Fréttablaðið - 23.01.2020, Síða 30

Fréttablaðið - 23.01.2020, Síða 30
Ég er þrjátíu og sex ára gömul Eyjamær sem hefur þó lítið búið í Eyjum,“ segir Sara Pálsdóttir, forstöðumaður sölu- deildar innflutnings hjá Eimskip, sem er alin upp í Bretlandi um bakgrunn sinn. Að loknu námi í Verslunarskólanum og BS-prófi í viðskiptafræði lá leið hennar aftur til Bretlands. „Þar starfaði ég hjá Landsbankanum og átti mjög lærdómsrík ár með frábæru fólki. Í lok árs 2008 þegar kreppan skall á hafði ég takmarkaðan áhuga á að fara aftur til Íslands og fékk vinnu við markaðsgreiningu á sölusviði fyrir alþjóðlegt fyrirtæki sem heitir Reckitt Benckiser. Það var einnig mjög skemmtilegur tími og mikilvæg reynsla að vinna fyrir fyrirtæki sem tengdist ekkert Íslandi eða markaðinum hérna heima.“ Sara lauk einnig meistaraprófi í alþjóðaviðskiptum á þessum tíma. „Svo lá leiðin aftur heim og ég fór f ljótlega að vinna fyrir Eimskip, fyrst í Eyjum við endurskipu- lagningu afgreiðslu Herjólfs, sem Eimskip var þá að reka, og síðan í Reykjavík á sölusviðinu þar sem ég hef verið síðan. Í dag starfa ég sem forstöðumaður innflutnings- deildar þar sem við sinnum bæði sölu og þjónustu til innflutnings- viðskiptavina Eimskips og fer ekki ofan af því að þetta sé ein skemmtilegast deild fyrirtækisins með afar fjölbreytt verkefni. Við erum beintengd við atvinnulífið, finnum í gegnum viðskiptavini okkar og innflutningsmynstur þeirra hvernig púlsinn slær í þjóð- félaginu og fyrir forvitna mann- eskju eins og mig verður þetta ekki mikið betra. Við erum í reglu- legum og góðum samskiptum við okkar viðskiptavini og treystum á gott samstarf þar sem við byggjum upp okkar siglingakerfi og þjón- ustukerfi í heild sinni eftir þörfum þeirra.“ Starfið er erilsamt sem hentar Söru vel því hún er atorkusöm, bæði í vinnu og einkalífi. „ Fyrir utan vinnu er ég einnig mikið á hlaupum en þá yfirleitt upp fjöll eða á eftir golfkúlu, á skíðum eða á einhverju flakki um landið og best finnst mér ef ég get haft börnin mín tvö, Breka Pál og Stefaníu með mér í för.“ Öflugt siglingakerfi með umhverfisvænni skipum Aðspurð um áherslur í starf henn- ar segir Sara að það felist í því að greina og koma til móts við þarfir viðskiptavina. „Við þekkjum það öll að þarfir okkar breytast og áherslur eru mismunandi í inn- kaupum og framkvæmdum hverju sinni. Ákveðin lönd og markaðs- svæði opnast og þá er það okkar hlutverk að tengja þau inn í kerfið á sem hagkvæmastan og örugg- astan hátt. Pólland og Eystrasalts- löndin eru sennilega nýlegasta dæmið. Stór hópur sem saman- stendur af fólki víðs vegar úr fyrir- tækinu kemur reglulega saman til að meta siglingakerfið okkar og alla tengda þjónustuþætti. Þetta gerum við til að tryggja að allar hliðar í þjónustuferlinu séu ígrundaðar áður en breytingar eru gerðar.“ Hún segir áherslu lagða á viku- legar siglingar og brottfarir í lok vikunnar frá lykilútflutnings- höfnum í Evrópu sem eru vel tengdar öðrum samgöngum svo sem lestum og vöruflutningabif- reiðum. „Með þessu gefum við innflytjendum kost á að koma vörum hvaðanæva að til hafnar og heim til Íslands til afhendingar í upphafi nýrrar viku. Við erum með breiðan flota af stórum og öflugum skipum sem gera okkur kleift að halda enn betur áætlun um leið og við hugum að umhverf- ismálum í útblæstri, nýtingu gáma og tækja. Alltaf þarf þetta að spila saman,“ segir Sara og bætir við að umhverfismálin hafa alltaf verið ofarlega á baugi hjá Eimskip en fyrirtækið var meðal þeirra fyrstu á Íslandi til að setja sér umhverfis- stefnu árið 1991. „Við eigum von á tveimur nýjum skipum síðar á árinu sem eru í smíðum í Kína en þau skip verða þau stærstu sem hafa verið í þjónustu félagsins. Þau skip eru m.a. með búnað sem dregur úr útblæstri köfnunarefnis og brenni- steins og verða umhverfisvænustu skip sem sigla til og frá Íslandi ef miðað er við flutta gámaeiningu. Annað nýlegt dæmi er kraninn okkar Straumur sem er að fullu rafknúinn og skilur því ekki eftir sig kolefnisspor í rekstri. Hann er um 100 metrar hár í hæstu stöðu og getur lyft 70 tonnum og er þar með einn sá hæsti og sterkasti á landinu! Heildarþjónusta alla leið heim að dyrum Sara segir Eimskip bjóða alhliða- þjónustu í f lutningum, svo kallað „one stop shop“. „Við f lytjum allt mögulegt, og stundum ómögulegt, á milli staða, hýsum sendingar, tollafgreiðum og dreifum innan- bæjar eða út á land,“ segir hún og bætir við að það virki í báðar áttir. „Við sækjum líka og sendum vörur til útflutnings og komum þeim út fyrir landsteinana. Fólk vill oft tengja okkur við gámaflutninga enda ekki skrítið þegar það fara yfir 200.000 gámaeiningar um Sundahöfnina á ári hverju. Það má þó ekki gleymast að stór hluti af þeim sendingum sem við önn- umst í viku hverri er brettavara, bílar, tæki og smásendingar pantaðar af netinu. Þetta ýtir enn frekar undir mikilvægi þess gera þjónustuna okkar notendavæna fyrir viðskiptavini með ólíkar þarfir og þekkingu á f lutningum.“ Hún bendir á að þjónustu- vefur Eimskips hafi tekið miklum breytingum undanfarin ár. „Nýja heimasíðan okkar er annað gott dæmi þar sem að hægt er að sækja upplýsingar með einföldum hætti, fá tilboð og rekja sendingar.“ Fyrir alla alls staðar Hún segir að Eimskip sé í raun fyrir alla alls staðar. „Ég gantast oft með það þegar ég er með börnunum, ættingjum eða vinum í verslunum eða á f landri að allar líkur eru á að Eimskip hafi með einhverjum hætti komið að því að koma viðkomandi vöru, bygg- ingu eða farartæki til landsins. Við gegnum mikilvægu hlutverki í samfélaginu og erum meðvituð um það. Vörumerkið okkar er mjög sýnilegt um allt land, hvort sem er í f lutningum eða í gegnum styrki til samfélagsins og því fylgir einnig ábyrgð. Maður getur því ekki annað en fyllst stolti yfir að vinna hjá slíku félagi.“ Metnaðarfullur vinnustaður og reynslumikið starfsfólk Sara bendir á að hjá Eimskipi starfi góður hópur af mjög reynslumiklu fólki með víðtæka þekkingu á mörgum sviðum. „Í svona stóru og alþjóðlegu fyrir- tæki er hægt að bjóða starfsfólki ýmislegt sem minni fyrirtæki hafa síður tök á að bjóða,“ segir hún. „Starfsfólk sem það kýs getur f lust á milli deilda og sviða og þannig byggt upp mikla þekk- ingu, reynslu og öflugt tengslanet sem nýtist vel í þjónustu við viðskiptavini. Þjónustan okkar byggir ekki síst á fólkinu sem hér starfar og því er mikilvægt að hafa vinnustaðinn eftirsóknarverðan. Hér var verið að klára jafnlauna- vottun, búið er að útfæra styttingu vinnuvikunnar og núna í haust er stefnt að því að f lytja alla sem vinna á höfuðstöðvum Eimskips í Reykjavík undir sama þak sem mun auðvelda upplýsingaflæði og ýta undir jákvæðan og góðan starfsanda.“ Sara er bjartsýn fyrir hönd Eimskips í framtíðinni. „ Við munum halda áfram að veita við- skiptavinum okkar áreiðanlega og framúrskarandi þjónustu og búum yfir sveigjanleika og færni til að þjónusta enn f leiri. Ég hvet alla þá sem eru enn þá að lesa til að heyra í okkur til að fá tilboð eða ráðgjöf um flutninga.“ Eimskip er fyrir alla alls staðar Eimskip leggur sig fram við að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu, er í fararbroddi þegar kemur að umhverfismálum og var að klára Jafnlaunavottun. Sara Pálsdóttir, forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip, segir Eimskip meðvitað um mikilvægi hlutverks síns í samfélaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Eimskip leggur mikið upp úr umhverfismálum og gott tæmi er kraninn Straumur sem er að fullu rafknúinn. 8 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFNU
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.