Fréttablaðið - 23.01.2020, Side 26

Fréttablaðið - 23.01.2020, Side 26
Ég hef lagt mig fram við að afla mér þekkingu og mennt- unar til að sinna því en jafnframt reynt að stunda áhugamálin vel samhliða vinnu. Hesta- mennskan hefur samt alltaf trónað á toppnum. Hulda Ragnheiður Árnadóttir hefur verið framkvæmda-stjóri hjá Náttúruhamfara- tryggingu Íslands frá árinu 2010 og tók við sem formaður Félags kvenna í atvinnulífinu síðasta vor. Hulda segir þörf á FKA því það sé þörf á breytingum í samfélaginu. „Breytingar eru alltaf sársauka- fullar, því þær fela yfirleitt í sér að völd eða gæði færast frá einum til annars,“ segir Hulda Ragnheiður. „Það þarf mikinn og stóran hóp til að standast þá áraun að fara fyrir breytingum. Við höfum verið að vinna í stefnumótun frá því að ég tók við formennskunni og stefnan er sótt í grasrótina,“ segir Hulda Ragnheiður. „Við viljum heyra frá félagskonum af hverju þær eru í FKA, hvers þær vænta af félag- inu og hvernig FKA getur áorkað meiru sem hópur en félagskonur geta hver í sínu lagi. Það er líka mikilvægt þegar kemur að svona stórum og fjöl- breyttum hópi kvenna í atvinnu- lífinu, allt frá einyrkjum í sjálf- stæðum rekstri til yfirmanna stórfyrirtækja eða ríkisstofnana, að við áttum okkur á hver eru mikilvægustu málin sem þessi hópur hefur hagsmuni af að vinna að saman,“ segir Hulda Ragn- heiður. „Við þurfum að gæta þess að allir sjái ávinning af þátttökunni og félagskonur upplifi sig eiga erindi í starfi FKA og að FKA tali máli þeirra,“ segir Hulda Ragnheiður. „Það eina sem þarf er að vera félagskona í FKA til að taka þátt og það er eftirsóknarvert að taka þátt í starfi FKA. FKA eru hvorki pólitísk samtök né stéttarfélag, heldur félag kvenna í atvinnulífinu þar sem við virkjum samtaka- máttinn til góðra verka. Þegar við stígum allar fram til þátttöku eflumst við mest.“ Vilja auka sýnileika „Við byrjuðum starfsárið á stórum stefnumótunarfundi þar sem við sóttum upplýsingar til gras- rótarinnar í félaginu,“ segir Hulda. „Stærsti ávöxturinn af því er Sýni- leikadagur sem verður haldinn 28. mars. Þar fá konur fræðslu og þjálf- un sem snýr að ótal tækifærum til að auka sýnileika sinn í atvinnulíf- inu á markaðstorgi tækifæranna. Þar verða áhugaverðir fyrirlestrar um þetta og síðan vinnustofur þar sem konur spá í ferilskrár, læra á LinkedIn, læra að nota Facebook sem markaðstæki, fræðast um greinaskrif og fjölmiðlaframkomu og margt f leira. Við erum líka með risastórt verkefni í samstarfi við fjölmiðla og fengum hæfa sérfræðinga til að leiða hóp stjórnenda úr hópi kvenna í atvinnulífinu í gegnum heilsdags fjölmiðaþjálfun. Þær munu svo miðla þessari reynslu til annarra félagskvenna á Sýnileika- daginn,“ segir Hulda. „Þarna erum við að þjálfa 10-12 sérfræðinga sem munu gefa af sér til félagskvenna. Umsækjendur voru tífalt f leiri en pláss er fyrir og vonandi getum við boðið upp á sérstaka þjálfun fyrir alla áhuga- sama síðar.“ Getum allar náð langt „Ég er sannfærð um að ein besta leiðin til að efla konur í atvinnu- lífinu sé að vekja athygli á f lottum fyrirmyndum og brautryðjendum, til að efla trú kvenna á að tæki- færin eru fyrir okkur allar,“ segir Hulda Ragnheiður. „Viðurkenn- ingarhátíðin er til þess fallin að vekja athygli á venjulegum konum sem hafa náð langt, eins og við getum allar gert ef við höfum trú á því. Hlutverk mitt sem formaður í þessu frábæra félagi er að skapa aðstæður svo að allar kon- urnar í félaginu geti blómstrað. Við þurfum að kveikja trúna á að þær geti gert nauðsynlegar breytingar og láta þær finna að þær séu hluti af og tilheyri öflugum hópi,“ segir Hulda Ragnheiður. „Ég sem formaður á ekki alltaf að vera í sviðsljósinu, ég er bara ljósameistarinn sem geri mitt besta til að varpa ljósinu á góðar fyrirmyndir og ekki síður á góðar hugmyndir félagskvenna og lýsa upp þau horn þar sem breytingar þurfa að eiga sér stað.“ Ég er bara ljósameistari Formaður FKA segir hlutverk sitt vera að varpa ljósi á góðar fyrirmyndir og veita félagskonum stuðning svo þær nái markmiðum sem skipta þær máli. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, formaður FKA, segir að hlutverk hennar sé að skapa aðstæður svo félagskonur geti blómstrað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ég er 54 ára Reykjavíkurmær með mikla ástríðu fyrir dýrum og velferð þeirra,“ segir Elva. Áhugasvið hennar er afar fjölbreytt og hefur leitt hana víða. „Ég ætlaði upphaflega að verða fatahönnuður og svo kom áhugi á arkitektúr aðeins inn. En þegar tölvurnar mættu á svæðið, var ég alveg hugfangin og hellti mér út í grafíska hönnun, margmiðlun og þrívíddarlærdóm þar sem sköp- unargleðin fékk að njóta sín.“ Hugmyndaflug og hestar Elva segir mikinn hraða hafa ein- kennt störf sín við vefmál síðustu ár. „Ég endaði svo á að mastera heimasíðugerð og allt sem því tengist og vann við það í nokkur ár. Um þessar mundir er ég að endurmennta mig til að aðlagast þeim breytingum og straumum sem fram undan eru í hinum stafræna heimi. Ég hef lagt mig fram við að afla mér þekkingar og menntunar til að sinna því en jafnframt reynt að stunda áhuga- málin vel samhliða vinnu. Hesta- mennskan hefur samt alltaf trónað á toppnum.“ Elva Dís ber mikla umhyggju fyrir búfé, líðan þeirra og velferð. Þessi umhyggja ól af sér sprota- og þjónustufyrirtækið HeyNet, sem hannar og selur lausnir fyrir þennan sértæka markhóp með það að markmiði að bæta líf dýra og eigenda þeirra. „Árið 2015 fór ég að hanna heynet fyrir mig þar sem mér fannst þessi vara kosta of mikið úr búð hérlendis og það sem var í boði of einhæft og ekki nægilega vandað. Út frá því fór ég að hanna fleiri lausnir og bjóða til sölu fyrir vini og vandamenn. Snemma árs 2016 opnaði ég síðu á Facebook og svo heimasíðu þar sem fólk gat verið í beinu sam- bandi við mig og komið með sínar óskir sem ég leysti úr. Smám saman urðu vöruflokkar fleiri og er HeyNet ört stækkandi fyrir- tæki,“ segir Elva. Elva horfir björtum augum til framtíðar og á sér skýrt markmið. „Á næstu tveimur árum stefni ég á að vera orðin fullvaxta með fyrir- tækið, komin með fleiri spenn- andi vörur sem eru sérstakar og öðruvísi en fólk hefur getað fengið hérlendis hingað til. Ótrúlega spennandi tímar fram undan.“ Fjölhæfur frumkvöðull Elva er mikill hestaunnandi og rekur eigið fyrirtæki. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Elva Dís Adolfs- dóttir ákvað um miðbik síðasta árs að hætta í þáverandi starfi sínu og einblína á eigin rekstur, HeyNet, þar sem hún selur vörur fyrir dýr og eig- endur þeirra. storkurinn.is storkurinn@storkurinn.is • Prjón • • Hekl • • Útsaumur • Fyrir byrjendur, vana og þaulvana NÁMSKEIÐ STORKSINS Vilt þú vera partur af hreyfiafli kvenna í íslensku atvinnulífi? Skráning á WWW.FKA.IS 4 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFNU

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.