Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 61
Vorið 2017 fór sendinefnd hjúkrunarfræðinga, sem í voru fulltrúar hÍ, Landspítala
og félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, til university of Minnesota til að kynna sér
nám til BS-prófs fyrir fólk sem lokið hefur öðru háskólanámi. jafnframt fóru þessir
fulltrúar og funduðu með ráðherrum heilbrigðis- og menntamála til að fá fram afstöðu
þeirra til þess að boðið yrði upp á slíkt nám. allir þessir aðilar höfðu mjög jákvæða
afstöðu til námsins, hins vegar átti alveg eftir að útfæra hvernig því yrði háttað.
Í kjölfar fjölmiðlaumræðu um námið það vor sköpuðust miklar umræður meðal
hjúkrunarfræðinga sem að mestu voru frekar neikvæðar. Við sem störfum í hjúkr-
unarfræðideild berum virðingu fyrir þessum skoðanaskiptum en höfum ekki viljað
fjalla mikið opinberlega um námsleiðina fyrr en lægi fyrir að af henni yrði og fjármagn
væri tryggt. Samkvæmt samþykkt háskólaráðs nú í vor hefst tilraun haustið 2020 við
hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands sem felst í því að bjóða upp á sértæka námsleið
til BS-prófs í hjúkrunarfræði fyrir fólk sem lokið hefur öðru háskólaprófi en hjúkr-
unarfræði.
Tilgangurinn með þessari grein er að upplýsa hjúkrunarfræðinga um þetta nám
og uppbyggingu þess.
Af hverju sértæk námsleið?
Meginástæða þess að farið er af stað með þessa námsleið er að fullnægja ákveðinni
eftirspurn frá fólki í atvinnulífinu sem hefur lokið öðru háskólaprófi og hefur áhuga
á afla sér hjúkrunarfræðimenntunar með nýjan starfsvettvang í huga. hjúkrunar -
fræðideild hefur nú þegar útskrifað umtalsverðan fjölda einstaklinga sem lokið höfðu
öðru háskólaprófi. Veturinn 2017 til 2018 var 21 nemandi í grunnnámi við deildina
sem hafði lokið öðru háskólaprófi frá háskóla Íslands. Erlendis er löng hefð fyrir því
að bjóða þeim sem lokið hafa öðru háskólaprófi upp á sérstaka námsleið í hjúkrunar -
fræði og þá sérstaklega í Bandaríkjunum og kanada.
gríðarleg breyting hefur orðið á undanförnum áratugum á starfsævi fólks. Sú tíð er
löngu liðin að fólk mennti sig til tiltekins starfs og sinni því starfsævina á enda. Þannig
er sífellt algengara að fólk skipti um starfsferil á ævinni og sæki sér í því skyni viðeigandi
menntun og endurmenntun. framboðið af fólki með bakkalárgráður hefur sjaldan verið
meira og þrátt fyrir að atvinnuleysi sé lítið hér á landi er það töluvert á meðal fólks með
háskólanám eða 1.734 einstaklingar í mars 2019 (https://www.vinnumalastofnun.is).
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 61
Sértæk námsleið til BS-prófs við Hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands
Herdís Sveinsdóttir, prófessor og deildarforseti
Ásta Thoroddsen, prófessor og námsstjóri sértækrar námsleiðar
Sú tíð er löngu liðin að fólk mennti sig til tiltekins starfs og sinni því
starfsævina á enda. Þannig er sífellt algengara að fólk skipti um
starfsferil á ævinni og sæki sér í því skyni viðeigandi menntun og
endurmenntun.