Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 38
Fjölbreyttir framtíðarmöguleikar í hjúkrun
Svo eru þeir sem vissu lítið sem ekki neitt um störf hjúkrunarfræðinga, eða að fátt
annað hefði staðið til boða eins og í tilfelli Pálínu Skjaldardóttur, hjúkrunarfræðings
á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Það var ekki um margt að velja þegar Pálína Skjaldar-
dóttir ákvað að fara í framhaldsnám eftir að hún hafði lokið námi í grunnskóla við
Lindargötuskólann. Pálína hóf nám í nýja hjúkrunarskólanum og útskrifaðist í des-
ember 1978, eða fyrir rúmum 40 árum. hún er afar sátt við þá ákvörðun og hefur
alltaf fundist gaman að fara í vinnuna enda telur hún hjúkrun vera eitt göfugasta starf
sem til er. „Það er borin virðing fyrir hjúkrunarfræðingum í samfélaginu og ég er stolt
af því að tilheyra þeim hópi.“ rakel Björg jónsdóttir, sérfræðingur í nýburahjúkrun á
nýburagjörgæsludeild vökudeildar Barnaspítala hringsins, hafði ekki mikla innsýn í
störf hjúkrunarfræðinga þegar hún hóf nám. „Ég vissi svo sem ekki mikið um hjúkrun
þegar ég byrjaði í náminu en varð mjög fljótt ánægð með val mitt. Ég fór að vinna á
barnadeildinni í sumarvinnu eftir annað árið og hef eiginlega ekki farið út af Barna-
spítalanum síðan þá.“
Þegar Ólafía kvaran var tvítug að aldri hafði hún ekki hugmynd hvað hún vildi starfa
við í framtíðinni, en hún starfar nú sem hjúkrunarfræðingur hjá Læknasetrinu í
Domus Medica. „Ég valdi að fara í hjúkrunarfræði vegna þess að ég vissi að þegar ég
yrði orðin hjúkrunarfræðingur myndu mörg og ólík starfssvið standa mér til boða og
mikið starfsöryggi og það hentaði mér afar vel. Í sannleika sagt þá hafði ég ekki hug-
mynd um það rúmlega tvítug hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór og þá var hjúkrun
mjög gott og skynsamt val.“
Það kemur fram hjá mörgum hjúkrunarfræðingum hve gefandi það er að starfa
við hjúkrun enda vafalaust ástæða þess að margir hjúkrunarfræðingar leggja fyrir sig
fagið. „Ég elska starfið mitt og mér hefur alltaf þótt gaman að fara í vinnuna. Það hefur
aldrei borið skugga á það,“ segir Edda Bryndís Örlygsdóttir, hjúkrunarfræðingur á
skurðlækningadeild á Sjúkrahúsinu á akureyri. „Þrátt fyrir að starfið sé oft mjög krefj-
andi og erfitt er það að sama skapi mjög gefandi. að fá að taka þátt í gleði og sigrum
fólks er dásamlegt, en einnig er það lærdómsríkt og þroskandi að hjálpa sjúklingum
og aðstandendum að komast í gegnum erfiða lífsreynslu.“
Fjölbreytnin er mikill kostur
fjölbreytni, fjölbreytni, fjölbreytni, segja hjúkrunarfræðingar og það er ekki úr lausu
lofti gripið! „Líklegast klisja að segja þetta en fjölbreytileiki er klárlega það skemmti-
legasta við starfið. Það eru alltaf ný viðfangsefni og verkefni,“ segir Þorsteinn jónsson,
en hann starfar á gjörgæsludeild Landspítala við hringbraut og á menntadeild Land-
spítala, auk þess að vera aðjunkt í bráða- og gjörgæsluhjúkrun við hjúkrunarfræðideild
hÍ. aðspurður hvað sé skemmtilegt við hjúkrunarstarfið svarar hann því til að mögu-
leikarnir séu óendanlegir og fjölmörg tækifæri. fræðasvið Þorsteins snýr að bráð -
veikum og alvarlega veikum sjúklingum sem að sögn hans er sambland af óvissu, hraða
og spennu.
„helstu kostir starfsins er fjölbreytnin,“ segir halldóra hálfdánardóttir, deildar-
stjóri á leitarstöð krabbameinsfélags Íslands. „Mitt sérsvið er innan krabbameins-
hjúkrunar og hefur mörgum fundist skrítið að ég hafi verið þetta lengi í svo krefjandi
hjúkrun. Mér finnst það þvert á móti ekkert skrítið þar sem innan krabbameinshjúkr-
helga ólafs
38 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019
„Í sannleika sagt þá hafði ég ekki hugmynd um það rúmlega tvítug
hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór og þá var hjúkrun mjög gott
og skynsamt val,“ segir Ólafía Kvaran.
Ólafía Kvaran.
Edda Bryndís Örlygsdóttir.
Pálína Skjaldardóttir.