Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 21
byrjaði með sumarstörfum, s.s. að passa systkinabörn hingað
og þangað um landið,“ segir auðbjörg. Móðir hennar er katrín
gunnarsdóttir, dóttir auðbjargar Brynjólfsdóttur og gunnars
h. kristinssonar, fyrrverandi hitaveitustjóra. auðbjörg er nú
nýtekin við sem skólastjóri í kirkjubæjarskóla á Síðu. Bræður
auðbjargar sammæðra eru hallberg Brynjar og tvíburarnir
guðmundur jóhann og axel Darri guðmundssynir, samf eðra
er Benedikt Örn Bjarnason. faðir hennar er Bjarni Bene dikts -
son framkvæmdastjóri, son ur hjónanna hildar Einarsdóttur og
Benedikts Bjarnasonar sem lengi rak Bjarnabúð í Bolungarvík.
Var ráðskona í sveit fyrir
fermingaraldur
auðbjörg segist hafa byrjað að vinna á alvörulaunum sem
barnapía 9 ára gömul og um líkt leyti fór hún að bera út
dagblöð í garðabænum og vinna í skólasjoppunni. hún var líka
ráðskona í sveit fyrir fermingu og söng í kirkjukór garðakirkju
á unglingsárum til að eiga vasapeninga og spara fyrir námsárin.
„frá unglingsaldri hef ég unnið, m.a. við ferðaþjónustu, og
síðan með einum eða öðrum hætti við heilbrigðissvið frá því
ég var 16 ára gömul, framan af á hjúkrunarheimilum og öldr-
unardeildum en síðar ýmsu sem tengist meðgöngu og fæð -
ingu,“ segir hún.
auðbjörg útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í
kópavogi af ferðamálabraut árið 1999. hún lauk hjúkrunar-
prófi 2005 og ljósmóðurprófi 2007, hvoru tveggja frá háskóla
Íslands. auk þess er hún með réttindi sem sjúkra flutn inga -
maður, hefur lokið diplómagráðu í mannauðs stjórn un og leggur
nú stund á meistaranám í heilbrigðisvísindum.
„Líkur sækir líkum heim,“ segir máltækið en auðbjörg er
gift Bjarka V. guðnasyni, sjúkraflutningamanni og vélstjóra,
sem situr einnig í sveitarstjórn Skaftárhrepps. Þau búa á Maríu -
bakka, sveitabæ í fljótshverfi í Skaftárhrepppi. hjónin rækta
rófur og að auki eru þau með fáeinar kindur, en afkoma þeirra
byggist þó á vinnu sem er fyrir utan búið. Börn þeirra eru þrjú,
frumburðurinn, Maríanna katrín, er fædd 2004 og er að fara í
framhaldsskóla í haust, næst í röðinni er Bríet Sunna, fædd á
fullveldisdaginn árið 2009 og yngsta barnið og einkasonurinn,
kristófer gunnar, er fæddur 2011. „Það hefur leikið við okkur
barnalán sem er lífsins gjöf og ómetanlegur auður,“ segir
auðbjörg brosandi og stolt af fjölskyldu sinni.
Langaði að verða flugmaður
og síðar læknir
auðbjörg er þarnæst spurð hvort hún hafi alltaf ætlað að verða
hjúkrunarfræðingur eða hvort hún hafi verið með aðrar áætl-
anir? „Í sannleika sagt þá var kannski ekki endilega á döfinni
að vera hjúkrunarfræðingur. fyrsta minning mín um starf, eða
hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór, var að verða flugmaður.
Á þeim tíma þótti það frekar háleit hugmynd og ég man í 6 ára
bekk þá áttum við að teikna mynd af okkur í framtíðarstarfinu
en þá gat ég ekki teiknað flugmann því ég var ekki strákur. Það
varð úr að ég teiknaði mynd af flugfreyju en hafði svo sem ekk -
ert sérstakan áhuga á því starfi,“ segir hún íbyggin þegar hún
rifjar upp þessar æskuminningar sínar.
hún segir að í æsku hafi hún hins vegar sogast að öllu sem
snerti bráðatilfelli, sjúkrabíla, spítala og þess háttar, svo blund -
aði í henni að verða ljósmóðir en hún hélt að það væri bara
fyrir einhverja útvalda. „Svarið kom í kringum stúdentsprófið,
ég ætlaði að verða læknir. Móðuramma mín veiktist þegar ég
var í prófum í klausus í læknadeildinni haustið 1999. hún var
mér afskaplega kær og ég sinnti henni í veikindunum, mætti
þar af leiðandi ekki nægilega undirbúin í próf og var því ekki
ein þeirra sem komust inn en var ekki langt frá því. Móðurafi
minn veiktist líka stuttu síðar og naut ég þeirra forréttinda að
sinna þeim báðum þar til yfir lauk. Í framhaldi af því lá leið
mín í hjúkrun. Ég átti líka frænku sem var landsbyggðarhjúkr-
unarfræðingur og fannst alltaf gífurlega spennandi það sem
hún var að eiga við í starfinu. Það voru einmitt hennar börn
sem ég passaði á sumrin frá 9 ára aldri, fékk þannig smjörþef-
inn af starfi hjúkrunarfræðinga,“ segir auðbjörg.
það er kannski klisjukennt …
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 21
Auðbjörg og Bjarki eru bæði sjúkraflutningamenn og hittast oft í út-
köllum, hún í hlutverki hjúkrunarfræðingsins eða sjúkraflutninga-
mannsins, allt eftir eðli útkallsins og hvort þau eru saman á vakt.
Ljósmynd/einkasafn.
Hér er Auðbjörg í starfi ljósmóðurinnar, beðið eftir fæðingu barns. Ljós-
mynd/einkasafn.