Morgunblaðið - 19.10.2019, Síða 45
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Úrval fræsivéla
og fylgihluta
HANDBOLTI
Grill 66 deild karla
Grótta – Valur U................................... 29:33
Þór Ak. – Fjölnir U .............................. 30:28
Haukar U – KA U................................. 33:29
Staðan:
Þór Ak. 5 4 1 0 148:132 9
Þróttur 5 3 1 1 166:148 7
Valur U 5 3 0 2 149:147 6
Haukar U 5 3 0 2 142:129 6
KA U 5 3 0 2 163:139 6
Víkingur 5 2 1 2 122:125 5
FH U 5 2 0 3 142:139 4
Grótta 5 2 0 3 129:139 4
Stjarnan U 5 1 1 3 123:158 3
Fjölnir U 5 0 0 5 122:150 0
Grill 66 deild kvenna
FH – ÍR ................................................. 25:22
Grótta – Fylkir...................................... 21:17
Staðan:
Fram U 5 5 0 0 167:121 10
Selfoss 4 4 0 0 98:80 8
FH 5 4 0 1 133:117 8
Grótta 5 4 0 1 125:115 8
ÍR 5 3 0 2 129:117 6
HK U 4 2 0 2 103:102 4
ÍBV U 4 2 0 2 100:108 4
Fylkir 5 1 0 4 93:111 2
Valur U 5 1 0 4 131:137 2
Fjölnir 4 1 0 3 98:110 2
Víkingur 4 0 0 4 94:119 0
Stjarnan U 4 0 0 4 92:126 0
Danmörk
Kolding – Ribe-Esbjerg ...................... 28:26
Ólafur Gústafsson og Árni Bragi Eyj-
ólfsson skoruðu ekki fyrir Kolding.
Rúnar Kárason skoraði 3 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Daníel Þór Ingason 4 og
Gunnar Steinn Jónsson 2.
Frakkland
B-deild:
Billere – Cesson-Rennes ..................... 26:24
Geir Guðmundsson skoraði ekki fyrir
Cesson-Rennes.
Undankeppni ÓL 2020
Asía, átta liða úrslitakeppni karla:
Barein – Kúveit.................................... 26:21
Aron Kristjánsson þjálfar Barein.
Krasimir Balakov er hættur sem
þjálfari búlgarska karlalandsliðsins
í knattspyrnu. Uppsögnin kemur
nokkrum dögum eftir 0:6 skell
gegn Englandi í undankeppni EM.
Búlgaría hefur ekki unnið leik eftir
sjö umferðir í keppninni. Jafnteflin
eru þrjú og töpin fjögur. Árangur
sem ekki þykir viðunandi en liðið
getur í besta falli náð næstneðsta
sæti riðilsins úr því sem komið er.
Balakov
er hættur
Í KEFLAVÍK
Skúli B. Sigurðsson
skulibsig@mbl.is
Körfuboltastórveldin suður með sjó,
Keflavík og Njarðvík, mættust í
þriðju umferð Dominos-deildar
karla í gærkvöldi, en leikið var í
norðurhluta Reykjanesbæjar
(Keflavík) að þessu sinni. Fyrir leik
voru Keflvíkingar taplausir og tölu-
vert líklegri til sigurs ef tekið er mið
af spilamennsku liðanna í upphafi
móts. Þrátt fyrir þá staðreynd hafa
spádómar fyrir þessar viðureignir
ekki verið burðugir, sama hver staða
liðanna hefur verið í deildinni eða
spilamennska í fyrri leikjum.
En framan af virtist Keflavík ívið
sprækari og leiddu með 14 stigum í
hálfleik, nokkuð verðskuldað. Það
var ekki fyrr en í fjórða leikhluta að
Njarðvíkingar hófu að spila þann
körfuknattleik sem þeir kunna.
Fram að því voru Keflvíkingar á
sjálfstýringu í höfn með sigurinn
nokkuð öruggan. Það fór vissulega
um marga Keflvíkinga í húsinu þeg-
ar Njarðvíkingar hófu áhlaup og
komu muninum niður í þrjú stig. Það
virtist vera ákveðinn vendipunktur
fyrir Njarðvíkinga þegar Evaldas
Zabas kom inn á í stað Jón Arnórs
Sverrissonar þegar um fjórar mín-
útur voru til loka leiks. Keflvíkingar
gengu á lagið og komu leiknum aftur
í sínar hendur og lönduðu sigrinum
mikilvæga.
Leikurinn var á heildina litið
fremur daufur og það var ekki fyrr
en undir lokin þegar áhlaup Njarð-
víkinga kom að leikmenn sem stuðn-
ingsmenn tóku virkilega við sér.
Keflvíkingar líta nokkuð vel út fram-
an af móti og eru taplausir. Í raun
fimm réttir í „útlendingalottóinu“
fræga, en þeir leikmenn sem komu
til liðsins passa ekki bara vel inn í
leik liðsins heldur einnig í þennan
Keflavíkuranda sem einkennt hefur
liðið til margra ára. Hinum megin
furðar undirritaður sig á því að
Njarðvíkingar komi ekki einbeittari
og grimmari til leiks. Það er með
engu móti hægt að bera í bætifláka
fyrir liðið eftir þessa viðureign. Lítil
gleði og enn minna sjálfstraust langt
fram eftir leik. Ef þeir hefðu spilað
leikinn líkt og síðustu tíu mínút-
urnar hefði sigurinn líkast til orðið
grænn þetta kvöldið.
Fyrsti sigur ÍR-inga
ÍR náði í fyrsta sigur sinn er liðið
hafði betur gegn Val, 99:90, á heima-
velli sínum í Breiðholtinu. Valsmenn
byrjuðu töluvert betur og náðu mest
tólf stiga forskoti í öðrum leikhluta.
ÍR-ingar héldu sér hins vegar í
leiknum þangað til í fjórða leikhluta,
þegar þeir tóku fram úr Völsurum
og tryggðu sér sterkan sigur.
ÍR, sem fór alla leið í lokaúrslitin á
síðustu leiktíð, er mikið breytt og
eru leikmenn sem fáir Íslendingar
kannast við mættir í Breiðholtið.
Það tekur tíma fyrir nýtt lið að spila
sig saman en það er ljóst að það eru
sterkir leikmenn komnir í Breið-
holtið. Georgi Boyanov lítur mjög
vel út, Evan Singletary er stór-
hættulegur og Collin Pryor nýtur
sín betur í stærra hlutverki en hann
var í hjá Stjörnunni. Þá kom Daði
Berg Grétarsson sterkur af bekkn-
um og Sæþór Elmar Kristjánsson
lék gríðarlega vel í síðasta leikhlut-
anum. Það verður spennandi að sjá
ÍR þegar liðið er búið að spila sig
enn betur saman með hinn klóka
Borche Ilievski við stjórn.
Valsmenn eru búnir að smíða
saman vel mannað lið sem hefur
valdið vonbrigðum til þessa, þrátt
fyrir tvo sigra. Um leið og ÍR-ingar
komust yfir fóru Valsmenn að
hengja haus og voru ekki líklegir til
að snúa taflinu við á ný. Ragnar
Ágúst Nathanaelsson er orðinn al-
gjör lykilmaður hjá Val, en hann
spilaði aðeins 16 mínútur í gær og án
hans áttu Valsmenn erfitt. Ef skytt-
urnar hjá Val hitta illa og Ragnar er
ekki á vellinum virðist ekkert plan B
til staðar. johanningi@mbl.is
Keflvíkingar sprækari
Keflvíkingar með montréttinn í Reykjanesbæ Erlendu leikmennirnir passa
vel inn í Keflavíkurandann Valsmenn stöðvaðir af ÍR-ingum í Seljaskóla
Morgunblaðið/Hari
Í Breiðholti Valsarinn Illugi Steingrímsson sækir en ÍR-ingurinn Daði Berg Grétarsson er til varnar.
Blue-höllin, Dominos-deild karla,
föstudag 18. október 2019.
Gangur leiksins: 2:4, 7:11, 17:13,
26:19, 34:21, 36:28, 42:33, 50:36,
54:42, 56:46, 63:48, 71:56, 73:62,
75:72, 83:75, 88:84.
Keflavík: Dominykas Milka 24/11
fráköst, Deane Williams 20/13 frá-
köst/4 varin skot, Khalil Ullah Ah-
mad 19/5 fráköst, Hörður Axel Vil-
hjálmsson 8/10 stoðsendingar,
Reggie Dupree 7, Andrés Ísak Hlyns-
son 6/4 fráköst, Magnús Már
Traustason 4.
KEFLAVÍK – NJARÐVÍK 88:84
Fráköst: 26 í vörn, 9 í sókn.
Njarðvík: Wayne Ernest Martin Jr.
20/10 fráköst, Mario Matasovic 19/
10 fráköst, Maciek Stanislav Bag-
inski 14, Logi Gunnarsson 9, Kristinn
Pálsson 8/6 fráköst, Evaldas Zabas
7, Ólafur Helgi Jónsson 7.
Fráköst: 21 í vörn, 14 í sókn.
Dómarar: Leifur S. Gardarsson, Jó-
hannes Páll Friðriksson, Rögnvaldur
Hreiðarsson.
Áhorfendur: 700.
Hertz-hellirinn, Dominos-deild karla,
föstudag 18. október 2019.
Gangur leiksins: 2:7, 8:16, 14:22,
19:26, 25:29, 29:36, 35:44, 44:52,
53:58, 61:66, 65:73, 72:78, 80:78,
86:83, 92:86, 99:90.
ÍR: Evan Christopher Singletary
27/7 fráköst/5 stoðsendingar,
Georgi Boyanov 27/13 fráköst, Coll-
in Pryor 16/4 fráköst, Florijan Jov-
anov 13/4 fráköst, Sæþór Elmar
Kristjánsson 13/4 fráköst, Daði
Berg Grétarsson 3.
ÍR – VALUR 99:90
Fráköst: 24 í vörn, 9 í sókn.
Valur: Christopher Rasheed Jones
25, Frank Aron Booker 17/4 fráköst,
Austin Magnus Bracey 14, Pavel Er-
molinskij 14/9 fráköst, Ragnar
Ágúst Nathanaelsson 10/6 fráköst,
Illugi Auðunsson 5, Benedikt Blön-
dal 3, Illugi Steingrímsson 2/6 frá-
köst.
Fráköst: 17 í vörn, 12 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð
Kristján Hreiðarsson, Helgi Jónsson.
Áhorfendur: 114.