Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 113
file (DaP) sem er matstæki til að meta innri styrk unglinga og
ytri stuðning þeirra (Search institute, e.d.). Það hefur verið
notað frá árinu 2005. Það mælir m.a. sjálfsvirðingu, sjálfstrú,
sjálfstjórn, lífsgildi, færni í samskiptum og stuðning frá öðrum.
Eina matstækið sem fannst þar sem bæði var lögð áhersla á
að meta áhættuhegðun og verndandi þætti ungmenna var ado-
lescent health attitude and Behavior Survey (ahaBS) sem
útbúið var til að meta algengi áhættuhegðunar, viðhorf til kyn-
hegðunar og verndandi þætti meðal nema í 9.–12. bekk (rein-
inger o.fl., 2003).
Skimunartæki
gerð hafa verið ýmis skimunartæki um afmarkaða þætti heil-
brigðis hjá unglingum, eins og um vímuefnanotkun, áfengis-
notkun, tóbaksnotkun, truflað átmynstur og sjálfsvígshættu
(joiner o.fl., 2002; kelly o.fl., 2014; Markowitz o.fl., 2010; Yudko
o.fl., 2007). hér var hins vegar lögð áhersla á að skima eftir heil-
brigði ungs fólks á heildrænan hátt. Sem dæmi um slíkt skim-
unartæki er bandarískt skimunartæki þar sem áhersla er lögð
á áhættuþætti og áhættuhegðun. Þetta er skimunartækið raaPS
(rapid assessment for adolescent Preventive Services) sem er
með 21 atriði (Yi o.fl., 2009). Það inniheldur spurningar um
matarvenjur og megrunaraðferðir, líkamlega hreyfingu, örygg-
ismál og ofbeldi, notkun tóbaks, neyslu áfengis og annarra
vímuefna, kynhegðun, andlega líðan og stuðning fullorðinna.
Það tekur um 5–7 mínútur að svara því. Í þessu skimunartæki
er lögð áhersla á áhættuþætti og áhættuhegðun en ekki vernd-
andi þætti.
Þessi samantekt á matstækjum og skimunartækjum sýnir
að ofuráhersla hefur verið lögð á að meta áhættuþætti og
áhættuhegðun meðal ungs fólks en ekki verndandi þætti. Bæði
skimunartæki raaPS og matstæki YrBSS koma inn á heilsu
unglings á töluvert heildrænan hátt en hugsunin er fyrst og
fremst að skoða þætti er varða áhættuþætti og áhættuhegðun.
Sjónum hefur fyrst og fremst verið beint að vandamálum í stað
þess heilbrigða. Töluvert er til af matstækjum en ekki heild -
rænum klínískum skimunartækjum. Sjá má á síðari árum þá
þróun að verið er að skoða meira þá verndandi þætti sem varða
unglinginn, þar á meðal lífsgæði þeirra (huebner o.fl., 2004;
rajmil o.fl., 2004; reininger o.fl., 2003). Þannig megi stuðla að
heilbrigði unglinga í gegnum það jákvæða í stað þess að beina
sjónum að mestu að áhættuþáttum og áhættuhegðun sem er
vandamálamiðuð. Við leit að skimunartækjum sem meta bæði
áhættuþætti og áhættuhegðun en einnig verndandi þætti kom
í ljós að ekkert slíkt fannst. Því þótti nauðsynlegt að útbúa
skimunartæki sem næði til beggja þátta.
Val á atriðum og mæling þeirra
Þau atriði sem rannsóknir og fyrri mælitæki og skimunartæki
höfðu sýnt að skiptu miklu máli varðandi heilbrigði unglinga
voru valin í skimunartækið hEiLung. Við val á spurningum
þurfti ávallt að hafa í huga að skimunartækið þyrfti að vera stutt
og fljótlegt að leggja það fyrir í klínísku starfi. Við gerð spurn-
inga voru hafðar til hliðsjónar spurningar í rannsókninni ungt
fólk 2013 og í rannsókninni heilsa og líðan Íslendinga frá 2012
en jafnframt tekið mið af erlendum rannsóknum og mats- og
skimunartækjum. hvað viðkemur sjálfsmyndinni var ákveðið
að styðjast við tvær spurningum úr SES- (e. self-esteem scale)
kvarða rosenbergs (1989). Við gerð spurninga um sjálfstrú var
mælitæki gSE (e. general self-efficacy) um almenna sjálfstrú
haft til hliðsjónar (Schwarzer og jerusalem, 1995). Við val á
spurningum um líkamlega þætti þótti nauðsynlegt að skimunar -
tækið næði til hreyfingar, næringar og svefns. Spurningar sem
þóttu mikilvægar varðandi andlega þætti voru um sjálfsvirð -
ingu, sjálfstrú, kvíða, þunglyndi en að auki um andlegt, líkam-
legt og kynferðislegt ofbeldi. Spurningar sem voru valdar um
félagslega þætti voru um tengsl við fullorðinn einstakling, for-
eldra og vin. Þær spurningar sem náðu til kynferðislegra þátta
voru um kynmök, kynhneigð, notkun getnaðarvarna, kynsjúk-
dóma og þungun. Spurningar um lífsstíl voru um tóbaks-,
áfengis- og vímuefnanotkun. framsetning hverrar spurningar
var yfirfarin með tilliti til orðunar og skýrleika (DeVellis, 1991).
Ákveða þurfti kvarða fyrir hverja spurningu. aldur var á
hlutfallskvarða, kyn á flokkunarkvarða og gengi í skóla á
raðkvarða (fimm punkta Likert-kvarða) (guðrún Árnadóttir,
2003). Við gerð skimunartækisins var tekið mið af því að
auðvelt væri að lesa úr því um leið og búið væri að leggja það
fyrir. Því þótti nauðsynlegt að syðjast töluvert við flokkunar -
kvarða sem gæfi til kynna já eða nei við ákveðnum spurn-
ingum. Þannig voru spurningar um líkamlega, félagslega og
vissa andlega þætti, atriði um kynheilbrigði og lífsstíl settar á
slíkan kvarða. Spurningar um sjálfsmynd og sjálfstrú voru á
raðkvarða (fimm punkta Likert-kvarða) og almennar spurn-
ingar um andlega og líkamlega heilsu jafnframt á raðkvarða
(fjögurra punkta Likert-kvarð).
innihaldsréttmæti
réttmæti mælitækis vísar til þess að atriði mæli það sem því er
ætlað að mæla (hoyle o.fl., 2002). innihaldsréttmæti (e. content
validity) er „eiginleiki einstakra atriða til að endurspegla þann
efnivið sem mælitækinu er ætlað að mæla“ (guðrún Árnadóttir,
2003, bls. 423). hEiLung er ætlað að mæla heilbrigði ungs
fólks á heildrænan hátt og þarf því að endurspegla atriði er varða
heilbrigði þess. Stuðlað var að innihaldsréttmæti með því að
byggja á fyrri rannsóknum um heilbrigði ungs fólks en jafn-
framt að skoða matstæki og skimunartæki sem notuð hafa verið
við mat á heilbrigði þess, einnig að fá sérfræðinga og ungt fólk
til að meta hEiLung á vinnslustigi þess. Var hEiLung lagt
fyrir fjóra sérfræðinga sem mátu það með tilliti til tilgangs skim-
unartækisins, að meta heilbrigði unglinga, en jafnframt mátu
þeir orðalag. Ábendingar komu frá þessum aðilum um breyt-
ingar. Var spurningum um þunglyndi, kvíða, hreyfingu, nær-
ingu og áfengisneyslu breytt. Dæmi 1: „Ég hef átt við þunglyndi
að stríða síðastliðna 12 mánuði.“ Spurningunni var breytt í: „Ég
hef fundið fyrir áhugaleysi/vonleysi síðastliðna 6 mán uði.“
Dæmi 2: „Ég hreyfi mig í að minnsta kosti 30–60 mín. á dag.“
henni var breytt í: „Ég hreyfi mig að minnsta kosti 30–60 mín.
3–4 sinnum í viku.“ Dæmi 3: „Á síðustu 30 dögum hef ég
drukkið áfengi af einhverju tagi 6 sinnum eða oftar.“ henni var
ritrýnd grein scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 95. árg. 2019 113