Morgunblaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
hugmynd að sjá eitthvað með nefinu,
sem getur falið í sér að sjá hlutina eða
upplifa þá með öðrum hætti en venja
er.“
Sýna í fornu sögufrægu húsi
Sýningin sem verður opnuð í dag
er í nútímalistadeild á sögusafni
Tibilisiborgar, Tbilisi History Mus-
eum.
„Þetta er tæplega þrjú hundruð
fermetra salur sem við sýnum í og
mjög fallegt rými. Þetta er mjög
skemmtilegt húsnæði frá sautjándu
öld; gamalt „caravanserai“ eða
áningarstaður fyrir bæði úlfalda- og
hestalestir sem hér fóru um silkileið-
ina. Hér er stórt opið rými í miðjunni
þar sem komið var inn með flutnings-
dýrin og þau fengu hvíld, vatn og
tuggu. Kaupmennirnir hvíldust og
gistu á hæðunum fyrir ofan, í her-
bergjum með svölum. Það er virki-
lega gaman að sýna í þessu forna
sögufræga húsnæði og salurinn þar
sem sýningin okkar er hefur verið
einhvers konar gistirými á sínum
tíma.“ Nasasjónin sem opnuð verður
í Batumi á þriðjudag verður í Con-
temporary Art Space þar í borg.
Á hinum forna áningarstað F.v. Ráðhildur Ingadóttir, Kristinn G. Harðar-
son, Tumi Magnússon, Ívar Valgarðsson og Sólveig Aðalsteinsdóttir. Á
myndina vantar Ingólf Arnarson, sem er sá sjötti sem tilheyrir hópnum.
Þegar Dóri DNA gaf út ljóða-bók sína, Órar, martraðirog hlutir sem ég hugsa umþegar ég er að keyra, fékk
ég áritað eintak. Þar ítrekaði hann
innihald bókarinnar: „Það er svo
gott að láta sér líða illa.“
Þetta vanlíð-
unarstef er
sterkt í Kokkáli
en bókin sendir
lesandann í sann-
kallaðan tilfinn-
ingarússíbana
sem nær ekki
endastöð, ekki
einu sinni við lok
bókarinnar. Van-
líðan er helsta til-
finningin sem bókin kallar fram en
ég skellti þó ósjaldan upp úr meðan
á lestrinum stóð og roðnaði jafnvel
vegna grafískra kynlífslýsinga.
Titill bókarinnar segir mikið um
efni hennar. Hún fjallar um Össa,
fjallmyndarlegan karlmann sem á
jafnvel myndarlegri kærustu sem
kokkálar hann og er óljóst hvort
framhjáhaldið er á ábyrgð Össa eða
kærustunnar, Hrafnhildar. Enn
óskýrara er hvort framhjáhaldið,
sem framið er af Hrafnhildi og fyrr-
verandi afbrotamanninum Tyrone,
fyllir upp í eða skapar tómarúmið
sem augljóslega fyrirfinnst innra
með Össa.
Sagan er einhvers konar ævisaga
um tímabilin í lífi karlmanns fyrir,
eftir og meðan á kokkálun stendur.
Persónur bókarinnar eru margar og
hver annarri eftirminnilegri en þær
eiga allar þátt í því að gera Össa eins
og hann er og samtímis eru þær á
einhvern hátt ábyrgar fyrir þeirri
stöðu sem hann, eða Hrafnhildur, er
búin að koma Össa í.
Hver einasta persóna bókarinnar
fær gríðarlega mikið rými og Dóri
málar þær snilldarlega upp svo þær
standa ljóslifandi fyrir hugskots-
sjónum lesandans. Persónurnar eiga
í harðri baráttu um athygli lesand-
ans og þær gera sögusvið bókarinn-
ar örlítið óraunverulegt.
Skáldsagan er fersk og grafísk,
svolítið eins og teiknimyndasaga fyr-
ir fullorðna. Hún er ekki fyrir við-
kvæma en Kokkáll ögrar og tekst á
við ýmis samfélagsmál á sama tíma
og bókin er einhvers konar kyn-
svallssplatter. Í stuttu máli tekst
Dóra einstaklega vel upp í þessari
fyrstu skáldsögu sinni. Hann fær
lesandann til að taka andköf, tárast
úr hlátri, gráta af vanlíðan og yggla
sig. Þó fær maður á stundum á til-
finninguna að bókinni hefði mátt rit-
stýra með harðari hendi. Stundum
er lopinn teygður og óþarfa endur-
tekningar koma fyrir í textanum en
það skemmir ekki fyrir heildarupp-
lifuninni. Kokkáll er svolítið eins og
óslípaður demantur; grófur og hrár
en umfram allt spennandi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Velheppnuð „Í stuttu máli tekst Dóra einstaklega vel upp í þessari fyrstu
skáldsögu sinni. Hann fær lesandann til að taka andköf, tárast úr hlátri,
gráta af vanlíðan og yggla sig,“ segir gagnrýnandi m.a. um Kokkál.
Fersk og grafísk
frumraun Dóra DNA
Skáldsaga
Kokkáll
bbbbn
Eftir Dóra DNA. Bjartur, 2019.
Innbundin, 336 bls.
RAGNHILDUR
ÞRASTARDÓTTIR
BÆKUR
Bókaútgáfan Hólar gefur út ellefu
bækur á þessu ári. Fyrirferðarmest
er bókin Gústi – alþýðuhetjan, fiski-
maðurinn og kristniboðinn, eftir
Sigurð Ægisson. Í bókinni er rakin
saga Gústa guðsmanns, sem var
annálað hraustmenni, kjarnyrtur
og bölvaði út í eitt og ragnaði á milli
þess sem hann lét gott af sér leiða.
Hann studdi fátæk börn úti í heimi
til náms og gaf til þess nánast allt
sem hann aflaði á trillunni sinni.
Náttúruþankar, eftir feðginin
Bjarna E. Guðleifsson og Brynhildi
dóttur hans, fjallar um náttúruna í
umhverfi okkar á víðtækan hátt og
lýsir áhrifum mannlegra athafna á
náttúruna, svo sem gróðureyðingu,
vatnsmengun, loftslagsbreytingum
og orkunýtingu.
Döggslóð í grasi er ljóðabók eftir
Kristbjörgu Freydísi Steingríms-
dóttur. Hún ólst upp við ljóða- og
vísnagerð en fékkst lítið við þá iðju
sjálf fyrr en eftir fertugt.
Töfra-Tapparnir, eftir Valdísi
Ingibjörgu Jónsdóttur, er léttlestr-
arbók um tvo töfratappa sem velta
því fyrir sér hvaðan röddin kemur
og hvernig hægt sé að breyta henni
á ýmsan hátt. Tilgangur bókarinn-
ar er að fræða börn um raddheilsu
og hvernig megi forðast að valda
skaða á henni.
Munaðarlausa stúlkan, ævintýri í
endursögn Sigurgeirs Jónssonar,
fyrrverandi kennara í Vestmanna-
eyjum, með myndskreytingum eftir
hina 16 ára gömlu Eyjastúlku,
Sunnu Einarsdóttur, er ævintýri
þar sem góðsemi og velvild er umb-
unað.
Einnig gefa Hólar úr gam-
ansögur líkt og fyrri ár, nú 105
„sannar“ þingeyskar lygasögur
sem Jóhannes Sigurjónsson tók
saman, Það eru ekki svellin – sögur
og sagnir af Borgfirðingum eystri í
samantekt Gunnars Finnssonar og
Hann hefur engu gleymt – nema
textunum!, sem geymir sögur af
tónlistarmönnum og Guðjón Ingi
Eiríksson safnaði til. Væntanlegar
eru og Spurningabókin 2019 og
Fótboltaspurningar 2019. Fyrr á
árinu kom út bókin Fimmaura-
brandarar sem Fimmaurabrand-
arafjelagið annaðist. arnim@mbl.is
Gaman og Gústi
guðsmaður
Ellefu bækur gefnar út af Hólum
Valdís Ingibjörg
Jónsdóttir
Brynhildur
Bjarnadóttir
Sigurður
Ægisson
Bjarni Eyjólfur
Guðleifsson
Guðjón Ingi
Eiríksson
Sunna
Einarsdóttir
Sigurgeir
Jónsson
Kristbjörg
Freydís