Morgunblaðið - 19.10.2019, Page 41
DÆGRADVÖL 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
þegar Eyþór Þorláksson og ég
kynntumst Gunnari Ormslev og
hann byrjaði að æfa með okkur.
Okkur fannst svo stórbrotið að fá
mann með okkur sem sagðist ekk-
ert vera búinn að spila en spilaði
svo heilu Glenn Miller-sólóin.“
Guðmundur er enn í fullu fjöri
og spilaði síðast á Menningarnótt í
Pennanum/Eymundsson og hann
mun meðal annars spila á Sól-
heimum í desember.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Helga
D. Benediktsdóttir, f. 22.6. 1944.
Foreldrar hennar voru hjónin
Benedikt Baldvin Guðmundsson, f.
1907, d. 1960, og Svandís Vil-
hjálmsdóttir, f. 1910, d. 1988. Fyrri
eiginkona Guðmundar var Sesselja
Unnur Guðmundsdóttir, f. 29.3.
1930, d. 10.1. 2018.
Börn Guðmundar og Unnar eru
Kjartan Guðmundsson, f. 14.11.
1948, hann er búsettur í Hafnar-
firði og á tvö börn; Guðrún Guð-
mundsdóttir, f. 7.7. 1954, hún er
búsett á Akranesi og á tvö börn;
Lára Guðmundsdóttir, f. 20.6. 1956,
hún er búsett í Danmörku og á
einn son; Steingrímur Guðmunds-
son, f. 4.1. 1958, hann er búsettur í
Hafnarfirði og á tvö börn; Helga
Guðmundsdóttir, f. 17.7. 1962, hún
er búsett í Hafnarfirði og á fjögur
börn.
Systkini Guðmundar voru Þur-
íður, f. 18.10. 1924, d. 2.10. 1999;
Helga, f. 22.9. 1926, d. 5.5. 2016; .
Hálfsystkini Guðmundar sam-
mæðra voru Guðný, f. 23.4. 1914, d.
29.5. 1983, og Gísli Ásmundur, f.
11.3. 1918, d. 3.12. 1932.
Foreldrar Guðmundar voru hjón-
in Steingrímur Steingrímsson, f.
30.9. 1884, d. 11.10. 1965, verka-
maður í Hafnarfirði, og Hallgerður
Lára Andrésdóttir, f. 10.11. 1888, d.
9.11. 1980, verkakona í Hafnarfirði.
Guðmundur
Steingrímsson
Hallgerður Þórhalladóttir
húsfreyja á Nesjavöllum
Grímur Þorleifsson
refaskytta og bóndi á
Nesjum, Brúsastöðum
og Nesjavöllum
Helga Grímsdóttir
húsfreyja víða á Reykjanesi, í Ölfusi og Hafnarfi rði
Hallgerður Lára Andrésdóttir
verkakona í Hafnarfi rði
Andrés Guðmundsson
bóndi víða á Reykjanesi, í
Ölfusi og Hafnarfi rði
Kristín Andrésdóttir
húsfreyja á Álftanesi
Guðmundur Guðmundsson
sjómaður á Álftanesi
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja í Amsturdammi
Eggert Eggertsson
bóndi í Amsturdammi
í Mosfellssveit
Þuríður Eggertsdóttir
húsfreyja á Nesjum
Steingrímur Jónsson
bóndi í Nesjum á Hvalsnesi
Helga Brynjólfsdóttir
húsfreyja og
yfi rsetukona í Hruna
Jón Steingrímsson
prófastur í Hruna
Úr frændgarði Guðmundar Steingrímssonar
Steingrímur Steingrímsson
verkamaður í Hafnarfi rði
Morgunblaðið/Júlíus
Afmælisbarnið Guðmundur.
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að bjóða hinn
vangann.
GEISP LEGGST MORGUNN-INN VEL Í ÞIG? UMFERÐIN ER EKKI SVO
SLÆM
HALLÓ?! ÞAÐ
ER KOMIÐ AÐ
PÍLUKASTINU!
STRÁKAR, VILJIÐ
ÞIÐ EKKI SKEMMTA
YKKUR?
LÍFIÐ
„ÞAÐ ER FERÐALAGIÐ EN EKKI
BRJÁLÆÐINGURINN SEM ÞÚ NEYÐIST TIL AÐ
SITJA VIÐ HLIÐINA Á SEM SKIPTIR MÁLI.”
„STEBBI, ÞAÐ ER EINHVER GAUR HÉRNA.
ÉG HRINGI Í ÞIG EFTIR FIMM MÍNÚTUR.”
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Hagur sá í höndum er.
Í hamri jafnan unir sér.
Mæniásinn uppi ber.
Afar smár er þessi ver.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa
lausn:
Dverghög er sú dánumær,
með dvergi í bergi’ er unun kær.
Trédvergur markar þar mænisás
og minnsta fljóð, dvergur, skellti í lás.
Þannig leysir Helgi R. Einarsson
gátuna:
Heldur smár, en hagur er,
í hamrinum á kostum fer
og mæniásinn uppi ber.
Allt við dverginn passar hér.
Sigmar Ingason svarar:
Dverghagir jafnan dunda sér við smíð.
Dvergarnir una í steinum ár og síð.
Án „dverga“ myndi mænir niður falla.
Mætti líka dverga stutta karla kalla.
Eysteinn Pétursson á þessa
lausn:
Gáta þessi þung ei er.
Því má vísu gera.
Lausnin dvelur dátt hjá mér:
Dvergur mun það vera.
Sjálfur skýrir Guðmundur
gátuna þannig:
Dvergur halur hagur er.
Í hamri dvergur unir sér.
Dvergur ás þann uppi ber.
Eins og dvergur lítill ver.
Þá er limra:
Við Jón sterka barðist Bergur,
og þó Bergur sé smár eins og dvergur,
þá rotaði hann
þennan rammeflda mann,
og því var hann nefndur Þorbergur.
Og að lokum ný gáta eftir Guð-
mund:
Gáta bætist gátur við,
góðu vinir Braga,
óskaplegt er annríkið
alla laugardaga:
Fráleitt þessi frómur er.
Frið í nafni sínu ber.
Vera skar á kerti kann.
Kanntu spilaleikinn þann?
Þorsteinn Erlingsson orti um
Bjarna Thorarensen:
Þó að skyggi yfir öld
og ýmsir tónar deyi,
þá verður hvorki þögn né kvöld
á þínum bjarta vegi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á gulli verða
dvergarnir ginntir
Börn og brúðhjón
Hægt er að senda
mynd og texta af
slóðinni mbl.is/
islendingar eða á
islendingar@mbl.is
ömlun, málhömlu
sykursjúkir, endó
úklingar, psorias
æfisvefn, Alzheim
addaðir, ADHD, a
sjónskertir, Croh
EKKI
Með því að mæta ekki þörfum fatlaðs
fólks er verið að úthýsa því úr samfélaginu.
Bjóðum betur.