Hugur og hönd - 01.06.2002, Page 45
höfðu 17 lykkjur á prjóni og bættu þá
einni lykkju í skástrenginn á laufaviðn-
um, höfðu 3 lykkjur þar sem 2 eru ef 16
eru á prjóni. Rönd á þumli var líka
sleppt.
Ég mæli með að prjóna laufaviðarvett-
linga úr íslensku kambgarni þar sem ís-
lenskt þelband mun nú vandfengið.
Gott er að prjóna það á prjóna nr. 2 'h og
lóa vettlingana ögn á milli handa sinna
um leið og þeir eru þvegnir á eftir“.
Vettlingana á meðfylgjandi mynd lán-
aði Jóhanna fyrir fáum árum til mynda-
töku. Þeir eru úr heimaspunnu þelbandi.
I framhaldi af grein um laufaviðarvett-
linga sem birtist í síðasta tölublaði Hug-
ar og handar þótti forvitnilegt að vita
hvort sömu hugtök, aðferðir og munstur
hefðu verið notuð alls staðar á Vestfjörð-
um. Var því enn ieitað til Jóhönnu um
upplýsingar. Hún kannaðist við öll heiti
sem nefnd eru í greininni um prjónaskap
í Reykjarfirði og kvað þau hafa verið not-
uð í sinni heimasveit. Eini munurinn
sem hún taldi vera á vettlingum Reyk-
firðinga og Onfirðinga var áttablaðarós-
in á handarbakinu, hún hefði ekki verið
notuð annars staðar en á Hornströnd-
um.
Jóhanna Kristjánsdóttir sendi Hug og
hönd nokkrar vettlingauppskriftir til
birtingar árið 1996 og skal henni hér
þakkaður allur hennar velvilji í garð
blaðsins. Sú uppskrift sem hér fer á eftir
varð fyrir valinu vegna þess að í henni
eru fæstar lykkjur á prjóni og hentar hún
því trúlega best því prjónabandi sem fæst
um þessar mundir.
Gréta E. Pálsdóttir
Vestfirskir laufaviðarvettlingar
Prjónaðir úr tvinnuðu þelbandi (eða
íslensku kambgarni), á prjóna nr. 2. Fitj-
aðar upp 14 lykkjur á prjón, nema 15 á
einn, til þess að standi heima að prjóna 2
1. sléttar og eina brugðna. Brugðningin
er 7 eða 8 umferðir, venjulega svört.
Aukið er í um leið og breytt er í slétt
prjón og skipt yfir í aðallit, sem oftast er
mórauður en stundum grár eða hvítur.
Aftur er aukið í um leið og byrjað er að
prjóna tvíbanda, 16 1. eru á prjóni í
laufavið og gripa. Aukið er í til að liðka
fyrir þumalfingri og er sú aukning öll á
þumalprjóninum. 3 1. eru svo teknar úr
um leið og prjónað er fyrir þumli og 1 1.
á sama prjón eftir 4 umf. 28 umf. eru frá
þumli að mynstri. Á þumli eru 26 1.; 12
og 7 og 7 á prjóni.
Á þessari teikningu er aðeins sýnd 1
umf. með grunniit, áður en laufaviður
byrjar og eftir hann, en ég er vön að hafa
þær tvær.
Litum má haga á ýmsa vegu, eftir geð-
þótta og smekkvísi, en venja var að hafa
laufaviðinn ljósan á dökkum grunni. Á
þelvettlingum með sauðalitum er laufa-
viðurinn alltaf ljósmórauður í svörtu. En
í vettlingum úr kambgarni hef ég haft
hann ýmist rauðan, grænan eða gulan
eins og gert var í gamla daga. Líka er fal-
legt að hafa drapplitan laufavið í kamb-
garnsvettlingum.
Jóhanna Kristjánsdóttir
HUGUROGHÖND 45