Bændablaðið - 28.01.2016, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 28.01.2016, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2016 Sensor ennisljós með snertilausum rofa Uniform hlaðanlegt COB LED vinnuljós Miniform hlaðanlegt COB LED vinnuljós Flash 100 vasaljós 3.500 kr. Almennt verð: 5.879 kr. 8.990 kr. Almennt verð: 14.771 kr. 5.990 kr. Almennt verð: 9.831 kr. 3.500 kr. Almennt verð: 5.879 kr. Scangrip er skínandi vinnufélagi Öflugt ennisljós með snertilausum rofa og „zoomi“. Lýsir allt að 40 metra. Gengur fyrir 3xAAA/1,5V rafhlöðum. IP54 vottað. Kröftugt og sterkt LED vinnuljós sem kemur með hleðsludokku, öflugum segli og krók. 100/200 lumen. Hleðsla í allt að 6 klst. á 100 lumen og 3 klst. á 200 lumen. IP65 vottað. Þunnt og öflugt vinnuljós. Öflugur segull og krókur. 55/110 lumen. Hleðsla í allt að 5 klst. á 55 lumen og 2,5 klst. á 110 lumen. IP20 vottað. Mjög sterkt og öflugt vasaljós með „zoomi“ 10°–70°. Kemur með nælon mittishulstri og er 130 lumen. IP54 vottað. Verslanir N1 um land allt Akureyri s. 440 1420 • Grindavík s. 426 8290 • Höfn s. 478 1940 Ísafjörður s. 456 3574 • Klettagarðar s. 440 1330 • Ólafsvík s. 436 1581 Patreksfjörður s. 456 1245 • Reyðarfjörður s. 474 1293 Reykjanesbær s. 421 4980 • Vestmannaeyjar s. 481 1127 Vörunúmer: 893 03.5025 Vörunúmer: 893 03.5070 Vörunúmer: 893 03.5060 Vörunúmer: 893 03.5105 Frábær verð á radial dekkjum ! Höfum hafi ð innfl utning á Dráttarvéla dekkjum frá Infi nity Símar 565-2727, 892-7502 - rafn@rag.is Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Slit-diskar í atvinnutæki - Bremsur - Kúplingar - Gírkassar - Drif Vinnuvélar - Lyftarar - Dráttavélar - Vörubílar Ólafur Reykdal, matvælafræðingur hjá Matís, hefur trú á framtíðarmöguleikum kornræktar: Gott og heilsusamlegt bygg til manneldis Ólafur Reykdal, matvælafræðing- ur hjá Matís, ritaði grein á vef Matís í byrjun janúar þar sem hann gerði grein fyrir verkefn- um sem hann hefur unnið að á undanförnum árum, sem miða að því að innlent korn verði í auknum mæli nýtt til matvælaframleiðslu Íslandi. Ólafur segir í viðtali við Bændablaðið að frá 2005 hafi verið unnið að verkefnum hjá Matís sem hafi það að markmiði að inn- lent bygg sé notað meira til mat- vælaframleiðslu á Íslandi. Fyrst sem innlent verkefni í samstarfi Matís og Landbúnaðarháskóla Íslands – með þátttöku matvælaiðnaðarins – og síðar í samnorrænu verkefni. „Í íslenska verkefninu vorum við að prófa framleiðslu á ýmsum matvæl- um úr íslenska bygginu. Niðurstaðan var sú að íslenska byggið stóð fylli- lega undir væntingum og við fram- leiddum ágætar matvörur. Byggi er alltaf blandað saman við hveiti þegar framleidd eru brauð sem þurfa að ná lyftingu. Byggið eitt og sér hentar í ýmsar vörur eins og kex, flatkökur og morgunkorn. Einnig má geta þess að það tókst að framleiða malt úr bygginu og brugga úr því bjór.“ Þrýstingur á norðlæg landsvæði að framleiða matvæli „Í framhaldinu fengum við kornverkefni gegnum norræna Atlantshafssamstarfið og tókum þá upp samstarf við Norðmenn, Færeyinga og fólk frá Orkneyjum og Nýfundnalandi. Tilraunir voru gerðar með ræktun á nokkrum byggyrkjum í öllum löndun- um,“ segir Ólafur. „Byggyrki frá Landbúnaðarháskólanum var þar á meðal og gæti það átt framtíð fyrir sér erlendis. Samstarfið var svo víkkað út og sótt um verkefni hjá Norðurslóðaáætluninni en það fjallar um alla virðiskeðju korns frá ræktun til matvæla. Verkefnið fékk stuðning og var það ekki síst vegna þess að talið var að kornrækt mundi flytjast norður á bóginn vegna umhverfis- breytinga. Uppskera getur brugðist sunnar á hnettinum vegna þurrka og því verður meiri þrýstingur á norð- lægari svæði að framleiða matvæli. Matís og Landbúnaðarháskólinn hafa átt ágætt samstarf um rann- sóknir á afurðum allt frá ræktun til neytenda. Verkaskiptingin er sú að Landbúnaðarháskólinn sér um allt sem snýr að ræktun og fóðri en Matís sér um það sem snýr að matvælaiðnaðinum, gæðum og mælingum. Að sögn Ólafs hefur lega Íslands verið á norðurmörkum svokallaðs kornræktarbeltis. Hann segir að þrátt fyrir erfitt síðasta ár í korn- ræktinni á Íslandi hafi korn af ágæt- um gæðum verið skorið. „Gerðar hafa verið mælingar á korninu frá Þorvaldseyrarbúinu 2015 og reynd- ust gæðin vera fyrsta flokks eins og árin á undan. Það verður því fáanlegt korn fyrir matvælaiðnað og mun fyrirtækið Kornax dreifa því til iðnaðarins. Þess verður að geta að kornuppskera brást á viss- um svæðum landsins 2015, þó svo að mjög góð uppskera hafi fengist 2014. Við höfum nýlega gert mælingar á sterkju í bygginu og var hún síst minni en erlendis gerist. Þetta eru góðar upplýsingar fyrir bökunar- iðnaðinn. Þegar korn er skorið í bleytutíð er sérstök ástæða til að fylgjast með myglu því í henni geta myndast eiturefni sem geta skaðað bæði skepnur og fólk. Við létum því mæla þessi eiturefni í byggi síð- ast liðið haust. Þessi efni mældust ekki og eru það mjög góðar fréttir, ekki síst með tilliti til veðurfarsins. Í Evrópu og ýmsum hlýjum löndum er eiturmyndun í myglu alvarlegt vandamál og brugðist er við því með notkun varnarefna. Á Íslandi hjálpar kuldinn okkur þar sem skaðvaldar eru fáir. Íslenskt bygg er nú notað með góðum árangri við framleiðslu brauða og á sú notkun örugglega eftir að aukast.“ Hollustuupplýsingar um byggið á umbúðum matvæla Ólafur segir meginhluta byggupp- skerunnar alltaf verða nýttur í fóður en telur að eftirspurn frá matvæla- iðnaði og almenningi mun fara vax- andi. „Skýringin er sú að á síðustu árum hefur verið sýnt fram á holl- ustugildi byggsins og það hefur ýmsa kosti framyfir hveitið. Rannsóknir í Noregi hafa sýnt fram á að byggið inniheldur hollustuefnin beta-glúk- ana og andoxunarefni en hveiti inni- heldur nær ekkert af beta-glúkönum. Þetta hefur verið viðurkennt með því að nú leyfir reglugerð um heilsufull- yrðingar að upplýsingar um hollustu byggs séu prentaðar á umbúðir mat- væla. Það er því ekki spurning að matvælaiðnaðurinn mun sækjast eftir byggi til að geta prentað fullyrðingar um hollustu á umbúðir matvælanna.“ Eymundur í Vallanesi er líklega sá kornbóndi á Íslandi sem hefur náð hvað mestum árangri í ræktun á byggi til manneldis og hann ræktar lífrænt vottað bygg án eitur- eða varnarefna. Hann hefur haldið á lofti góðum heilsufarslegum áhrifum sem neysla á byggi hefur. Ólafur segir það rétt að í lífrænu ræktuninni eru ekki notuð varnarefni eða tilbúinn áburður. „Í byggræktinni á Íslandi eru víðast hvar engin varnarefni notuð gegn myglu og illgresi þótt einhverjir hafi prófað slík efni. Ef hér hlýnar sem einhverju nemur gæti þurft að nota varnarefni. Góð heilsufarsleg áhrif hafa nú verið staðfest og Eymundur hefur því haft rétt fyrir sér í mörg ár. Það eru einkum Norðmenn sem hafa rannsak- að heilsufarsáhrif byggsins. Við höfum svo getað staðfest að hollustuefni eru til staðar í íslenska bygginu.“ Korn flutt inn fyrir níu milljarða árið 2014 „Ég sé fyrir mér að eftirspurn verði eftir byggi til matvælaframleiðslu og fyrir neytendamarkað en stærsti hluti framleiðslunnar fer til fóðurgerðar,“ segir Ólafur spurður um framtíðar- horfur. „Við getum litið til Norðmanna en þeir framleiða nú yfir 400 þúsund tonn af byggi árlega og nýta af því um þrjú þúsund tonn til matvælafram- leiðslu og hafa uppi áform um að auka manneldisnotkunina til að bæta heilsu þjóðarinnar. Notkun á korni á Íslandi er umtals- verð. Árið 2014 var flutt inn korn og kornvörur fyrir rúma níu milljarða króna. Innflutt fóðurkorn var um 57 þúsund tonn og innflutt korn til mat- vælaframleiðslu var um 18 þúsund tonn. Bygguppskeran á Íslandi þetta ár var tæplega 14 þúsund tonn og er ljóst að hún hefur sparað gjaldeyri. Til gamans má geta þess að flutt voru inn tæp tvö þúsund tonn af morgunkorni. Tækifærin til nýsköpunar eru mörg.“ /smh Efri myndin sýnir pakkningu af perlubyggi frá Vallanesi á Fljóts- dalshéraði. Neðri myndin er af stein- möluðu byggmjöli frá Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Bændur á báðum stöðum hafa náð ágætum árangri í ræktun á byggi til manneldis. Ólafur Reykdal, matvælafræðingur hjá Matís. Byggi er alltaf blandað saman við hveiti þegar framleidd eru brauð sem þurfa að ná lyftingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.