Morgunblaðið - 19.10.2019, Síða 52
Klarínettan og víólan verða í
brennidepli á tónleikum Kammer-
músíkklúbbsins í Norðurljósum
Hörpu á morgun kl. 16. Flytjendur
eru Einar Jóhannesson á klarínett,
Þórunn Ósk Marinósdóttir á víólu
og Anna Guðný Guðmundsdóttir á
píanó. Efnisskráin spannar rúm
200 ár og inniheldur verk eftir
Mozart, Schumann-hjónin, György
Kurtág og Þorkel Sigur-
björnsson.
Klarínettan og víólan
í brennidepli í Hörpu
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 292. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Kringlukastarinn Guðni Valur
Guðnason átti besta frjálsíþrótta-
afrek Íslendinga á árinu 2019 og
var eini fulltrúi þjóðarinnar á HM í
Doha, en engu að síður var árið að
mörgu leyti líkt og martröð fyrir
þennan jákvæða og upplitsdjarfa
Mosfelling. Hann er staðráðinn í að
keppa á öðrum Ólympíuleikum sín-
um næsta sumar. »43
Bestur á árinu sem var
samt eins og martröð
Bandaríska bókaútgáfan Macmill-
an tryggði sér á bókamessunni í
Frankfurt í vikunni réttinn á tveim-
ur bókum Ragnars Jónassonar,
Mistri og Hvítadauða sem kemur
út á Íslandi á mánudag. Útgefandi
Ragnars á Íslandi, Pétur Már
Ólafsson, vill ekki gefa upp neinar
tölur í þessu sambandi en segir að
þetta sé risasamningur sem sýni
bæði að Macmillan ætli sér stóra
hluti með Ragnar og líka sterka
stöðu hans í hinum enskumælandi
heimi. Fyrr á þessu ári var
sagt frá því að Drungi
væri tilnefnd sem
glæpasaga ársins í
Bretlandi, Blackwell’s-
bókabúðakeðjan valdi
Snjóblindu sem eina af
100 bestu glæpasögum
sögunnar.
Semur við Macmillan
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Alþýðulist höfðar til margra og
sýningar á verkum slíkra listamanna
eru oft fjölsóttar. Það er mikill feng-
ur að þessum myndum Sölva Helga-
sonar, sem eru um margt mjög
dæmigerðar fyrir myndlist hans og
feril,“ segir Harpa Þórsdóttir, for-
stöðumaður Listasafns Íslands. Í
anddyri safnhússins við Fríkirkju-
veg í Reykjavík verða um helgina
sýndar átján teikningar og myndir
eftir Sölva Helgason (1820-1895),
flækinginn fræga fyrir norðan sem
segir frá í Sólon Íslandus, skáldsögu
Davíðs Stefánssonar.
Utan alfaraleiða
Um sína daga ferðaðist Sölvi að
mestu utan alfaraleiða, í tvöfaldri
merkingu þeirra orða, rétt eins og
listrænt eðli hans bauð. Átti jafnvel
til að skilja sem laun eða í þakklætis-
skyni eftir sig myndir hvar hann
kom á bæi til dæmis í Skagafirði.
Enginn veit með vissu hver er
saga eða tilurð myndanna sem hin
danska Ingrid Hansen eignaðist, en
hún starfaði hjá Popp kaupmanni á
Sauðárkróki snemma á 20. öldinni.
Hún sneri svo heim til Danmerkur
með myndirnar sem Ingrid Nielsen
sonardóttir hennar eignaðist síðar.
Þegar Harpa Björnsdóttir list-
fræðingur var að undirbúa
Blómsturheima, sýningu á verkum
Sölva sem var í Listasafni Reykja-
víkur fyrr á þessu ári, komst hún á
snoðir um tilvist þessara mynda.
Þær fengust lánaðar á sýninguna –
en meðfylgjandi voru þau skilaboð
að myndirnar skyldu í framhaldinu
verða eign listasafns þjóðarinnar,
eins og nú hefur gengið eftir. Form-
lega afhenti Eva Egesborg Hansen,
sendiherra Dana á Íslandi, Lilju Al-
freðsdóttur menntamálaráðherra
myndirnar sl. fimmtudag, 16. októ-
ber, á 135. afmælisdegi safnsins.
Dönsk tenging
„Okkur fannst vel við hæfi að
minnast þeirra tímamóta sem af-
mæli safnsins er með þessari dönsku
tengingu. Halda verður því til haga
að það var Björn Bjarnarson síðar
sýslumaður sem stofnaði safnið
1884, þá búsettur í Kaupmannahöfn,
sem safnaði verkum norrænna lista-
manna, einkum danskra. Myndaði
þannig stofngjöf Listasafns Íslands.
Rætur listasafnsins er því að nokkru
leyti danskar og rétt eins og við
fáum þessar íslensku myndir Sölva
nú frá Danmörku,“ segir Harpa
Þórsdóttir, sem telur mikinn feng í
verkunum. Þau einkennist af blóma-
flúri, sem sé raunar áberandi í öllu
kúnstverki Sölva. Myndir hans megi
raunar finna víða í söfnum hérlendis
og eitthvað á heimilum fólks, svo
sem á Norðurlandi en þar stikaði
listamaðurinn um sveitir og var ekki
alltaf aufúsugestur.
Myndir Sölva verða yfir helgina til
sýnis í Listasafni Íslands, hvar er
ókeypis inn yfir helgina vegna af-
mælis safnsins. Á næsta ári verða
þær svo sýndar í Safnasafninu á
Svalbarðseyri við Eyjafjörð í tilefni
af því að þá eru liðin 200 ár frá fæð-
ingu Sölva.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Safnakonur Harpa Þórsdóttir forstöðumaður og Dagný Heiðdal, for-
stöðumaður og skráningarstjóri Listasafns Íslands, við myndir Sölva.
Myndir Sölva á sýningu
Alþýðulist 19.
aldarinnar í gjöf
frá Danmörku
Blómaflúr Ein af myndum Sölva sem nú má líta augum í Listasafni Íslands.