Morgunblaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 43
ÍÞRÓTTIR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Grand Hótel Reykjavík
Sigtún 38 | 105 Reykjavík | 514 8000 | info@grand.is | islandshotel.is
VILLIBRÁÐARBRUNCH
3. nóvember
5.800 kr. á mann
Börn 6-11 ára fá 50% afslátt
5 ára og yngri fá frítt
Villibráðarhlaðborð
26. október
2. nóvember
VILLIBRÁÐARHLAÐBORÐ
VILLTA KOKKSINS Á GRAND HÓTEL
15.900 kr. á mann
Pantaðu borð á islandshotel.is
veitingar@grand.is
eða í síma 514-8000
Úlfar Finnbjörnsson, yfirkokkur
á Grand Hotel Reykjavík, reiðir fram
60 ómótstæðilega veislurétti
úr úrvals villibráð
UPPSELT
Það er ekki skrýtið að fólk
klóri sér aðeins í höfðinu yfir um-
spilinu sem nú eru yfirgnæfandi
líkur á að Ísland taki þátt í í
undankeppni EM karla í fótbolta.
Með því að tengja umspilið
Þjóðadeildinni hefur UEFA flækt
málið mjög, og það verður ekki
endanlega skýrt fyrr en 22. nóv-
ember þegar dregið verður um
endanlega röðun í umspilshópa
og staðsetningu úrslitaleikja.
Ég rýndi aðeins í kristalskúl-
una fyrir síðustu umferðirnar í
undankeppninni, sem fara fram
um miðjan næsta mánuð, og mér
finnst mjög líklegt að að þeim
loknum standi Ísland eftir sem
eina A-þjóðin (samkvæmt Þjóða-
deildarflokkun) í „okkar“ um-
spili. Um tíma var útlit fyrir að
Sviss gæti orðið með í þessu
umspili en sigur Sviss gegn Ír-
landi á þriðjudag breytti því.
Þess vegna tippa ég núna á
að Ísland fari í umspil með einni
B-þjóð (Slóvakíu, Írlandi eða
Norður-Írlandi) og tveimur C-
þjóðum (úr hópi Búlgaríu, Ísraels
og Rúmeníu). Um það hvaða lið
koma úr hvorum sviga verður
dregið 22. nóvember. Ef Írar
kæmust á EM á kostnað Dana
(úrslitaleikur í Dublin 18. nóv-
ember) þá myndi Ísland auðvitað
ekki geta mætt Írlandi en fengi
Slóvakíu eða Norður-Írland með í
umspilið. Ísland er öruggt um
heimaleik 26. mars, hvernig sem
farið verður að því að koma því í
kring, við C-þjóð.
Löngu áður en umspilið
hefst, eða 30. nóvember, ætlar
UEFA að draga í riðla lokakeppni
EM. Þar munum við Íslendingar
fylgjast með því í hvaða riðli
„sigurvegari A-umspils“ lendir.
Því miður eru sigurvegarar um-
spilanna í fjórða og neðsta styrk-
leikaflokki, en Ísland var svo sem
einnig í þeim flokki áður en liðið
fór á EM í Frakklandi 2016 og
komst þó áfram og í 8-liða úrslit.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
FRJÁLSAR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Maður hlýtur að fá að ferðast aðeins
niður í móti eftir þessa bröttu brekku
sem árið 2019 var,“ segir Guðni Valur
Guðnason, kringlukastari og ólymp-
íufari. Guðni átti besta frjálsíþrótta-
afrek Íslendinga á árinu 2019 og var
eini fulltrúi þjóðarinnar á heims-
meistaramótinu í Doha, en engu að
síður var árið að mörgu leyti líkt og
martröð fyrir þennan jákvæða og
upplitsdjarfa Mosfelling. Hann er
staðráðinn í að keppa á sínum öðrum
Ólympíuleikum næsta sumar.
„Það fór einhvern veginn allt úr-
skeiðis sem gat farið úrskeiðis á
þessu ári,“ segir Guðni við Morgun-
blaðið. Hans besti árangur á árinu, og
um leið besti árangur Íslendings á
árinu, kom í Eistlandi í lok maí þegar
hann kastaði kringlunni 64,77 metra.
Þeim árangri náði Guðni Valur eftir
að hafa legið lengi á sjúkrahúsi og áð-
ur en hann meiddist á Smáþjóðaleik-
unum í júní en þau meiðsli hafa trufl-
að hann síðan.
Úr 205 í 60 kg í bekkpressunni
„Ég var veikur í byrjun árs, fékk
lífhimnubólgu og var inni á spítala í
mánuð, og mátti ekki gera neitt í einn
og hálfan mánuð eftir það. Það var
svakalega erfitt að geta ekki æft, sér-
staklega þegar það komu eymslalaus-
ir dagar þar sem maður fann engan
hita eða verki og fannst eins og mað-
ur væri orðinn góður, en gat svo ekki
gert neitt ef maður reyndi. Til að
setja þetta í samhengi þá gat ég lyft
205 kg í bekkpressunni þegar ég
veiktist, var alveg við bætingu og get
lyft meiru núna, en á næstu æfingu
eftir veikindin man ég að ég lyfti 60
kílóum fjórum sinnum, og fannst það
erfitt!“ segir Guðni sem er iðinn við
að henda á loft hundruðum kílóa enda
tröll að burðum.
„Í mars var líkaminn farinn að
venjast æfingaálaginu aftur, ég gat
svo farið að keppa og allt var á réttri
leið eins og sýndi sig svo á þessu móti
í Eistlandi í lok maí þar sem ég kast-
aði mjög vel. Ég fór svo mjög spennt-
ur til Svartfjallalands á Smáþjóða-
leikana, vissi að ég fengi alvöru-
samkeppni um titilinn og að þarna
væru góðar aðstæður, en ég fann
strax í fluginu þangað að mér leið
ekki nægilega vel. Það fór illa um mig
í fluginu og ég gat ekkert hreyft mig,
og daginn eftir var ég svo að skokka
til að teygja aðeins úr mér og fann þá
meiðsli í náranum, líkt og ég hefði
tognað. Samt var ég ekki að gera
neitt, þannig séð.
Ég keppti samt, og náði raunar að
bæta mig í kúluvarpi, en það gekk
ekki vel í kringlunni og síðan þá hef
ég ekki getað beitt mér eins og ég
vildi. Ég er með beinbjúg í vinstra líf-
beininu, sem er einhver bólga í bein-
mergnum, sem ég held að virki þann-
ig að hún veiki allar vöðvafestingar
og það lýsir sér eins og tognun. Ég
þurfti því að hvíla mig, fékk sterasp-
rautu hjá lækni sem hjálpaði til, og
fékk svo grænt ljós á að kasta eftir
þetta. Mér gekk reyndar ótrúlega vel
á æfingum eftir þetta, náði lengri
köstum en ég hef yfirleitt verið að
gera, og þetta var þremur vikum fyr-
ir HM,“ segir Guðni.
Daginn sem Guðni hélt á HM í
Doha, undir lok síðasta mánaðar,
fékk hann enn eitt „kjaftshöggið“ og
Guðni endaði í 32. og neðsta sæti á
mótinu enda ekki nálægt því að kasta
eins og hann getur.
Staðráðinn í að fara til Tókýó
„Maður bjóst við því að maður yrði
feginn að fara á HM og klára stórmót
en svo varð maður bara fyrir von-
brigðum með að hitta akkúrat á
skelfilegan dag. Ég veiktist morgun-
inn sem við flugum út, og þó að ég
hafi verið orðinn fínn af því þegar ég
keppti þá var maður ekki upp á sitt
besta til að „negla á það“ á heims-
meistaramóti. Það var einhvern veg-
inn allt á móti mér á þessu ári,“ viður-
kennir þessi 24 ára gamli frjáls-
íþróttamaður, sem varð í 21. sæti á
Ólympíuleikunum í Ríó 2016. Hann
horfir hins vegar brattur fram á við
og grínast með að vera farinn að geta
pantað mat á japönsku, klár í slaginn
fyrir leikana í Tókýó næsta sumar.
Til að komast þangað þarf hann að
kasta 66 metra eða vera í hópi 32
efstu á heimslistanum sem gefinn
verður út 29. júní (þar hjálpar einnig
að kvóti er á hverja þjóð, svo að há-
marki þrír frá hverju landi keppa í
hverri grein):
„Eins og ég horfi á þetta þá er
markmiðið mitt bara að klára 66
metra kast og tryggja mig inn á Ól-
ympíuleikana. Fyrsta skrefið að því
er að fá nárann til að verða 100%. Ég
hvíli núna, eða er alla vega ekkert að
áreita nárann, hlusta vel á sjúkra-
þjálfara og ef allt verður í lagi þá
finnst mér 100% líkur á að ég nái
þessu lágmarki auðveldlega og Ís-
landsmetið ætti að falla um svipað
leyti,“ segir Guðni kokhraustur.
Hann hefur lengst kastað 65,53
metra hingað til og gangi allt að ósk-
um er kannski ekki svo ýkja langt í
Íslandsmet Vésteins Hafsteinssonar;
67,64 metra.
„Það var allt
á móti mér
á þessu ári“
Guðni Valur tókst á við ýmislegt en
átti samt besta frjálsíþróttaafrek ársins
Ljósmynd/ÍSÍ
Kringlan Guðni Valur Guðnason með kringluna í hendi á Smáþjóðaleik-
unum í Svartfjallalandi í sumar þar sem hann keppti einnig í kúluvarpi.
Þó að átta leikir séu á dagskránni í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
í dag er leikurinn sem flestir bíða
eftir sá eini sem fer fram á morgun.
Klukkan 15.30 að íslenskum tíma
verður flautað til leiks í viðureign
erkifjendanna Manchester United
og Liverpool á Old Trafford en
munurinn á þessum tveimur liðum
hefur sjaldan verið eins mikill og
einmitt núna.
Liverpool er fimmtán stigum og
ellefu sætum á undan United en
þegar átta umferðir eru búnar eru
lærisveinar Jürgens Klopps með
fullt hús stiga, 24 talsins og með
átta stiga forskot á Manchester
City á toppi deildarinnar.
Ole Gunnar Solskjær og hans
menn í Manchester United hafa
hinsvegar aðeins unnið tvo af
fyrstu átta leikjunum, eru með 9
stig í tólfta sætinu, og gætu reynd-
ar verið dottnir niður í sautjánda
sætið áður en flautað verður til
leiks, ef úrslit leikja dagsins í dag
verða þeim óhagstæð.
Liverpool hefur ekki sótt þrjú
stig á Old Trafford í fimm ár en
ætti að eiga meiri möguleika á því á
morgun en oftast áður, miðað við
framgöngu liðanna það sem af er
þessu tímabili.
Óvíst er hvort David de Gea og
Paul Pogba verða með United í
leiknum vegna meiðsla en Liver-
pool virðist vera með alla lykilmenn
sína tiltæka.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í
Everton hefja umferðina í dag á því
að reyna að komast úr fallsæti
deildarinnar þegar þeir fá West
Ham í heimsókn klukkan 11.30. Jó-
hann Berg Guðmundsson verður
hins vegar fjarri góðu gamni vegna
meiðsla þegar Burnley sækir Leic-
ester heim í einum þeirra sex leikja
sem hefjast klukkan 14. vs@mbl.is
Fimmtán stig skilja
erkifjendurna að
AFP
Efstir Jürgen Klopp og Mo Salah
mæta með gott forskot til leiks.