Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 40

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 40
Landsbyggðin hefur alltaf heillað mig. Það er merkilegt hvað samfélög á lands- byggðinni búa yfir mikilli samkennd og kærleika fyrir hvert öðru og hversu mikilvægt það er að standa vörð um samfélag sitt og þegna þess. fyrir rúmlega fjórum árum ákvað ég að leggja land undir fót og flytjast búferlum til Vestmannaeyja. Ástæðurnar fyrir flutningnum voru meðal annars blanda af ævintýraþrá, von um betra líf, meiri lífsgæði og ný viðfangsefni á sviði hjúkrunar. Það var einnig skemmtilegt að hugsa til þess að fá loksins tækifæri til að starfa á sjúkrahúsinu þar sem langamma mín heitin helga jóhannesdóttir hjúkrunarkona, ein af mínum helstu fyrirmyndum í lífi og starfi, eyddi bróðurparti starfsferils síns. Í tilefni af 100 ára afmæli félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum og minni sýn á það hvað felst í því að vera hjúkrunarfræðingur á landsbyggðinni. Langamma mín var ávallt kölluð „helga jó“ og hún var svo sannarlega hjúkrunar- kona af guðs náð. hún lauk námi við hjúkrunarskóla Íslands árið 1935, þá 28 ára gömul. að námi loknu hélt hún á vit ævintýranna til Danmerkur og starfaði í kaup- mannahöfn um nokkurt skeið. Þegar komið var að heimför lá leið hennar til Vest- mannaeyja og þar starfaði hún á Sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum og stofnaði til fjölskyldu ásamt eiginmanni sínum. Langamma hjúkraði samtíðarfólki sínu í Eyjum frá vöggu til grafar helgu jó var lýst af samferðafólki sínu sem stórbrotinni, hávaxinni, vel greindri og hnarreistri konu sem gustaði af þegar hún gekk um ganga sjúkrahússins. hún var kona sem sagði hlutina umbúðalaust og lá ekki á skoðunum sínum. hún var stóryrt og orðhvöss en undir hrjúfu yfirborði var hún einstaklega góðhjörtuð. hún kom fram við alla í samfélaginu sem jafningja, var einstaklega réttsýn og var málsvari þeirra sem minna máttu sín. alltaf var hægt að leita til hennar ef eitthvað bjátaði á. hún setti vel- ferð og rétt skjólstæðinga sinna ofar öllu en hafði einnig hliðsjón af velferð stofnun- arinnar sem hún starfaði svo lengi á að leiðarljósi við störf sín. hún var lands byggðar - hjúkrunarkona sem hjúkraði samtíðarfólki sínu í Eyjum frá vöggu til grafar, í gleði og sorg með virðingu, jafnrétti og mikilli umhyggju. hjúkrun sem fræðigrein var henni einnig hugleikin og var hún vel að sér í málefnum hjúkrunar, var víðlesin og tók virkan 40 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 Þankastrik Hjúkrun á landsbyggðinni Hildur Vattnes Kristjánsdóttir Hildur Vattnes Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur. „Hún var kona sem sagði hlutina umbúðalaust og lá ekki á skoðunum sínum. Hún var stóryrt og orðhvöss en undir hrjúfu yfirborði var hún einstaklega góðhjörtuð.“ Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu og höfundur hvers pistils stingur upp á þeim næsta. Í þankastriki gefst hjúkrunarfræðingum færi á að tjá sig um ýmislegt er varðar hjúkrun og er þeim hjartfólgið. Pistlarnir geta allað um ákveðin málefni, sögur af kynnum við sjúklinga eða starfsfólk, eitt - hvað sem hefur orðið höfundum til hugljómunar eða hvað eina annað sem tengist starfinu og hugmyndafræði þess.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.