Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 17
félagsmanna. niðurstöðurnar voru nokkuð samhljóða. aðeins 8% hjúkrunarfræðinga eru sáttir við launin sín. Þegar spurt var um hvaða atriði ætti að leggja áherslu á við næstu kjarasamn- inga var hækkun dagvinnulauna oftast sett í fyrsta val, stytting vinnuviku oftast í annað val og hækkun greiðslu vegna vakta- álags sett oftast í þriðja val. Þá kom sterkt fram að gera þarf hjúkrunarfræðingum kleift að starfa í vaktavinnu og að 80% vinna á vöktum teljist sem 100% vinna. hjúkrunarfræðingar virðast vera misáhugasamir um breyt- ingar á vinnutíma og breyttar greiðslur fyrir yfirvinnu. Tals- verður munur var á viðhorfi almennra hjúkrunarfræðinga og stjórnenda, eins þeirra sem vinna vaktavinnu og dagvinnu. Stjórnendur og þeir sem vinna dagvinnu eru almennt meira fylgjandi breytingum á vinnutíma og yfirvinnu. Stærstur hluti hjúkrunarfræðinga, eða 77%, fannst fremur eða mjög mikil- vægt að hvíldartími á milli vakta væri að minnsta kosti 11 klukkustundir. aðrir þættir sem fram komu í könnuninni voru t.d. að hjúkrunarfræðingar vilja að menntun sé sá þáttur sem ráði helst launum, mönnun er sá þáttur sem þeir vilja sjá batna í starfsumhverfi og að sí- og endurmenntun teljist til vinnu- tíma. Fundarherferð Í aðdraganda komandi kjarasamningaviðræðna hélt fíh 16 fundi um allt land með hjúkrunarfræðingum. Tilgangur fund - anna var að ræða helstu áherslur kröfugerðar og að kynna niðurstöður kjarakönnunar sem gerð var í nóvember. Starfs- menn kjara- og réttindasviðs héldu fundina ásamt formanni félagsins. Mjög gagnlegt og fræðandi var fyrir starfsmenn félagsins að hitta hjúkrunarfræðinga, eiga við þá samræður um kjaramál og komandi kjarasamninga. Á þeim kom fram að áherslur hjúkrunarfræðinga eru nokkuð samhljóða þrátt fyrir að hópurinn sé ólíkur og starfsumhverfið með misjöfnum hætti. hækka þarf dagvinnulaun hjúkrunarfræðinga, stytta vinnuvikuna og bæta starfsumhverfi. Leita þarf nýrra lausna til þess að takast á við þann vanda sem orðinn er í íslensku heil- brigðiskerfi þar sem marga hjúkrunarfræðinga vantar til starfa. fundirnir voru vel sóttir og virðist sterk samstaða vera meðal hjúkrunarfræðinga fyrir komandi kjarasamninga. Kröfugerð og samninganefndir kröfugerð fíh hefur verið í vinnslu undanfarinn mánuði og nýttist þar vel niðurstaða kjarakönnunarinnar sem og eftirfylgd hennar með fundarherferðinni. kröfugerðin var unnin af starfsmönnum kjara- og réttindasviðs í samstarfi við samninga- nefndir félagsins. Markmið félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í samninga - viðræðum eru: 1. Laun, vinnutími og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga sé með þeim hætti að þeir vilji vinna innan íslenska heil- brigðiskerfisins. 2. Tilgangur stofnanasamninga verði skýr og fjármögn un þeirra tryggð. 3. fjármagn til jafnlaunavottunar verði tryggt. 4. Sí- og endurmenntun hjúkrunarfræðinga verði hluti af vinnutíma. 5. nýr kjarasamningur feli í sér breytingar á tryggingar- kafla og veikindakafla. 6. útbúin verði mönnunarviðmið fyrir hjúkrunarfræðinga sem nái yfir mismunandi stig heilbrigðisþjónustu. 7. nýr kjarasamningur taki við af gerðardómi. Lengd samnings verði sambærileg við samninga annarra aðila á vinnumarkaði. Samninganefndir félagins eru skipaðar starfsmönnum kjara- og réttindasviðs auk formanns en eins sitja í nefndinni 2–3 hjúkrunarfræðingar sem starfa á samningi við viðkomandi viðsemjendur. Í mars stóð kjara- og réttindasvið fíh fyrir námskeiði í samningafærni fyrir samninganefndir félagsins í samstarfi við Þóru Christiansen, aðjunkt við hÍ. Trúnaðarmönnum og trúnaðarmannaráði var boðið að taka þátt í námskeiðinu. námskeiðið var vel sótt og var það gagnlegt og lærdómsríkt. kjarasamningar meðal hjúkrunarfræðinga tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 17 Talsverður munur var á viðhorfi almennra hjúkrunarfræðinga og stjórnenda, eins þeirra sem vinna vaktavinnu og dagvinnu. Stjórn- endur og þeir sem vinna dagvinnu eru almennt meira fylgjandi breytingum á vinnutíma og yfir - vinnu. Leiðin að kjarasamningi: ✓ Undirbúningur og greining á áherslum félags- manna. ✓ rökstudd kröfugerð útbúin. Markmið og óska - niðurstaða. háleit en raunsæ markmið byggð á hagsmunum. ✓ Skrifað undir viðræðuáætlun, samið um hvernig skuli samið. Áætlun um skipulag og fyrirkomulag viðræðna. ✓ Samningafundir, áherslur beggja aðila ræddar. Deilunni er vísað til ríkissáttasemjara ef samninga- nefnd telur að árangur náist ekki í samninga - viðræðum eða ef viðræður slitna. ✓ Áherslur þrengdar og náð saman. framkvæmd og undirritun á samningi. ✓ félagsmenn kjósa um samning innan fjögurra vikna. Ef samningur er felldur er kosið áfram um frekari aðgerðir eða sest aftur að samningaborðinu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.