Morgunblaðið - 19.10.2019, Page 42
TINDASTÓLL
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Það eru forréttindi að vera úr
litlum bæ og geta alltaf keppt um
titilinn með sínu heimaliði,“ segir
Pétur Rúnar Birgisson, 23 ára leik-
maður Tindastóls. Sauðkrækingar
hafa í vetur, líkt og nær allan
meistaraflokksferil Péturs, á að
skipa afar öflugum leikmannahópi
sem ætlar sér að berjast um titlana
á þessari körfuboltaleiktíð.
Pétur lék sinn fyrsta leik á tíma-
bilinu í fyrrakvöld í sigri á Stjörn-
unni, en hásinarmeiðsli héldu hon-
um frá keppni í fyrstu tveimur
leikjunum; tapi gegn Keflavík og
sigri á Njarðvík. Eftir að hafa
óvænt fallið út í 8-liða úrslitum
Dominos-deildarinnar í fyrra er lið
Tindastóls gjörbreytt, með fjóra
nýja erlenda leikmenn og nýtt
þjálfarateymi, en Pétur segir Stól-
ana líta á sig sem meistarak-
andídata:
„Klárlega. Ég held að allir í lið-
inu geri það. Við getum farið alla
leið með þetta en það er aftur á
móti langur vegur framundan, og
núna snýst þetta bara um að bæta
sig dag frá degi. Okkur finnst við
vera með mjög sterkan hóp og það
sýndi sig í gær [fyrrakvöld] þegar
við unnum liðið sem spáð er í 2.
sæti.“
Bandaríkjamaðurinn Gerel Sim-
mons, hinn 38 ára gamli Króati
Jasmin Perkovic og Slóvenarnir
Sinisa Bilic og Jaka Brodnik hafa
bæst í leikmannahópinn sem ann-
ars er að öllu leyti skipaður Sauð-
krækingum (Hannes Ingi Másson
er reyndar frá Hvammstanga, en
hefur spilað með Tindastóli síðan í
grunnskóla). Hvernig hefur gengið
fyrir útlendingana að aðlagast og
hvernig leikmenn eru þetta?
„Þeir eru allir að reyna að koma
sér inn í samfélagið, eru jákvæðir
og opnir, alltaf tilbúnir að heilsa
krökkunum og svona. Þeir hafa að-
eins kvartað yfir því hvað búið er
að vera kalt, en þeir skella sér bara
í góðar úlpur,“ segir Pétur léttur.
Hann leggur áherslu á að allir séu
nýju leikmennirnir afar viðkunnan-
legir og bendir á að þeir hafi
stuðning hver af öðrum.
Íslenskur þjálfari í fyrsta
sinn í langan tíma
„Gerel er ótrúlegur skorari.
Hann er með svakalegt fyrsta skref
og getur nánast skorað að vild.
Jaka, Sinisa og Jasmin kunna
körfubolta rosalega vel. Svo eru
þeir um eða yfir 2 metrar og kunna
að beita skrokknum. Við erum að
spila svolítið öðruvísi en í fyrra,
fara alltaf inn í teig og nýta okkur
hæðarmismun þar sem hann er.
Þeir eru ótrúlega góðir í að lesa að-
stæður, hvenær þeir eiga að klára
færið og hvenær þeir eiga að senda
út. Þetta eru líka toppmenn utan
vallar, sem er mjög mikið lykil-
atriði í þessu,“ segir Pétur. Hann
er afar ánægður með Baldur þjálf-
ara, sem nýtir til dæmis nokkrar
mínútur í upphafi hverrar æfingar í
hugleiðslu, til að skerpa á einbeit-
ingu manna:
„Það er gaman að hafa íslenskan
þjálfara í fyrsta sinn í 7-8 ár. Hann
er með sína sýn og fer alla leið í
henni. Hann er að vinna í að fylla
okkur sömu trú, með hugleiðslu og
svona, og svo lifir hann algjörlega
sjálfur eftir því sem hann predikar.
Hann er mjög flottur, bæði á æf-
ingum og svo í leikjunum sjálfum,
og Jan aðstoðarþjálfari hjálpar
líka.“
Nýta hæðar-
mismun og
hugleiðslu
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Lykilmaður Pétur Rúnar Birgisson er mikilvægur hlekkur í mikið breyttu
liði Tindastóls sem hann segir að stefni ótrautt á meistaratitilinn í vetur.
Tindastólsmenn setja stefnu á titil
Erlendu leikmennirnir smella vel inn
42 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
NJÖRVI & NJÖRVI+
Öflug árekstrarvörn
Njörvi er öflugur stólpi til
að verja mannvirki og
gangandi fólk. Hentar líka
vel til skyndilokana vega
og til að afmarka
akstursleiðir og bílaplön.
MIÐHERJAR:
Helgi Rafn Viggósson
Jasmin Perkovic
Þjálfari: Baldur Þór Ragnarsson.
Aðstoðarþjálfari: Jan Bezica.
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: 2018.
Tindastóll tapaði fyrir Keflavík
á heimavelli í fyrstu umferð
deildarinnar en hefur síðan unnið
Njarðvík á útivelli og Stjörnuna á
heimavelli. Tindastóll sækir Val
heim næsta fimmtudag.
BAKVERÐIR:
Eyþór Lár Bárðarson
Friðrik Þór Stefánsson
Gerel Simmons
Hannes Ingi Másson
Pétur Rúnar Birgisson
Viðar Ágústsson
Örvar Freyr Harðarson
FRAMHERJAR:
Axel Kárason
Hlynur Freyr Einarsson
Jaka Brodnik
Sinisa Bilic
Lið Tindastóls 2019-20
KOMNIR:
Gerel Simmons frá Rilski Sportist
(Búlgaríu)
Jaka Brodnik frá Þór Þ.
Jasmin Perkovic frá Inter Brat-
islava (Slóvakíu)
Sinisa Bilic frá Rogaska Crystal
(Slóveníu)
FARNIR:
Brynjar Þór Björnsson í KR
Danero Thomas í Hamar
Dino Butorac, óvíst
Helgi Freyr Margeirsson, hættur
Ragnar Ágústsson í Þór Ak.
Urald King í Maritime Boulogne
(Frakklandi)
Breytingar á liði Tindastóls
Það verður fróðlegt að fylgjast með Baldri
Ragnarssyni á sínu öðru ári sem þjálfara eftir frá-
bæra byrjun á nýliðaárinu sínu.
Pétur Rúnar Birgisson hefur verið meiddur í
upphafi móts en það er lykilatriði fyrir Stólana að
fá sinn besta Íslending í gang sem fyrst.
Stólarnir gera klárlega tilkall til allra titla sem
eru í boði í vetur en það eina sem ég hef áhyggjur
af er hvernig tekst að búa til sterka liðsheild með fjórum erlendum at-
vinnumönnum.
Síðasta vetur toppuðu Stólarnir alltof snemma og það hlýtur að
vera markmiðið í vetur að toppa á réttum tíma í úrslitakeppninni.
Benedikt Guðmundsson
um Tindastól
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Varmá: Afturelding – HK...................... L14
Framhús: Fram – Stjarnan ................... L16
Vestmannaeyjar: ÍBV – Haukar........... L16
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Kórinn: HK U – ÍBV U........................... S14
TM-höllin: Stjarnan U – Víkingur......... S18
Hleðsluhöllin: Selfoss – Fjölnir ........ S19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Dalhús: Fjölnir – Keflavík b .................. L16
Hertz-hellirinn: ÍR – Grindavík b ......... L16
Sauðárkrókur: Tindastóll – Njarðvík ... L16
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Egilshöll: Fjölnir – SA ...................... L16.45
Enski boltinn á Síminn Sport
Everton – West Ham ........................ L11.30
Chelsea – Newcastle ......................... L14.00
Crystal Palace – Manchester City ... L16.30
Manchester United – Liverpool ....... S15.30
UM HELGINA!
Eitt
ogannað
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur
verið ráðinn þjálfari karlaliðs Keflavík-
ur í knattspyrnu, við hlið Eysteins
Haukssonar sem hefur stýrt liðinu frá
því í júlí 2018. Milan Stefán Jankovic
var Eysteini til aðstoðar í ár en er kom-
inn í nýtt starf sem yfirmaður knatt-
spyrnumála í Grindavík. Sigurður
Ragnar þjálfaði kvennalandslið Íslands
2007 til 2013 og karlalið ÍBV 2014 en
var síðan aðstoðarþjálfari Lilleström í
Noregi, og aðalþjálfari Jiangsu Suning
í Kína og síðan kínverska kvennalands-
liðsins. Keflavík hafnaði í 5. sæti 1.
deildar á nýliðnu tímabili.
Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin
Páll Gústavsson er á heimleið frá
danska handknattleiksliðinu Skjern að
þessu tímabili loknu. Frá þessu var
greint á vef Skjern í gær og haft eftir
Björgvini að hann væri á heimleið af
fjölskylduástæðum en hygðist spila
handbolta í tíu ár til viðbótar.