Guðmundur vakti athygli þegar
hann starfaði með Gunnari Orms-
lev saxófónleikara og varð lands-
kunnur sem trommari í KK-
sextettinum. Síðar gekk hann til
liðs við Hljómsveit Hauks Mortens
og Hljómsveit Ragnars Bjarna-
sonar, sem voru meðal vinsælustu
hljómsveita landsins á sínum tíma.
Guðmundur vann alltaf með
Seinni hluta ævinnar hefur Guð-
mundur mest fengist við djass-
tónlist og hann átti stóran þátt í
þeirri miklu djassvakningu sem
gengið hefur yfir landið frá árinu
1975. Fyrir bragðið hefur hann
stundum verið kallaður „Papa
Jazz“ meðal samstarfsmanna og
djassunnenda.
Meðal þeirra sem Guðmundur
hefur leikið með síðustu áratugina
eru Tríó Guðmundar Ingólfssonar,
Jazzmiðlar, Tríó Björns Thorodd-
sen og fjöldi annarra djasssveita.
Hann hefur gjarnan veitt ungu tón-
listarfólki brautargengi og aðstoðað
það við að kynnast töfrum sveifl-
unnar. Þrátt fyrir mikil afköst á
löngum ferli hefur Guðmundur ekki
gefið neitt út í eigin nafni. Hann
hefur jafnan kosið að falla inn í
hópinn og vera í skugga annarra
tónlistarmanna, þó svo að flestir
séu sammála um að hann hafi jafn-
an verið fremstur meðal jafningja.
Meðal hljómplatna sem Guð-
mundur hefur spilað á eru KK-
sextett og Ragnar Bjarnason – Óli
rokkari, Vor við sæinn og fleiri lög,
1957, Skapti Ólafsson – Allt á floti
og fleiri lög, 1958, Samstæður 1970/
1980, Viðar Alfreðsson – Spilar og
spilar, 1980, Guðmundur Ingólfsson
– Nafnakall, 1982, Haukur Mortens
– Melódíur minninganna, 1985,
Guðmundur Ingólfsson – Þjóðlegur
fróðleikur, 1987, Björk Guðmunds-
dóttir & Tríó Guðmundar Ingólfs-
sonar – Gling gló, 1990, Tríó
Björns Thoroddsen – Við gengum
svo léttir, 1993, KK-sextett – Gull-
árin, 1998, Ljóð & Jazz – Október-
lauf, 2000
„Þegar ég lít til baka þá er mér
einna minnisstæðast í músíkinni
Guðmundur Steingrímsson trommuleikari – 90 ára
Morgunblaðið/Styrmir Kári
KK-sextett og Raggi Bjarna árið 1956 F.v.: Ólafur Gaukur, KK, Guð-
mundur, Árni Scheving, Raggi Bjarna, Kristján Magnússon og Jón bassi.
Papa Jazz enn í fullu fjöri
Djassinn dunar Frá vinstri: Reynir Sigurðsson, Gunnar Hrafnsson, Guðmundur og Björn Thoroddsen árið 2015.
40 ára Pamela ólst
upp í Connecticut-
ríki í Bandaríkjunum
en fluttist til Íslands
2008. Hún tók sam-
eiginlega doktors-
gráðu frá Háskóla Ís-
lands og Háskólanum
í Washington-ríki í líffræði. Hún er
fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofn-
un. Pamela hefur gaman af fjall-
göngum, siglingum og að stunda skíði.
Maki: Hafþór Hafsteinsson, f. 1983,
verkstjóri hjá Félagsbústöðum Reykja-
víkurborgar.
Börn: Sævin Ævar, f. 2014, og Sóley
Þóra, f. 2016.
Foreldrar: Charles H. Woods, f. 1935,
teiknaði pípulagnir í kafbáta, og
Hedwig Woods, f. 1940, fyrrverandi
skrifstofumaður. Þau eru búsett í
Connecticut.
Pamela Jean
Woods
Til hamingju með daginn