Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 77
Sérmerktum ruslafötum með pokum í ásamt merktum möppum þar sem límmiðar
fylgdu til að merkja ruslapokana var komið fyrir á öllum þátttökudeildunum. Í föt-
urnar söfnuðu starfsmenn nýtanlegum mat, það er einungis mat sem hægt hefði verið
að borða, í sérstaka poka merkta könnun. allur annar fæðuafgangur, s.s. eggjaskurn,
bananahýði og kaffikorgur, fór í ruslapoka sem einnig voru vigtaðir. Matarafgöngum
hvers dags var safnað saman í einn poka yfir daginn og hann innsiglaður á miðnætti
hvers sólarhrings, geymdur til næsta dags þegar hann var vigtaður og honum fargað.
reiknuð var út heildarþyngd alls matar sem fór til spillis, auk þess reiknað niður á
deild og íbúa og meðalþyngd á dag og á hvern íbúa. hlutfall matar sem fór til spillis
var reiknað fyrir deildir 1, 2 og 3.
könnunin fór fram í samtals átta daga í febrúar og mars 2017 og var unnin í
samráði við stjórnendur á hjúkrunarheimilinu. Starfsmenn voru upplýstir um könn-
unina með tölvupósti auk þess sem þeir fengu leiðsögn í að greina og aðskilja nýtan-
legan og ónýtanlegan mat og skrifa vettvangsathugasemdir. Samið var við deildarstjóra
hverrar deildar um að vera ábyrgir fyrir gagnasöfnun hver á sinni deild.
Niðurstöður könnunarinnar á Eir
Í töflu 1 má sjá heildarmatarsóun á heimilinu þá átta daga sem gögnum var safnað.
heildarþyngd nýtanlegs matar sem fór til spillis alla átta dagana var 358,3 kg eða 59,7
kg á dag að meðaltali. Þar sést einnig þyngd matar sem fór inn á deildir 1, 2 og 3 og
þyngd þess nýtanlega matar sem kom frá þeim deildum og var hent þá átta daga sem
mælingar fóru fram. Matarsóun á þessum deildum var frá 2,8 kg á dag (deild 2, dagur
5) upp í 13,1 kg á dag (deild 3, dagur 2). Á þeim deildum þar sem matarsóun var ein-
göngu mæld reyndist 2,7–17,4 kg af nýtanlegum mat hent á dag.
Tafla 2 sýnir hlutfall matar sem var sóað á deildum 1, 2 og 3. heildarmatarsóun að
meðaltali þá daga sem gagnöflun fór fram var 23,% af nýtanlegum mat. Mest var
sóunin á deild 3 eða 30,6% og minnst á deild 2 eða 16,2%.
Starfsmenn á öllum deildum skrifuðu útskýringar og vangaveltur um matar -
sóunina. Meginþættir vettvangsathugasemda starfsmanna lutu að: 1) heilsufari heim-
ilisfólks, 2) einstaklingsþörfum heimilisfólks, 3) framboði á heitum mat, 4) súpum og
grautum, 5) kökum og sætindum og 6) sérfæði og maukfæði (sjá töflu 3). Í vettvangs -
athugasemdum kom fram að heilsufar íbúa og hvernig ástand þeirra er þann daginn
getur haft áhrif á matarlyst þeirra eða hvort þeir geta neytt hans með góðu móti. Bent
var á mikilvægi þess að taka tillit til einstaklingsþarfa heimilisfólks, að fólk hafi val
um mat þegar það hefur ekki lyst á því sem er í matinn og að bjóða mat oftar og í
minni skömmtum í einu því slíkt gæti hentað sumum. fram kom að súpum, grautum
og sætmeti væri mikið hent og fannst starfsfólki að draga ætti úr framboði á þeim
matarsóun á hjúkrunarheimilum
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 77
Tafla 1. Matarsóun mæld í kg
kg á íbúa
Íbúa- Dagur 1 Dagur 2 Dagur 3 Dagur 4 Dagur 5 Dagur 6 Dagur 7 Dagur 8 Samtals yfir tímabilið
fjöldi (8 daga)
inn út inn út inn út inn út inn út inn út inn út inn út inn út inn út
kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg kg
Deild 1 17 28,4 7,6 30,3 10,7 28,2 7,6 33,2 4,8 27,2 3,9 31,3 8,2 31,3 6,0 31,4 3,1 241,3 51,9 14,2 3,1
Deild 2 25 31,1 5,1 37,2 5,0 27,4 6,7 33,9 8,5 30,2 2,8 32,0 6,3 34,3 3,6 32,3 4,0 258,5 42,0 10,3 1,7
Deild 3 22 30,3 12,9 38,0 13,1 26,2 10,9 37,6 11,0 27,4 5,8 32,5 7,6 32,7 9,7 34,7 8,3 259,4 79,3 11,8 3,6
Deild 4* 47 11,6 17,4 12,2 8,8 8,2 14,0 7,0 2,7 81,9 1,7
Deild 5* 52 9,2 8,9 7,3 12,8 10,5 0,3 7,5 5,4 61,9 1,2
Deild 6 22 6,0 5,5 4,3 6,1 3,4 4,3 4,0 7,7 41,3 1,9
Samtals 185 89,8 52,4 105,5 60,6 81,8 49,0 104,7 52,0 84,8 34,6 95,8 40,7 98,4 37,8 98,4 31,2 759,1 358,3 **
Meðaltal – 29,9 8,7 35,2 10,1 27,3 8,2 34,9 8,7 28,3 5,8 31,9 6,8 32,8 6,3 32,8 5,2 253,0 59,7 12,1 2,2
* Deildir 4 og 5 eru í raun fjórar deildir, en tvær (4a og 4b) og tvær (5a og 5b) deila sameiginlegu eldhúsi.
** Á aðeins við um deildir 1, 2 og 3.
Tafla 2. hlutfall matarsóunar á deild
Deild hlutfall
Deild 1 21,5%
Deild 2 16,2%
Deild 3 30,6%
Meðaltal 22,8%