Fréttablaðið - 23.01.2020, Síða 62
Hjá Isavia hefur
Kristín fengið
tækifæri til að
sækja þekk-
ingu og reynslu
úr alþjóðlegu
umhverfi sem
hún telur að
eigi eftir að
nýtast henni
um ókomna tíð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Ég hef alltaf haft áhuga á því að vera í lifandi og krefjandi umhverfi,“ segir Kristín Gests-
dóttir, deildarstjóri innkaupa-
deildar Isavia.
Hún segir forréttindi að fá tæki-
færi til að taka þátt í svo umfangs-
miklu verkefni en á sama tíma
mikil áskorun.
„Ég hef stundum verið spurð
hvað þurfi til að byggja upp inn-
kaupadeild hjá svo stóru fyrir-
tæki og svarið er meðal annars að
átta sig á því að það er engin ein
manneskja sem dregur vagninn
heldur þarf til þess öflugt teymi.
Auk þess er mikilvægt að átta sig á
og viðurkenna að við höfum ekki
alltaf svörin en það er lykilþáttur
þegar kemur að því að læra og gera
hlutina vel til framtíðar.“
Umfangsmikið starf
Innkaupadeild Isavia er hluti af
fjármálasviði fyrirtækisins. Þar
starfa sjö manns sem sinna inn-
kaupaþjónustu fyrir öll félög innan
Isavia-samstæðunnar.
„Rekstur Isavia er afar umfangs-
mikill og því spanna verkefni
deildarinnar allt frá innkaupum
á daglegri rekstrarvöru yfir í stór
og flókin útboð á vöru, þjónustu
og verkum. Þá er Isavia opinbert
hlutafélag og fellur undir lög um
opinber innkaup sem fylgja ýmsar
áskoranir,“ upplýsir Kristín.
Innkaupadeildin var stofnuð
haustið 2017. Markmiðið var að
auka hagkvæmni og skilvirkni í
innkaupum og nýta þær leiðir sem
innkaupaumhverfi opinbers hluta-
félags býður upp á.
„Á þeim tíma hafði orðið mikil
aukning í innkaupum félagsins og
flækjustig þeirra aukist til muna.
Því var mikilvægt að bæta yfirsýn
og styrkja innkaupainnviðina,“
segir Kristín sem leitt hefur upp-
byggingu deildarinnar frá því hún
var stofnuð.
Kristín er menntaður kennari
en býr einnig að því að hafa lokið
áföngum í lögfræði.
„Ég stefni að því að ljúka laga-
náminu, einfaldlega vegna þess
að ég hef áhuga á þeim fræðum en
ekki af því ég telji mig þurfa þess
til að verða betri stjórnandi. Mitt
nám hefur nýst mér afar vel síðustu
árin en ég hef auðvitað þurft að
viða að mér þekkingu á lagaum-
hverfi opinberra innkaupa. Ég hef
fengið tækifæri til að sækja meðal
annars þessa þekkingu og reynslu
úr alþjóðlegu umhverfi sem á eftir
að nýtast mér um ókomna tíð,“
segir Kristín.
Þurft að hafa fyrir hlutunum
Kristín var ráðin til Isavia árið
2016, í starf innkaupasérfræðings á
Keflavíkurflugvelli. Áður, frá árinu
2011, hafi hún starfað við innkaup
hjá Alcoa Fjarðaáli. Hún segir
þá reynslu hafa verið afar dýr-
mæta. Hjá Alcoa hafi innkaupa-
ferlar verið mjög vandaðir og mikil
áhersla lögð á að fylgja þeim.
„Ég var heppin að fá að kynn-
ast flestum hliðum innkaupa í
störfum mínum fyrir austan, allt
frá þarfagreiningum til afhending-
ar á vörum eða þjónustu og rekstri
samninga. Frá tíma mínum hjá
Alcoa tók ég með mér ómetanlega
þekkingu og reynslu sem styrkti
mig og mun nýtast mér áfram,“
segir Kristín.
Segja má að Alcoa og Isavia eigi
sameiginlegt að vera með starf-
semi í karllægu umhverfi en það
er þó að breytast hjá Isavia, segir
Kristín.
„Auðvitað er það svo að ég sem
ung kona hef alveg þurft að hafa
Brennur fyrir krefjandi umhverfi
Isavia er þjónustufyrirtæki í ferðaþjónustu og hjá því starfa um 1.300 manns. Mikill vöxtur hefur
einkennt rekstur félagsins undanfarin ár sem kallað hefur á margar ólíkar áskoranir og úrlausnir.
fyrir hlutunum og upplifa mig í
aðstæðum sem reyna á. Ég á unga
dóttur og vil að hún fái sömu tæki-
færi og möguleika í lífinu og sonur
minn. Þrátt fyrir að þjóðfélagið sé
alltaf að verða meðvitaðra um jafn-
rétti þá er það því miður stundum
einungis í orði en breytingum þarf
að fylgja breyttur hugsunarháttur,
aðgerðir og hugrekki. Hjá Isavia
hef ég fengið mikinn stuðning og
stjórnendur þess hafa lýst því yfir
að þeir vilji mýkja ásýnd félagsins
með fjölbreytileika. Ég er mjög stolt
af því að vera hluti af þessum frá-
bæra hóp starfsmanna hjá Isavia,“
segir Kristín.
Hefur stundum hlaupið hratt
Mikil uppbygging hefur átt sér stað
hjá Isavia síðustu ár og fyrirhug-
aðar eru umfangsmiklar fram-
kvæmdir við stækkun Keflavíkur-
flugvallar. Við slíkar aðstæður
er lykilatriði að öll vinna við
aðkeypta þjónustu, vöru og verk sé
vönduð, skili tilætluðum árangri og
uppfylli með því kröfur sem gerðar
eru til félagsins.
„Aukin umsvif á Keflavíkurflug-
velli hafa gerbreytt rekstrarum-
hverfi okkar og aukið flækjustig
til muna. Á sama tíma höfum við
byggt upp og styrkt innviði okkar
en það tekur tíma. Við höfum gert
okkur vel grein fyrir mikilvægi
þess að sækja okkur þekkingu og
reynslu annars staðar frá, meðal
annars með aðkeyptri þjónustu.
Þegar kemur að slíkum verkefnum
er mikilvægt að vita hvað við erum
að biðja um,“ segir Kristín.
Nýverið undirritaði Isavia lang-
tímasamning við breska bygg-
inga- og ráðgjafafyrirtækið Mace
um verkefnastjórnun og verkyfirlit
vegna fyrirhugaðra framkvæmda
við stækkun Keflavíkurflugvallar.
Kristín segir það hafa verið afar
stórt og flókið innkaupaverkefni.
„Í tilfelli Mace vorum við í raun
að sækja okkur samstarfsaðila til
að vinna mjög náið með á næstu
árum og þannig styrkja okkar
eigin innviði til að takast á við
og stýra jafn umfangsmiklum
framkvæmdum og uppbyggingar-
áætlun Keflavíkurflugvallar gerir
ráð fyrir. Við skulum ekki gleyma
því að uppbyggingaráætlun Kefla-
víkurflugvallar hleypur á mörgum
tugum, ef ekki vel á annað hundrað
milljörðum króna, og því er mikið í
húfi,“ upplýsir Kristín.
Sú innkaupaleið sem varð fyrir
valinu var samningskaup að
undangenginni útboðsauglýsingu.
„Ég fékk tækifæri til að verk-
efnastýra því verkefni sem var
ofboðslega mikill lærdómur fyrir
mig. Einn af lykilþáttum þess verk-
efnis var að átta okkur á hverju
við værum í rauninni að leitast
eftir, draga rétta hagsmunaaðila
að borðinu og fá bestu mögulegu
lausn til lengri tíma. Þessi innkaup
tóku rúmlega ár og það voru fjöl-
margar hendur sem komu að því
verkefni en eingöngu með sam-
stilltu átaki allra tókst að sigla svo
stóru verkefni í höfn,“ segir Kristín.
Síðustu misseri hafa verið anna-
söm hjá Kristínu sem segir það geta
reynt á að finna jafnvægi milli allra
hlutverka og áhugamála.
„Vissulega hef ég stundum
hlaupið of hratt en ég brenn fyrir
því sem ég geri. Það er styrkleiki
sem getur unnið gegn mér ef ég
gæti ekki að hvíldinni. Ég held
stundum að klukkustundir í sólar-
hringnum séu fleiri en þær eru.
Ég er að læra mikilvægi þess að
stoppa og meðtaka líðandi stundir.
Þannig finnur maður jafnvægi og
fær tækifæri til að draga lærdóm
af verkefnum, samferðamönnum
og umhverfinu. Það er í góðu lagi
að skipta niður langhlaupinu og
hægja á hraðanum því markmiðið
er alltaf að njóta ferðalagsins í átt
að endatakmarkinu,“ segir Kristín
og brosir.
Sem ung kona hef
ég alveg þurft að
hafa fyrir hlutunum. Ég
á unga dóttur og vil að
hún fái sömu tækifæri og
möguleika í lífinu og
sonur minn.
40 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RKONUR Í ATVINNULÍFNU