Morgunblaðið - 19.10.2019, Side 44
ÓL 2020
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Tiger Woods, næstsigursælasti kylf-
ingur allra tíma í karlaflokki, segist í
samtali við Reuters leggja allt kapp
á að komast á Ólympíuleikana sem
fram fara í Tókýó næsta sumar.
Keppt var í golfi á leikunum í Ríó
2016 í fyrsta skipti síðan á Ólympíu-
leikunum 1904.
Tiger segir að ólympíuverðlaun
yrði skrautfjöður í hatt sinn, en hann
hefur náð að sigra á öllum risamót-
unum í íþróttinni. Raunar oftar en
einu sinni á þeim öllum. Tiger er 43
ára gamall og bendir á að tækifærin
fyrir sig að komast á Ólympíuleika
verði ekki mörg.
„Ég sé ekki fyrir mér að ég fái
mörg önnur tækifæri til að komast á
Ólympíuleika en á næsta ári. Þegar
leikarnir verða haldnir 2024 verð ég
orðinn 48 ára,“ hefur Reuters eftir
Tiger, en þegar kemur að Ólympíu-
leikunum er ekkert gefið. Þótt Tiger
hafi átt glæsilegan feril flýgur hann
ekki inn á leikana frekar en annað
íþróttafólk.
Eins og í ýmsum öðrum greinum
er gífurleg samkeppni á milli
íþróttafólks í Bandaríkjunum að
komast inn á leikana í sinni grein.
Tiger gerir sér grein fyrir þessu og
segir að erfitt verði fyrir sig að ná
einu af þeim sætum sem í boði eru
fyrir bandaríska kylfinga. Banda-
ríkjamenn gætu mest átt fjóra kylf-
inga í karlaflokki. Sem stendur er
Tiger í 9. sæti heimslistans og eru
fimm landar hans fyrir ofan hann á
þeim lista sem stendur.
Horfði á í Los Angeles
Þegar Tiger Woods var átta ára
gamall var hann áhorfandi á Ólymp-
íuleikum. „Ég sótti Ólympíuleika í
fyrsta skipti þegar þeir voru haldnir
í Los Angeles árið 1984 en nú á ég í
fyrsta skipti á ævinni raunhæfa
möguleika á að keppa sjálfur. Mikil-
vægt er fyrir íþróttina að vera hluti
af Ólympíuleikunum og það hjálpar
til við útbreiðsluna. Íþróttin er orðin
alþjóðleg og breiðir enn úr sér. Ég
tel að golf sem ólympíugrein sé rök-
rétt framhald af því og mig langar að
vera þátttakandi,“ sagði Tiger enn
fremur í viðtalinu.
Myndi vekja mikla athygli
Í ljósi þess hversu frægur Tiger
Woods er í nánast öllum heims-
hornum myndi þátttaka hans vafa-
laust vekja mikla athygli á leikunum.
Golfhreyfingin fagnar því sjálfsagt
að Tiger sýni metnað varðandi Ól-
ympíuleikana. Þótti mörgum að
bestu kylfingar heims áttuðu sig
ekki nægilega á því tækifæri sem í
því felst að keppa á Ólympíuleikum
fyrir leikana 2016. Einhverjir þeirra
kepptu og sigraði Englendingurinn
Justin Rose í karlaflokki og Inbee
Park frá Suður-Kóreu í kvenna-
flokki. Ýmsir kylfingar báru fyrir sig
að keppnistörn þeirra væri mjög stíf
og leikarnir væru á óhentugum tíma.
Nú hafa stærstu mótin verið færð
töluvert fram og verður risamót-
unum lokið hjá körlunum þegar leik-
arnir hefjast 2020.
Setur stefnuna á
Ólympíuleikana
Tiger Woods leggur áherslu á að
komast til Tókýó Mikil samkeppni
AFP
Heimsfrægur Nævera Tigers myndi auka sjónvarpsáhorf enn frekar.
44 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
FORNUBÚÐUM 12, 220 HAFNARFJÖRÐUR | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS
Þýskaland
Leverkusen – Hoffenheim...................... 1:3
Sandra María Jessen var ekki í leik-
mannahópi Leverkusen.
A-deild karla:
Eintracht Frankfurt – Leverkusen........ 3:0
Frakkland
B-deild:
Grenoble – Orleans ................................. 0:0
Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í
leikmannahópi Grenoble.
Holland
B-deild:
Maastricht – Excelsior............................ 0:0
Elías Már Ómarsson lék fyrstu 80 mín-
úturnar.
Tyrkland
B-deild:
Akhisarspor – Eskisehirspor ................. 2:1
Theódór Elmar Bjarnason tók út leik-
bann og var ekki með Akhisarspor.
Danmörk
B-deild:
Viborg – Fremad Amager...................... 5:0
Ingvar Jónsson var varamarkvörður hjá
Viborg.
England
B-deild:
Cardiff – Sheffield Wednesday............... 1:1
KNATTSPYRNA
Dominos-deild karla
ÍR – Valur.............................................. 99:90
Keflavík – Njarðvík.............................. 88:84
Staðan:
KR 3 3 0 290:241 6
Keflavík 3 3 0 271:250 6
Tindastóll 3 2 1 253:242 4
Valur 3 2 1 271:259 4
Haukar 3 2 1 286:279 4
Stjarnan 3 2 1 276:247 4
Njarðvík 3 1 2 244:243 2
Fjölnir 3 1 2 261:262 2
Þór Þ. 3 1 2 238:260 2
ÍR 3 1 2 245:278 2
Grindavík 3 0 3 259:283 0
Þór Ak. 3 0 3 234:284 0
1. deild karla
Álftanes – Höttur ................................. 76:85
Snæfell – Skallagrímur........................ 73:69
Vestri – Selfoss ..................................... 87:64
Staðan: Hamar 6, Breiðablik 4, Vestri 4,
Höttur 4, Álftanes 2, Selfoss 2, Snæfell 2,
Sindri 0, Skallagrímur 0.
Evrópudeildin
Barcelona – Alba Berlín ................... 103:84
Martin Hermannsson skoraði ekki fyrir
Alba og gaf eina stoðsendingu.
KÖRFUBOLTI
Martin Hermannsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, rak sig á
vegg í gærkvöldi í Euroleague,
sterkustu deild í Evrópu. Alba Berl-
ín heimsótti þá stórlið Barcelona til
Katalóníu og tapaði 103:84. Martin
átti erfitt uppdráttar, sem er orðið
sjaldgæf sjón. Martin skoraði ekki í
leiknum og gaf aðeins eina stoð-
sendingu. Hann lenti í villuvand-
ræðum og fékk þriðju villuna í fyrri
hálfleik. Nikola Mirotic, sem lék í
NBA í fimm ár, skoraði 18 stig fyrir
Barca, sem unnið hefur alla þrjá
leiki sína í keppninni.
Hljóp á vegg
gegn stórliðinu
Morgunblaðið/Hari
Barningur Andstæðingarnir hafa
góðar gætur á Martin.
Hlynur Bæringsson, fyrirliði
Stjörnunnar og fráfarandi lands-
liðsfyrirliði, leikur væntanlega með
Garðbæingum í næstu leikjum
vegna meiðsla. Hlynur tjáði
Morgunblaðinu í gær að hann væri
með brákað rifbein og var hans sárt
saknað þegar Stjarnan tapaði fyrir
Tindastóli í vikunni.
Fram undan er athyglisverð
leikjahrina hjá Stjörnunni gegn öll-
um Suðurnesjaliðunum. Gegn
Keflavík 25. október, gegn Njarð-
vík 1. nóvember og Grindavík 7.
nóvember. kris@mbl.is
Hlynur er með
brákað rifbein
Morgunblaðið/Hari
Reyndur Hlynur Bæringsson er
leiðtogi Garðbæinga.
Lausum þjálfarastöðum í knattspyrnunni hérlendis
fækkar nú ört, en í gær gengu tvö lið í næstefstu deild
karla á Íslandsmótinu frá ráðningu. Páll Viðar Gíslason
tekur við liði Þórs á Akureyri og Gunnar Guðmundsson
mun stýra Þrótti.
Páll snýr aftur til Þórs, en hann þjálfaði liðið frá 2010
og 2014. Hann lék með meistaraflokki félagsins bæði í
knattspyrnu og handknattleik á sínum tíma. Síðustu tvö
árin hefur Páll þjálfað Magna á Grenivík, sem einnig
leikur í næstefstu deild.
Gunnar er þekktastur fyrir að hafa þjálfað HK þegar
liðið komst upp í efstu deild í fyrsta skipti. Hefur hann
einnig þjálfað Selfoss, Gróttu og yngri landslið Íslands. Síðasta sumar var
Gunnar aðstoðarþjálfari í Grindavík.
Enn eiga tvö lið í deildinni eftir að ráða þjálfara, en það eru Afturelding í
Mosfellsbæ og Víkingur í Ólafsvík. Þar urðu tímamót þegar Ejub Purisevic
yfirgaf félagið eftir sautján ára starf.
Páll og Gunnar ráðnir
Páll Viðar
Gíslason
Lærisveinar Arons Kristjánssonar í
karlalandsliði Barein í handknatt-
leik fara vel af stað í undankeppn-
inni í Asíu fyrir Ólympíuleikana í
Tókýó á næsta ári. Barein hafði
betur gegn Kúveit í gær, 26:21og
Barein yfir 12:10 að loknum fyrri
hálfleik. Í undankeppninni berjast
átta þjóðir um eitt sæti á Ólympíu-
leikunum. Spilað er í tveimur fjög-
urra liða riðlum og fara efstu tvö
liðin áfram í undanúrslit. Barein er
með Íran og Suður-Kóreu í riðli,
ásamt Kúveit. johanningi@mbl.is
Sigur gegn
Kúveit
Morgunblaðið/Hari
Sigur Aron stýrir Barein í undan-
keppni ÓL þessa dagana.