Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 27
Mikilvægur vettvangur til
að miðla rannsóknum
Bráðadagurinn er mikilvægur vettvangur til að kynna rannsóknir
og þróunarverkefni hjúkrunarfræðinga. Til að fræðast betur um
bráðahjúkrun voru þær Dóra Björnsdóttir og gunnhildur Ösp
kjærnested teknar tali en þær eru báðar hjúkrunarfræðingar á
bráðasviði Landspítala. Þær segja okk ur frá bakgrunni sínum og
framtíðarsýn og deila með okkur sinni sýn á Bráðadeginum.
gunnhildur útskrifaðist frá háskóla Íslands árið 2014 og
fór síðan um haustið að vinna á neðri hæð bráðamóttökunnar,
g2. Þar áður hafði hún unnið á taugalækningadeild með skóla
og á hálendi Íslands sem skálavörður á sumrin. ,,Þar kviknaði
einna helst áhugi á bráðahjúkrun enda þurfti maður oft að vera
lausnamiðaður og takast á við alls konar aðstæður, allt frá smá -
slysum og upp í bráðar og alvarlegar aðstæður. Ég vann á g2 í
rúmt 3 og hálft ár og færði mig síðan upp á g3, efri hæð bráða -
móttökunnar.“
Dóra útskrifaðist úr hjúkrun frá háskóla Íslands 1995. hún
vann sem fjórða árs nemi á a-7 og fyrst eftir útskrift, fór þaðan
á barnadeild fSa og vann þar frá 1996–1999, svo á Sjúkrahús-
inu Selfossi frá 2000–2003. hún fór í diplómanám í bráða -
hjúkrun 2003 og hefur unnið á bráðamóttöku allar götur síðan.
Kynnist fjölbreyttri flóru samfélagsins
á hverjum einasta degi
hvað gerir bráðahjúkrun sérstaka í ykkar huga? „Það sem gerir
bráðahjúkrun einstaka er hversu síbreytileg hún er. Maður er
aldrei að fást við sama verkefnið og maður er alltaf að læra eitt -
hvað nýtt. Meira að segja mestu reynsluboltanir, þeir sem hafa
verið þarna í fjölda ára eða áratugi, koma stundum að tómum
kofunum og þurfa að leita ráða. Einnig kynnist maður allri
flóru samfélagsins á hverjum degi og maður hjúkrar einstak-
lingum á öllum aldri, frá nýburum og upp í aldraða einstak-
linga. Maður er aldrei að hjúkra sama einstaklingnum og þarf
að stilla sig inn á hvern og einn,“ segir gunnhildur. Dóra segir
fjölbreytileikann vera það fyrsta sem komi upp í hugann þar
sem skjólstæðingahópurinn og vandamálin eru svo fjölbreytt.
„Við þurfum að hugsa í lausnum og láta okkur detta eitthvað í
hug við aðstæðum sem við höfum ekki einu sinni hugmynda-
flug í að við lendum í. En mannskapurinn sem velur sér að
starfa í bráðaþjónustu hann er líka einstakur, verkefnin eru
flókin og oft mjög erfið en það er líka það sem þjappar okkur
saman og það gerir bráðahjúkrun sérstaka.“
Gott tækifæri til að efla samstarf
á milli ólíkra aðila
gunnhildur og Dóra segja Bráðadaginn skipta miklu fyrir
bráðahjúkrun. „hann getur kveikt á nýjum hugmyndum og
hugsanlegum rannsóknarverkefnum eða umbótarverkefnum
sem geta eflt bráðahjúkrun,“ segir gunnhildur. „Bráðadagur -
inn er vettvangur þar sem maður getur séð umbótaverkefni og
nýjungar í bráðahjúkrun. Það er nauðsynlegt að geta séð og
hugleitt hvernig hægt er að gera hlutina betur svo við get um
veitt enn betri þjónustu. Einnig er það mjög hvetjandi að sjá
hversu mörg verkefni eru í gangi og eykur það líkur og umræður
um nýjar rannsóknir, verkferla eða umbóta ver kefni.“
Dóra tekur undir orð gunnhildar og segir daginn jafnframt
vera góðan vettvang til að koma á framfæri rannsóknarverk-
efnum meðal hjúkrunarfræðinga sem og þeirra sem eru í fram-
haldsnámi, sem og að kynnast því sem aðrir eru að gera. „Ég lít
á þetta sem uppskeruhátíð sviðsins þar sem gefst tækifæri á að
kynnast því sem er verið að vinna að á deildinni (g-2) og svo á
sviðinu í heild.“ Einnig er þetta gott tækifæri til að kynnast
fleirum á sviðinu og utan þess. „Það er gaman að hafa þetta
þverfaglegt og heyra frá sem flestum starfsstéttum. Það er alltaf
áhugavert að heyra hvernig aðrir taka á hlutunum og finna
lausnir á sömu vandamálum og eru til staðar hér.“ Þá er þetta
tilvalið tækifæri til að efla samstarf á milli ólíkra aðila að sögn
Dóru. „Í ár heyrðum við t.d. frá hjúkrunarfræðingi úti á landi
og viðbragðs aðilum í utanspítalaþjónustu, þetta er ótvírætt tæki-
færi til að efla samstarf Landspítalans við t.d. landsbyggðina og
aðra viðbragðsaðila.“
aðspurðar um framtíðaráætlanir í hjúkrun svarar gunn-
hildur því til að hún stefni á áframhaldandi störf innan
bráðahjúkrunar. Dóra bindur vonir við að innan tveggja ára
geti bráðasviðið veitt framúrskarandi þjónustu fyrir bráð veika
og slaðaða. gunnhildur segir mörg og spennandi tækifæri vera
innan seilingar og „spennandi að fylgjast með og sjá hvernig
bráðahjúkrun og starfsemi bráðamóttökunnar þróast.“
bráðadagurinn: uppskeruhátíð rannsókna og verkefna í bráðaþjónustu
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 27
Hér má sjá nokkra áhugasama gesti bráðadagsins. — Ljósm.: Þorkell Þorkelsson.