Bændablaðið - 22.09.2016, Page 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
landbúnaðarlandi í ríkjum ESB notað
undir lífræna ræktun, en það jókst í
5,9% á árinu 2014. Hlutfallið er þó
mun hærra í sumum löndum ESB
samkvæmt úttekt Eurostat. Þannig var
hlutfallið yfir 16% í Eistlandi, Svíþjóð
og Austurríki. Í Lettlandi, Ítalíu og í
Tékklandi var hlutfallið yfir 10% af
heildar landbúnaðarlandinu. Í öðrum
löndum var það á milli 0,3% eins og á
Möltu og upp í 9,5% í Slóvakíu.
Framtíðarsýnin
Lífrænn landbúnaður byggir, eins og
nafnið bendir til, á ræktun á náttúru-
legan hátt án aðkomu kemískra efna.
Þar er t.d. útilokuð notkun á kemísk-
um áburði, gróðureyðingarefnum og
skordýraeitri. Innan hins umdeilda
landbúnaðarkerfis Evrópu sam bands-
ins (Common Agri cultural Policy -
CAP) er litið á lífrænan búskap sem
mikilvægan þátt í þróun landbúnaðar í
Evrópu. Þar hafa menn bent á að innan
lífræna geirans sé oft að finna mestu
frumkvöðlana í þróun landbúnaðar.
Þá hefur lífrænn búskapur verið að
vaxa talsvert frá 2014 í skjóli áætlun-
ar Evrópuráðsins sem ber
heitið „Action Plan for
the future of Organic
Production in the
European Union“.
Þróunin mishröð
eftir löndum°
Lífræn ræktun er
mjög mismunandi
i aðildarríkjum ESB.
Þannig standa fjögur lönd
fyrir um 51% lífrænu rækt-
unarinnar með tilliti til framleiðslu
og landnotkunar. Það er Spánn með
16,6%, Ítalía með 13,5%, Frakkland
með 10,8% og Þýskaland er með 10%
af heild lífræns búskapar innan ESB.
Áður en land getur fallið undir
skilgreininguna lífrænt, þarf það að
fara í aðlögun. Land sem verið er að
umbreyta í lífrænt land gefur vís-
bendingu um hvernig þróunin í lífræna
geiranum verði á komandi árum. Af
heildartölum um land sem er komið í
fulla notkun og er verið að umbreyta
fyrir lífræna ræktun, er hlutfall lands
í aðlögun lægst í Bretlandi, eða 3,5%.
Þrettán lönd innan ESB eru
með á milli 10 og 20% af skil-
greindu landsvæði í lífrænni ræktun
í aðlögunarferli. Sjö lönd eru með
meira en 20% hlutfall af sínu lífræna
landi í aðlögun. Hæsta hlutfallið er á
Möltu (49,8%), í Króatíu (55,1% og í
Búlgaríu (68,3). Þessar tölur segja þó
ekki til um hlutfall af öllu landbúnað-
arlandi í viðkomandi löndum. Þannig
var hlutfall lands
sem verið er að
aðlaga undir líf-
ræna framleiðslu
hæst í Búlgaríu, en
þar var samt samdráttur í
heildarnotkun lands í lífræna
geiranum.
Veruleg aukning á lífrænum búskap
á Spáni og á Ítalíu
Á árunum 2013 til 2014 óx lífrænn
búskapur í Króatíu, Möltu og Slóvakíu
um 10% samkvæmt tölum Eurostat.
Á Spáni hefur stóraukið land verið
sett undir lífræna ræktun og jókst það
á þessum árum í 100.300 hektara.
Aukningin á Ítalíu var líka mikil, en
þar jókst landrými lífrænnar ræktunar
í 70.700 hektara.
Samdráttur á sumum svæðum
Þrátt fyrri þessa miklu jákvæðu þróun
í nokkrum ESB-löndum dróst lífræn
framleiðsla saman í 12 löndum sam-
bandsins. Mestur var samdrátturinn
í Búlgaríu þar sem 8.3737 hektarar
voru teknir úr lífrænni ræktun sem er
samdráttur upp á nær 15%. Á Kýpur
voru 428 hektarar teknir úr slíkri rækt-
un sem er um 10% samdráttur.
www.buvis.is
Búvís ehf · Akureyri
Sími 465 1332
1. október frá kl. 15 til 17
að Páfastöðum í Skagafirði.
Léttar veitingar.
BAUER fastefnaskilja
og haughrærubúnaður
Fastefnaskilja skilur ómeltar trefjar úr mykjunni.
Afurðin er notuð sem undirburður.
· Sparnaður til lengri tíma (í undirburði)
· Aukin velferð kúnna
· Aukinn legutími (meiri mjólk)
· Hreinni kýr
Notast einnig til að skilja úrgang
í fiskiðnaði og sláturhúsum.
BAUER haughræra
· Olíufylltur mótor
· Hæðarstillanleg
· Snúanleg
· Fáanleg með sjálfvirkri tímastillingu
BAUER kynning á Páfastöðum
0
200.000
400.000
600.000
800.000
1.000.000
1.200.000
1.400.000
1.600.000
1.800.000
Be
lg
ía
Au
st
ur
rík
i
Br
et
la
nd
Bú
lg
ar
ía
Da
nm
ör
k
Ei
st
la
nd
Fi
nn
la
nd
Fr
ak
kl
an
d
Gr
ik
kl
an
d
Ho
lla
nd
Írl
an
d
Íta
lía
Kr
óa
tía
Ký
pu
r
Le
tt
la
nd
Li
th
áe
n
Lú
xe
m
bo
rg
M
al
ta
Po
rt
úg
al
Pó
lla
nd
Rú
m
en
ía
Sl
óv
ak
ía
Sl
óv
en
ía
Sp
án
n
Sv
íþ
jó
ð
Té
kk
la
nd
Un
gv
er
ja
la
nd
Þý
sk
al
an
d
N
or
eg
ur
*
Sv
iss
*
Se
rb
ía
*
Ty
rk
la
nd
*
Land undir lífræna ræktun í 32 Evrópuríkjum 2013 og 2014
2013
2014
Hugsaðu áður en þú borð-
ar, eða hugsaðu um hvað
þú setur ofan í þig, eru
ein af slagorðum líf-
rænna neytenda.
Fólk sem leitar eftir matvælum sem það getur treyst að séu framleidd með
vistvænum hætti sækist æ meir eftir matvælum sem framleidd eru samkvæmt
forskrift framleiðenda á lífrænum afurðum.
HÚS - BITAR - SÚLUR - ÞÖK
HAFÐU SAMBAND OG VIÐ FINNUM LAUSNINA SAMAN