Morgunblaðið - 19.10.2019, Qupperneq 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
Harpa Árnadótt-
ir myndlistar-
maður opnar
sýningu sína
Djúpalogn/Deep
Calm í Hverfis-
galleríi í dag kl.
17. Er það þriðja
einkasýning
hennar í Hverf-
isgalleríi og á
henni leggur
Harpa af stað í ferð inn í innra
landslag, þar sem fjörðurinn, sköp-
unargáfan og skrifin bregðast
hvert við öðru, eins og segir í til-
kynningu. „Það er sjálfsævisögu-
legur tónn í sýningunni sem mótast
af hugleiðingum um bernskuna. Við
undirbúning sýningarinnar í sumar
uppgötvaði Harpa vatnslitamynd
eftir Ásgrím Jónsson (1876-1958),
sem henni var sýnd í húsi ömmu
hennar og afa sem hún fæddist í.
Myndin var máluð á Bíldudal, þegar
hann bjó og starfaði í þorpinu ung-
ur maður í upphafi ferils síns,“
segir í tilkynningu og að þessi til-
viljun hafi snert streng í hjarta
Hörpu sem fékk málverkið lánað og
er það hluti sýningarinnar.
Djúpalogn Hörpu
í Hverfisgalleríi
Harpa
Árnadóttir
Listvinafélag
Hallgrímskirkju
stendur fyrir
barokktónleikum
í Hallgríms-
kirkju í dag kl.
17. Á þeim koma
fram barokkhóp-
urinn Baroque-
Aros frá Árósum
í Danmörku og
gestasöngkona á
tónleikunum verður Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir mezzósópran. Ein-
leikari verður óbóleikarinn Eric
Beselin og semballeikari Lára
Bryndís Eggertsdóttir. Baroque-
Aros er skipaður atvinnutónlistar-
mönnum og er hópurinn þekktur
fyrir mikla spilagleði og útgeislun.
Á tónleikunum verður flutt ítölsk
barokktónlist eftir Monteverdi,
Mainerio, Marcello, Porpora og
Biago Marini.
BaroqueAros í
Hallgrímskirkju
Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessar góðu móttökur hafa komið
okkur ánægjulega á óvart,“ segir
Björk Jakobsdóttir sem leikstýrir
sýningunni Mamma klikk! sem frum-
sýnd er í Gaflaraleikhúsinu í dag. Um
er að ræða nýja leikgerð Bjarkar á
samnefndri skáld-
sögu eftir Gunnar
Helgason, eigin-
mann hennar,
sem fjallar um
hina 12 ára gömlu
Stellu sem finnst
hún eiga alveg
snarklikkaða
mömmu sem er
óperusöngkona
og er endalaust að
koma Stellu í
vandræðalegar aðstæður. Eftir sér-
staklega vandræðalega uppákomu
ákveður Stella að nú sé nóg komið og
setur í gang plan til að gera mömmu
sína venjulega. Á ýmsu gengur og
margir koma við sögu eins og bræður
hennar, þeir Siggi og Palli, pabbi
hennar prófessorinn, Hanni granni
og auðvitað amma snobb.
Óhætt er að segja að viðtökur hafi
verið góðar því uppselt er á allar sýn-
ingar fram að áramótum sem samtals
eru 17, en sýningar í janúar er þegar
komnar í sölu á tix.is. „Það er aug-
ljóst að bæði Gunnar og þessi bóka-
flokkur eiga sér stóran aðdáenda-
hóp,“ segir Björk og rifjar upp að um
helgina hafi um 400 grunnskólabörn
kíkt á æfingu hjá leikhópnum í
tengslum við Bóka- og bíóhátíð
barnanna í Hafnarfirði. „Þau þekktu
allar persónur með nöfnum. Ábyrgð
okkar, sem erum að færa bókina á
svið, er því mikil. En ég hef mjög
góða tilfinningu fyrir þessari sýn-
ingu,“ segir Björk og bendir á að við-
brögð nemanna á æfingunni hafi lof-
að góðu.
Hvað er það við þessa bók og bóka-
flokkinn í heild sem höfðar jafnsterkt
til barna og raun ber vitni?
„Gunnar talar ótrúlega vel til
barna, sem sést á vinsældum annarra
bóka hans. Hann hefur þennan hæfi-
leika að tala beint til barna – sem
helgast kannski af því að honum hef-
ur tekist einstaklega vel að varðveita
barnið í sjálfum sér. Honum finnst
prump enn eitt það fyndnasta sem
hann veit,“ segir Björk og tekur fram
að húmorinn hjá Gunnari virki líka
fyrir allan aldur. „Þannig gefst okkur
tækifæri til að hlæja innilega með
persónunum samhliða því sem verkið
býður upp á ýmis gæsahúðar-
augnablik. Í mínum huga er Gunnar á
pari við Guðrúnu Helgadóttur og
Astrid Lindgren,“ segir Björk og tek-
ur fram að skilaboðin í Mömmu klikk!
séu líka svo einstaklega falleg og fel-
ist í spurningunni hvað sé að vera
venjulegur. „Því það er enginn venju-
legur. Það vilja allir vera eins og allir
aðrir, en samt spes,“ segir Björk og
vitnar þar í einn lagatextanna, en tón-
list sýningarinnar samdi Hallur Ing-
ólfsson. Stígur Steinþórsson gerir
leikmynd og Freyr Vilhjálmsson
hannar ljós. Leikhópinn skipa Gríma
Valsdóttir, Valgerður Guðnadóttir,
Felix Bergsson, Þórunn Lárusdóttir,
Ásgrímur Gunnarsson, Auðunn Sölvi
Hugason, Matthías Davíð Matthías-
son, Agla Bríet Einarsdóttir, Thea
Snæfríður Kristjánsdóttir, Vera Stef-
ánsdóttir og Gunnar Helgason.
Var sjálfgefið að höfundurinn
myndi leika í sýningunni? Gunnar
hefur náttúrlega ekki farið dult með
það að bókaflokkurinn sé innblásinn
af ykkar fjölskyldu?
„Það vill reyndar svo skemmtilega
til að Ilmur Stefánsdóttur, mamma
Grímu sem leikur Stellu, var Gunnari
líka innblástur að mömmu klikk t.d.
þegar kemur að því að setja sófa upp í
tré,“ segir Björk og bendir á að sonur
þeirra hjóna, Ásgrímur, leiki einnig í
sýningunni, en hann lauk nýverið
leikaranámi í London. „Hann leikur
Palla, en sú persóna er byggð á
honum,“ segir Björk og tekur fram að
Siggi sé byggður á yngri strák þeirra
hjóna. „En auðvitað eru allar persón-
ur ýktar, því hafa skal það er fyndn-
ara reynist.“
Að sögn Bjarkar plataði hún Gunn-
ar til að leika í uppfærslunni með lof-
orði um að hann fengi að leika Hanna
granna. „Svo vildi Felix Bergsson
vera Hanni og að sjálfsögðu sagði ég
já við því og tilkynnti Gunnari í fram-
haldinu að hann yrði að leika pabb-
ann. Það er auðvelt að leika pabba-
hlutverkið þannig að það verði frekar
litlaust, en ég vissi að ef Gunnar
myndi leika hann yrði hann alltaf
fyndinn og skemmtilegur, því hann
lætur ekkert tækifæri ónotað til þess.
Mér finnst líka fara vel á því að hann
leiki pabbann því hann er svo mikill
pabbi bókanna um Stellu og fjöl-
skyldu hennar.“
Hverjar hafa helstu áskoranirnar
verið við að færa bókina á svið?
„Bókin afhjúpar ekki ákveðna sér-
stöðu Stellu fyrr en á lokametrunum.
Það hefði auðvitað verið ógerningur
að leyna því fram undir lok sýningar,
en mér tókst að finna skemmtilega
leið til að seinka afhjúpuninni. Önnur
megináskorunin felst í því að þétta
söguna, en það býður upp á að hlutir
séu sagðir fremur sjónrænt í stað
orða. Hliðarpersónurnar fá fyrir vikið
aðeins minna pláss textalega séð, en
verða sýnilegri í tónlistaratriðunum,“
segir Björk og bendir á að Carmen,
sem mamman leiki, sé útfærð í heild
sinni á tíu mínútum í sýningunni.
Mamma klikk! Gríma Valsdóttir og Valgerður Guðnadóttir í hlutverkum
sínum sem Stella og mamma hennar í uppfærslu Gaflaraleikhússins.
„Ýmis gæsahúðaraugnablik“
Mamma klikk! frumsýnd í Gaflaraleikhúsinu „Það er enginn venjulegur,“
segir leikstjórinn Björk Jakobsdóttir Uppselt er á fyrstu 17 sýningarnar
Björk
Jakobsdóttir
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Þetta er í fjórða skiptið sem við sýn-
um saman, þessi hópur sex lista-
manna,“ segir Tumi Magnússon, einn
þeirra sex íslensku myndlistarmanna
sem opna samsýningu í Tbilisi í
Georgíu í dag og einnig á miðvikudag
í næstu viku í annarri borg, Batumi, í
sama landi. Auk Tuma eru þátttak-
endur Sólveig Aðalsteinsdóttir, Ráð-
hildur Ingadóttir, Ingólfur Arnars-
son, Ívar Valgarðsson og Kristinn G.
Harðarson.
„Þetta hófst árið 2011 á bókamess-
unni í Frankfurt þegar Ísland var þar
heiðursgestur, en þá bað galleristinn
hjá galleríinu, Kim Behm, okkur
Ráðhildi að setja saman íslenskan
hóp sem hún vildi að sýndi í galleríinu
hennar á sama tíma og bókamessan
væri. Þá bjuggum við Ráðhildur til
þennan hóp og kölluðum sýninguna
Nasasjón,“ segir Tumi og bætir við
að þau Ráðhildur hafi starfað mikið
með þessu galleríi í gegnum tíðina og
í seinni tíð einnig Ívar.
„Okkur líkaði vel við þennan hóp
sem við settum saman og okkur
fannst gott að sýna með þessu fólki.
Sýningin þótti okkur líka falleg, svo
við héldum hana aftur nokkrum ár-
um síðar í Aberdeen í Skotlandi, á
stað sem heitir Peacock Visual Art.
Fyrir tveimur árum héldum við hana
í þriðja sinn í Kunstverein í Speyer í
Þýskalandi og síðan duttum við niður
á það að vera boðið hingað til
Georgíu. Við tókum því fagnandi að
setja Nasasjón upp í fjórða sinn.“
Að sjá eitthvað með nefinu
Tumi segir að sýningin saman-
standi af nýjum verkum sem unnin
séu í ýmsa miðla og að þau séu mjög
ólík innbyrðis.
„Við sex sem myndum þennan hóp
erum að vissu leyti ólíkir listamenn
en það sem sameinar okkur er að við
erum öll af sömu kynslóð. Við erum
fædd á árunum milli 1954 og 1959 og
sprettum því að vissu leyti upp úr
sama farvegi og stefnum. En við höf-
um unnið úr því á mismunandi hátt
og nálgumst það hver með sínum
hætti í listinni. Fyrir vikið er þetta
góð nasasjón, en nafnið fannst okkur
einmitt tilvalið af því sýningin gefur
ákveðna nasasjón af íslenskri nú-
tímalist, sérstaklega af okkar kyn-
slóð. Á bak við nafnið er líka þessi
Þar sem áður
hvíldust úlfaldar
Íslendingar sýna Nasasjón í Georgíu