Fréttablaðið - 23.01.2020, Qupperneq 18
HANDBOLTI Strákarnir okkar í
handbolt alandsliðinu töpuðu
lokaleik sínum á Evrópumótinu
í handbolta 32-25 gegn heima-
mönnum í Malmö, Svíþjóð í gær.
Eftir frábæra byrjun á mótinu þar
sem Ísland vann fyrstu tvo leikina
endar íslenska liðið því í ellefta sæti
eftir að hafa tapað fjórum af síðustu
fimm leikjum liðsins á mótinu.
Næsta verkefni liðsins er undan-
keppni fyrir HM á næsta ári sem fer
fram í Egyptalandi.
Hin litla von íslenska landsliðs-
ins um að komast í umspilið fyrir
Ólympíuleikana fjaraði út í fyrsta
leik gærdagsins. Átta marka sigur
Portúgals á Ungverjalandi þýddi
að veik von Strákanna okkar á að
komast í umspilið var úr sögunni
með því. Það var því aðeins stoltið
sem var undir í gær gegn liði Svía
sem var búið að valda miklum von-
brigðum á mótinu, og níunda sætið
í mótinu. Fyrir vikið reyndi Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, þjálfari
landsliðsins að dreifa álaginu í gær
og fengu hornamennirnir sitthvorn
hálf leikinn. Hann gaf öllum leik-
mönnum liðsins sem voru á skýrslu
mínútur í leik gærdagsins.
Strákarnir fengu rétt rúman
sólarhring til endurhæfingar eftir
leikinn gegn Noregi en það sama
var upp á teningnum snemma leiks.
Íslenska liðið var skrefinu á eftir,
sérstaklega varnarlega og missti
Svíana snemma fram úr sér.
Svíar voru f ljótir að ná 4-1 for-
skoti sem lagði grundvöllinn að því
sem koma skyldi. Íslenska liðið náði
að hanga í því sænska fyrstu tutt-
ugu mínútur leiksins en undir lok
fyrri hálf leiks náðu Svíar að bæta
við forskot sitt og tóku sjö marka
forskot inn í búningsklefana. Keim-
líkt því sem átti sér stað daginn áður
og annar leikurinn í röð sem Ísland
var sjö mörkum undir þegar flautað
var til hálfleiks.
Í seinni hálf leik héldu Svíar
góðu taki á leiknum og hleyptu
Íslendingum, ólíkt Norðmönnum
daginn áður, aldrei aftur inn í leik-
inn. Sóknarleikur Svía gekk vel og
átti íslenska vörnin engin svör við
sóknaraðgerðum þeirra sem gerði
markvarðapari íslenska liðsins,
Viktori Gísla og Björgvini Páli afar
erfitt fyrir. Svíar fundu lausnir á
öllum tilþrifum Íslands í vörninni
þrátt fyrir að vera sjálfir að dreifa
álaginu og leyfa minni spámönn-
um að fá smjörþefinn af stórmóti
í handbolta þegar líða tók á seinni
hálfleikinn.
Þegar mest var fór munurinn upp
í níu mörk og lauk leiknum með sjö
marka sigri Svía eftir að Strákunum
okkar tókst aðeins að kroppa í for-
skot Svíanna á lokamínútunum.
Heilt yfir var leikur gærdagsins
sennilega sá slakasti á mótinu á
báðum endum vallarins. Þrátt fyrir
margt jákvætt í leik Íslands á mót-
inu vantar meiri stöðugleika til að
taka næsta skref. – kpt
Bensínlausir í stórtapi gegn Svíþjóð
Markverðir Íslands
vörðu aðeins sex skot í
lokaleiknum gegn Svíum.
Þrefalda umferðin í
12 liða efstu deild er
ógerleg að mínu mati á
Íslandi. Við höfum ekki
leikdaga fyrir
slíkt.
Jóhannes Karl
Guðjónsson
2 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Tíu fasteignir við Laugar í Sælingsdal, Dala-
byggð eru nú til sölu eða leigu. Gert er ráð fyrir
að eignirnar verði seldar eða leigðar í einu lagi.
Samtals 20 herbergi með baði og 22 herbergi
með handlaug og sameiginlegum baðher-
bergjum.
Laugar í Sælingsdal í sveitarfélaginu Dalabyggð
er fornfrægur sögustaður sem hefur upp á að
bjóða fjölbreytt náttúrufar og landslag til náttúru-
skoðunar og útivistar. Jarðhiti er nýttur til hús-
hitunar og auk þess til ánægju og heilsuræktar.
Á Laugum er ennfremur skilgreint stofnanasvæði
og tjaldsvæði ásamt verslunar- og þjónustu-
svæði.
Að Laugum var áður skóli, sem síðar var breytt í
hótel og skólabúðir. Á staðnum eru einnig fjögur
einbýlishús, sundlaug, íþróttahús, tjaldsvæði og
náttúrulaug (Guðrúnarlaug). Rekin hefur verið
alhliða ferðaþjónusta að Laugum mikil tækifæri
eru til að auka þá starfsemi enn frekar.
Laugasvæðið er vel staðsett gagnvart umferð, er
í námunda við aðalleið á Vestfirði og tengt hring-
leið um Strandir (Fellsströnd/Skarðs-strönd).
Svæðið liggur í fögrum fjallasal þar sem er fjöldi
áhugaverðra gönguleiða.
Hagstætt verð í boði fyrir réttan aðila.
Hlíðasmára 4 • 200 Kópavogur • domusnova@domusnova.is • S 527 1717
LAUGAR Í SÆLINGSDAL
TIL SÖLU EÐA LEIGU
Hlíðasmára 4 • 200 Kópavogur • domusnova@domusnova.is • S 527 1717
www.domusnova.is
Allar frekari upplýsingar veitir Agnar Agnarsson lgfs.
í s. 820-1002 eða agnar@domusnova.is
FÓTBOLTI Skagamenn ætla að leggja
fram tillögu á ársþingi KSÍ í febrúar
um fjölgun liða í efstu deild í 14 á
næsta ári og 16 árið 2022. Áfram
yrði spilað tvær umferðir en tölu-
vert hefur verið rætt um þrefalda
umferð. Það hugnast Jóhannesi
Karli Guðjónssyni, þjálfara ÍA
ekki. „Þrefalda umferðin í 12 liða
efstu deild er ógerleg að mínu mati
á Íslandi. Við höfum ekki leikdaga
fyrir slíkt og það er að okkar mati
of stórt stökk.“
Hann segir að fjölmargir hafi
slegið á þráðinn og sýnt tillögunni
stuðning. „Við höfum fengið mjög
jákvæð viðbrögð og það eru margir
ánægðir með að einhver skuli ríða á
vaðið og byrja þetta ferli. Það er lík-
legt að ansi mörg lið muni styðja til-
löguna en auðvitað er ekkert komið
í hendi fyrr en það er búið að kjósa
á þinginu.
Það á líka eftir að álykta um
málið inn í stjórnum félaganna
áður en menn gefa frá sér formlegan
stuðning. Við viljum fá sem flest lið
með okkur.“ Jóhannes bendir á að
tillagan sé hugsuð fyrst og fremst
til að fleiri ungir íslenskir leikmenn
fái tækifæri til að spila í meistara-
f lokki og í efstu deild. Það myndi
efla íslenska knattspyrnu til fram-
tíðar. „Við gerum okkur grein fyrir
því að þetta tekur tíma og auðvitað
er það þannig að það er bil á milli
þeirra sem eru að koma upp og svo-
kallaðra toppliða. Það mun alltaf
verða þannig.
Það eru öflug lið í efstu deild og
það verður alltaf þannig en við vilj-
um fjölga liðunum sem eiga tæki-
færi til að spila þar. Það sem mér
finnst stærsti punkturinn er að við
stöndum á tímamótum varðandi
rekstur á íslenskum knattspyrnu-
félögum. Hann er erfiður og mun
verða erfiður áfram. Félögin þurfa
að gera upp við sig hvaða rekstrar-
módel þau vilja og hvaða stefnu þau
vilja taka í leikmannamálum. Per-
sónulega liggur það beinast við að
gefa ungum og efnilegum tækifæri
til að spila í deildunum. Við erum
ekki að horfa bara á tímabilið 2021.
Við erum að horfa til lengri tíma, til
að efla knattspyrnuna um allt land.“
Hann vonast til að liðin verði
með þessu betur mönnuð, hafi betri
aðstöðu, fái betri þjálfara og allt
utanumhald verði almennt betra.
„Ég er á því að því f leiri sem ala sína
leikmenn upp í meistaraflokk muni
það skila okkur, sem þjóð, betri
leikmönnum. Fyrir okkur er það
markmiðið.“
benediktboas@frettabladid.is
Verður vonandi til að efla fótboltann
ÍA ætlar að leggja fram tillögu á ársþingi KSÍ í febrúar um fjölgun liða í Pepsi Max-deild karla í 14 á næsta ári og í 16 árið 2022.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari liðsins, segir að margir hafi hringt og sýnt tillögunni stuðning en hún var kynnt í vikunni.
Útfærsla tillögu Skagamanna
n Árið 2021 yrði Pepsi Max 14 liða
deild
n Áfram tvöföld umferð með
sama leikjafyrirkomulagi.
Fjórir aukaleikir sem yrðu allir
spilaðir í apríl.
n Árið 2022 yrðu liðin 16. Áfram
tvöföld umferð. Það þýðir 4
aukaleikir frá árinu 2021 og
keppni myndi hefjast í mars.
n Árið 2021 og 2022 yrði sama
fyrirkomulag á 1.deild
n Árið 2023 yrði 1. deild með
14 lið. Áfram tvöföld umferð.
Það þýðir 4 aukaleikir frá árinu
2023. Keppni myndi hefjast í
byrjun apríl.
n 2., 3. og 4. deild yrði óbreytt.
Skagamenn hyggjast leggja fram tillögu um fjölgun liða í efstu deild á ársþingi KSÍ sem fram fer í Ólafsvík í febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK