Fréttablaðið - 23.01.2020, Side 4
1 Enginn tók eftir að tærnar voru tólf Fann ey og Pétur
Hjör var komust að því tveimur
dögum eftir fæðingu frumburðar
síns að hann væri með tólf tær.
2 Beðið fyrir drengjunum í fullri kirkju Þrír drengir sem
voru í bíl sem fór fram af bryggj-
unni í Hafnarfirði.
3 Ástralía brennur: „Verði fyrsta landið til að verða
ó byggi legt“. Íslendingur í Sydney
segir eldana vendipunkt.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
VIÐSKIPTI Róbert Wessmann, eig-
andi lyfjafyrirtækisins Alvogen,
keypti nýlega í gegn um félagið
Hrjáf ehf. á fjórða tug nýbyggðra
íbúða í Reykjavík og greiddi rúmar
1.800 milljónir króna fyrir.
Íbúðirnar eru f lestar í nýlegu
hverfi við Ríkisútvarpið í Efstaleiti
auk íbúða í miðbænum. Hluti af
kaupverðinu þar var greiddur með
einni dýrustu íbúð landsins.
Fyrirtækið Hrjáf ehf. hefur verið
umsvifamikið á fasteignamarkaði
undanfarnar vikur. Auðmaðurinn
Vilhelm Róbert Wessmann er eig-
andi fyrirtækisins í gegn um félag
sitt Aztiq fjárfestingar ehf. Í lok
nóvember var gengið frá kaupsamn-
ingi á sex íbúðum í fasteignum við
Frakkastíg 8C og 8D sem og Hverfis-
götu 58A. Kaupverðið var 308 millj-
ónir króna. Fyrir átti Hrjáf fimmtán
íbúðir í sömu húsum við Frakkastíg.
Í byrjun desember keypti Hrjáf
síðan 31 íbúð í nýbyggingum á svo-
kölluðum A-reit á lóð Ríkisútvarps-
ins í Efstaleiti. Umræddar íbúðir eru
í húsum við Lágaleiti 1-9, Efstaleiti
19-27 og Jaðarleiti 2. Íbúðirnar eru
af öllum stærðum og gerðum. Sú
minnsta er um 50 fermetrar en sú
stærsta 120 fermetrar.
Kaupverð íbúðanna sem Hrjáf
ehf. keypti er 1.511 milljónir króna.
Var það greitt með þeim hætti að
1.050 milljónir króna voru fengnar
að láni frá lánastofnun og upp-
hæðinni síðan skipt þannig að einu
skuldabréfi var þinglýst á hverja
íbúð.
Athygli vekur að afgangur kaup-
verðsins, um 460 milljónir króna,
var greiddur með makaskiptum á
lúxusíbúð við Vatnsstíg 20-22. Þar
hefur Róbert haldið heimili undan-
farin ár. Miðað við verðið er líklega
um að ræða eina dýrustu íbúð
landsins.
Þar með eru langf lestar ef ekki
allar íbúðirnar á hinum fullbyggða
A-reit seldar. Flestar eru í eigu
einstaklinga en þó nokkrar hafa
Félagsbústaðir í Reykjavík keypt
fyrir sína skjólstæðinga. Þá eignað-
ist Kennarasamband Íslands eina
blokk með tíu íbúðum í Vörðuleiti
í nóvember.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur sumum eigendum
annarra íbúða á A-reitnum verið
sagt að íbúðir Hrjáfs ehf. við
Ríkisútvarpið verði leigðar út til
starfsmanna Alvogen og þá fyrst
og fremst til útlendinga hjá fyrir-
tækinu hér á landi.
Halldór Kristmannsson, fram-
kvæmdastjóri Alvogen, segir þetta
hins vegar ekki vera rétt.
„Ég þekki ekki kaup þessa félags
og Alvogen mun ekki nýta þessar
íbúðir,“ segir Halldór.
gar@frettabladid.is,
bjornth@frettabladid.is
Kaupir 31 íbúð á RÚV-reit og á
einnig 21 íbúð við Frakkastíg
Félag Róberts Wessmann, eiganda Alvogen, greiddi 1.511 milljóna kaupverð 31 íbúðar á RÚV-reitnum
að hluta til með 460 milljóna króna þakíbúð á Vatnsstíg. Félagið keypti nýlega á fjórða tug nýrra íbúða í
Reykjavík fyrir ríflega 1.800 milljónir króna. Íbúðir á svokölluðum A-reit á RÚV-lóðinni nær allar seldar.
Af 31 íbúð sem Hrjáf ehf. keypti á RÚV-reitnum eru 23 íbúðir í Lágaleiti 1 til 9. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Í myndatexta í blaðinu í gær sagði
að Þórunn Sveinbjörnsdóttir hefði
verið formaður Landssambands
eldri borgara í apríl 2015. Hún var
þá formaður Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni en varð
síðar formaður landssambandsins.
LEIÐRÉTTING
STJÓRNSÝSLA Einar Karl Hallvarðs-
son ríkislögmaður er kominn í
ótímabundið veikindaleyfi. Þetta
staðfestir Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra í samtali við Frétta-
blaðið. Hún segir að annar verði
settur í hans stað til þriggja mánaða
en vill ekki tjá sig nánar um málið.
Mikið hefur mætt á ríkislög-
manni undanfarin misseri sem
hefur haldið á málsvörn ríkisins í
málum sem tengjast skipun dómara
í Landsrétt, bæði fyrir íslenskum
dómstólum og fyrir Mannréttinda-
dómstól Evrópu (MDE) þar sem
áfellisdómur féll gegn Íslandi í mars.
Landsréttarmálið er nú til með-
ferðar hjá efri deild MDE. Ríkislög-
maður skilaði greinargerð vegna
málsins í nóvember síðastliðnum
og þá var mikið gagnamagn afhent
dómnum 15. janúar síðastliðinn
þegar frestur til að skila gögnum
tengdum munnlegum málflutningi
rann út. Meðal gagnanna var yfir-
lýsing frá Brynjari Níelssyni, þing-
manni Sjálfstæðisflokksins, og frá
Sigríði Á. Andersen, fyrrverandi
dómsmálaráðherra, sem hefur
óskað eftir svokallaðri þriðja-aðila
aðild að málinu. Þá var þess einn-
ig getið í erindi frá ríkislögmanni
dagsettu 15. janúar að málf lytj-
endur í Strassborg þann 5. febrúar
næstkomandi yrðu Einar Karl Hall-
varðsson ríkislögmaður og breski
málf lytjandinn Tim Otty, auk
aðstoðar annarra lögmanna.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að ekki hafi verið eining í ríkis-
stjórninni um þá ráðstöfun að ráða
breska lögmanninn Tim Otty til
að f lytja Landsréttarmálið. Frum-
kvæðið hafi komið frá dómsmála-
ráðuneytinu en efasemdum hafi
verið lýst um ákvörðunina bæði
af hálfu embættis ríkislögmanns
og forsætisráðuneytisins. Í ljósi
veikinda Einars Karls liggur fyrir
að hann mun ekki koma að mál-
flutningnum í Strassborg 5. febrúar
næstkomandi eins og til stóð. – aá
Ríkislögmaður kominn í ótímabundið veikindaleyfi
Einar Karl
Hallvarðsson,
ríkislögmaður.
isband.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
TAKMARKA
Ð MAGN
5.990.000
kr.
LAUGARDAGINN 25. JANÚAR
Á MILLI KL. 12-16
AFMÆLISSÝNING
Á ALVÖRU JEPPUM MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIFI
Í TILEFNI AF ÞRIGGJA ÁRA AFMÆLI JEEP®
OG RAM UMBOÐSINS Á ÍSLANDI BLÁSUM
VIÐ TIL GLÆSILEGRAR SÝNINGAR OG
BJÓÐUM AFMÆLISTILBOÐ Á
JEEP® JEPPUM OG RAM PALLBIFREIÐUM
Róbert Wessmann, eigandi Alvogen
og Hrjáfs ehf. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNSÝSLA Reykjavíkurborg
óskar eftir því við Kópavogsbæ að
taka upp þráðinn varðandi vinnu
við byggingu sundlaugar í Foss-
vogsdal. Í lok árs 2012 var skipaður
starfshópur vegna verkefnisins.
Skilaði hópurinn skýrslu af sér um
mitt ár 2013 þar sem gerð var tillaga
um að sundlaugin yrði staðsett í
miðjum Fossvogsdal.
Í mars 2018 samþykkti borgarráð
að gert yrði ráð fyrir sundlauginni í
deiliskipulagi Fossvogsdals.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
sendi fyrir hönd borgarinnar bréf á
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóra
Kópavogsbæjar, í byrjun árs og
óskaði eftir frekari samstarfi við
nágrannabæinn um undirbúning
verkefnisins. Leggur borgarstjóri til
að fulltrúar beggja aðili rýni í fyrir-
liggjandi gögn og undirbúi sameig-
inlega viljayfirlýsingu um að finna
nýrri sundlaug stað. Í kjölfarið verði
efnt til samkeppni um útfærslu og
hönnun laugarinnar. – bþ
Sundlaug í
Fossvogsdal
aftur á dagskrá
2 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð