Hugur og hönd - 01.06.2002, Blaðsíða 9
Á hurðarveggnum vinstra megin er hópur þriggja drengja með hljóS-
fizri í höndunum. Einn þeirra er með dómaraflautu, annar með litla
hörpu og hinn þriðji meðþríhyrning. Hetgra megin við dyrnar stend-
ur drengur á skýi og heldur á hrossabresti.
er á stærð við íslenska sveitakirkju, er
um 300 ára gömul. En í suðrænum
löndum er ekki óalgengt að auðugir
menn eigi litlar fjölskyldukapellur. Eig-
endurnir, Alessandro Nieri og Eva Per-
ini, eru miklir unnendur nútímalistar og
höíðu meðal annars keypt verk eftir
Helga. Þegar svo kom að því að ákveða
hver skyldi skreyta kapelluna við endur-
gerð hennar, ákváðu þau hjónin að bjóða
Helga að skreyta tvo af fjórum veggjum
hennar, kórinn og vegginn á móti hon-
um, þar sem gengið er inn í kapelluna.
Eigendur kapellunnar gerðu ekki sér-
stakar kröfur um tæknina sem notuð
yrði við skreytinguna. En eftir að hafa
skoðað staðinn fannst Helga ekkert ann-
að en freska koma til greina, jafnvel þó
að hann hefði aldrei fyrr unnið að
freskugerð. Fyrsta verk hans var því að
kynna sér tæknina. Um fjögurra mánaða
skeið las hann bækur hér heima og vann
allar skissur í fullri stærð áður en hann
fór utan og hófst handa við verkið sjálft.
Myndin á kórveggnum er átta metrar á
breidd og fjórir á hæð en úthlið kapell-
unnar fjórir á breidd og hartnær átta
metrar á hæð.
Freska er mynd sem máluð er beint á
vegg, en undirbúa þarf vegginn fyrst
með því að bera á hann húð af kalk- og
sandblöndu. Utlínur myndanna eru
Neðst á kórveggnum sjást tindar Snæfellsness.
HUGUROGHÖND 9