Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 87
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 87
Útdráttur
Tilgangur: Sjálfsprottin innanskúmsblæðing (SiB) er kölluð heila -
blóðfall yngra fólksins. Sálfélagsleg vanlíðan einstaklinga sem fengið
hafa SiB getur valdið þeim erfiðleikum með að ná takti í lífinu, jafnvel
mörgum árum eir áfallið. Þrátt fyrir ölda rannsókna skortir kerfis-
bundna samantekt á þeim vanda sem einstaklingar með SiB standa
frammi fyrir auk þekkingar á bestu hugsanlegu úrræðum. Tilgangur
þessa kerfisbundna fræðilega yfirlits var þríþættur: að samþætta
þekkingu um þætti sem hafa áhrif á sálfélagslega líðan SiB-sjúklinga
meira en þremur mánuðum eir áfallið; að lýsa tíðni algengra sál-
félagslegra einkenna; koma auga á nýja þekkingu og hugsanlegar
íhlutanir fyrir hjúkrun.
Aðferð: kerfisbundið fræðilegt yfirlit. Stuðst var við aðferð stofnunar
joanna Briggs (jBi) og PriSMa-yfirlýsinguna við framsetningu
niðurstaðna. Leitað var í PubMed og CinahL að birtum greinum frá
janúar 2007 til nóvember 2017. gátlistar frá jBi voru notaðir til þess
að meta veikleika frumrannsókna. niðurstöður voru samþættar með
„matrix“-aðferðinni.
Niðurstöður: Þrjátíu og þrjár greinar voru teknar með í yfirlitið þar
sem 5073 einstaklingar með SiB voru rannsakaðir. Sálfélagsleg vanda-
mál voru til staðar hjá yfir 50% þátttakenda á öllum tímapunktum:
frá þremur mánuðum og upp í 20 ár eir áfallið. fjögur megin -
við fangsefni voru greind: (1) Skert lífsgæði, (2) kvíði/þunglyndi, (3)
áfallastreituröskun, ótti og sálfélagsleg vanlíðan og (4) breytt at-
vinnuþátttaka, félagslíf og samfélagslegar þarfir. Þættir tengdir við SiB
voru meðal annars skortur á nánd við maka, tjáskiptavandamál,
endurtekin uppriun á áfalli, vitsmunaleg skerðing og hegðunartrufl-
anir. forspárgildi sálfélagslegra vandamála voru meðal annars kven-
kyn, yngri aldur við áfallið, minni menntun og óstöðug hjú skapar -
staða.
Ályktanir: niðurstöður samantektarinnar má nýta við gerð kerfis-
bundins mats, eirfylgni og upplýsingagjafar til sjúklinga með SiB og
ölskyldna þeirra. Vegna hárrar tíðni og alvarlegra afleiðinga sál-
félagslegra vandamála er þörf á að heilbrigðisstarfsfólk bregðist mark-
visst við þeim vanda sem sjúklingar með SiB standa frammi fyrir.
Inngangur
Sjálfsprottin innanskúmsblæðing (SiB) er algengasta ástæða
heilablóðfalls hjá ungu fólki (Turi o.fl., 2017) og er meðalaldur
fólks sem fær SiB 50 til 55 ár (Boccardi o.fl., 2017; reinhardt,
2010). Þetta er mun lægri meðalaldur en sést í öðrum tegundum
heilablóðfalla (harvey o.fl., 2015; johnston o.fl., 1998). höfuð -
verknum, sem o er fyrsta vísbending um SiB, hefur verið lýst
af sjúklingum sem óbærilegri sársaukafullri reynslu; líkt og að
verða skyndilega skotinn í hnakkann eða verða fyrir sprengingu
inni í höfðinu (Linn o.fl., 1998). hætta er á frekari fylgikvillum,
m.a. endurblæðingu og/eða æðasamdrætti fyrstu vikurnar
(rabinstein o.fl., 2005; van gijn o.fl., 2007). Ljóst er að strax frá
áfalli og næstu vikur þar á eir standa sjúklingar andspænis
ógnandi einkennum sem lita framtíðina óvissu. Þrátt fyrir að
tækniframfarir í læknavísindum undanfarna áratugi hafi aukið
lífslíkur og dregið úr fylgikvillum, snúa margir sjúklingar ekki
aur til vinnu og eiga erfitt með að ná eðlilegum takti í ys og
þys hversdagsins (Passier o.fl., 2011b). Þessa erfiðleika má ekki
aðeins rekja til skertrar líkamlegrar færni og virkni heldur hafa
einkenni eins og þreyta, kvíði, þunglyndi og áfallastreituröskun
mikil áhrif á sálfélagslega líðan (kutlubaev o.fl., 2012).
inga Steinþóra guðbjartsdóttir, heila- og taugaskurðdeild B6, Landspítali – háskólasjúkrahús
helga jónsdóttir, hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands og Landspítali – háskólasjúkrahús
Marianne E. klinke, hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands og Landspítali – háskólasjúkrahús
Sálfélagsleg líðan fullorðinna einstaklinga eir
innan skúmsblæðingu: Kerfisbundið fræðilegt yfirlit
Nýjungar: niðurstöður kerfisbundna yfirlitsins má nota til að
útbúa verklagsreglur sem hafa það að markmiði að bæta
sálfélagslega líðan einstaklinga eir innanskúmsblæðingu.
Hagnýting: há tíðni og alvarlegar afleiðingar sálfélagslegra
vandamála einstaklinga eir innanskúmsblæðingu sýnir að
þörf er á að heilbrigðisstarfsfólk bregðist markvisst við þeim
vanda sem sjúklingar með SiB standa frammi fyrir, svo sem
með skipulagðri hjúkrunarþjónustu.
Þekking: kerfisbundið fræðilegt yfirlit yfir sálfélagslega líðan
fullorðinna einstaklinga eir innanskúmsblæðingu hefur ekki
verið birt áður.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: koma þarf á fót sérhæfðri
fræðslu til einstaklinga með SiB og aðstandenda þeirra fyrir
útskri af heila- og taugaskurðdeild sem tekur meðal annars
til sálfélagslegra einkenna eir heimkomu og bjargráð.
Hagnýting rannsóknarniðurstaðna