Bændablaðið - 28.01.2016, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2016
Alls voru 1.360 hross flutt frá
Íslandi á árinu 2015. Reynast þau
nokkuð fleiri en þau hross er fóru
utan árlega á síðustu fimm árum.
Hlutfall hrossa með fyrstu verð-
laun í kynbótadómi hefur einnig
hækkað.
Hrossin 1.360 fóru víða um heim
og voru send til 18 landa, samkvæmt
WorldFeng, upprunaættbók Íslenska
hestsins. Líkt og fyrri ár fóru lang-
flest hrossin til Þýskalands, 529 tals-
ins, 219 hross fóru til Svíþjóðar og
165 til Danmerkur.
Þá fóru 94 hross til Sviss, sem
virðist vera stækkandi markaður, og
75 til Austurríkis sem er minni fjöldi
en undanfarin ár. Noregsmarkaður
hefur dregist jafnt og þétt saman
en 59 hross fóru þangað árið 2015
sem er töluvert lægra en á árunum
2005–2010 þegar yfir 100 hross
fóru þangað á ári. Hins vegar virð-
ast markaðir fyrir íslensk hross vera
að glæðast í Finnlandi eftir nokkra
lægð, 50 hross fóru þangað árið 2015
sem er mesti fjöldi sem sést hefur
síðan 2009.
Af minni mörkuðum sem glædd-
ust á árinu má nefna að tíu hross fóru
til Grænlands, tíu til Bretlands, 22
til Frakklands og 16 til Belgíu. Alls
yfirgáfu 233 stóðhestar landið, 661
hryssa og 466 geldingar.
Gæðahross í nýjum heimkynnum
Af þeim hrossum sem yfirgáfu Ísland
höfðu 111 hross hlotið fyrstu verð-
launa kynbótadóm. Þetta reynist vera
8,2% af útfluttum hrossum ársins
og er hækkunin töluverð miðað við
fyrri ár. Frá árunum 2005 til 2010
var hlutfallið undir 5%. Á árunum
eftir það fór hlutfallið að hækka jafnt
og þétt frá 5,5% árið 2011 í 6,5%
árið 2014.
Hæst dæmda útflutta hross
ársins er Glóðafeykir frá Halakoti
sem hlaut 8,75 í aðaleinkunn. Hann
fór til Frakklands. Af öðrum hátt
dæmdum stóðhestum má nefna
Blæ frá Miðsitju (ae. 8,64) sem
fór til Danmerkur, Andvara frá
Auðsholtshjáleigu (ae. 8,61) sem fór
til Þýskalands, Þröst frá Hvammi (ae.
8,59) sem fór til Bandaríkjanna og
Sleipnisbikarhafann frá Landsmóti
2014, Vilmund frá Feti (ae. 8,56),
en hann fór til Þýskalands.
Hæst dæmda útflutta hryssa
ársins er Garún frá Árbæ en hún
hlaut 8,62 í aðaleinkunn þegar
hún sigraði flokk 6 vetra hryssa á
Heimsleikum íslenska hestsins í
Danmörku. Ný heimkynni hennar
eru í Noregi.
HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
Hlutfall útfluttra 1. verðlauna hrossa í sögulegu hámarki:
Fleiri hross fara út
2015 2005–2015
Þýskaland 529 4562
Svíþjóð 219 2956
Danmörk 165 2675
Sviss 94 935
Austurríki 75 735
Noregur 59 982
Finnland 50 832
Holland 44 355
USA 39 493
Frakkland 22 143
10 stærstu kaupendur
íslenskra hrossa erlendis
Fjöldi
útfluttra
hrossa
Hlutfall hrossa
með
1. verðlaun
2005 1501 4,2%
2006 1360 4,0%
2007 1496 3,7%
2008 1776 3,8%
2009 1587 4,4%
2010 1158 4,4%
2011 1136 5,5%
2012 1333 6,3%
2013 1236 6,4%
2014 1269 6,5%
2015 1360 8,2%
Nafn Uppruni Aðaleinkunn Útflutningsland
Glóðafeykir Halakoti 8.75 FR
Blær Miðsitju 8.64 DK
Andvari Auðsholtshjáleigu 8.61 DE
Þröstur Hvammi 8.59 US
Garún Árbæ 8.58 NO
Vilmundur Feti 8.56 DE
Kappi Kommu 8.51 DK
Bylur Breiðholti, Gbr. 8.50 NO
Klettur Hvammi 8.49 DE
Glitnir Eikarbrekku 8.48 SE
Tinni Kjarri 8.45 DE
Ás Ármóti 8.45 NL
Þráður Þúfu í Landeyjum 8.44 NO
Borgar Strandarhjáleigu 8.44 DE
Lektor Ytra-Dalsgerði 8.42 AT
Ríkey Flekkudal 8.40 DK
Kapall Kommu 8.40 DK
Stjörnustæll Dalvík 8.40 NO
Geisli Svanavatni 8.40 DK
Roði Garði 8.39 SE
20 hæst dæmdu útflutningshross ársins 2015
Sex hlutu styrk úr
Stofnverndarsjóði
Fagráð í hrossarækt afgreiddi fyrir
jól umsóknir í Stofnverndarsjóð
árið 2015. Átta umsóknir bár-
ust í sjóðinn en til úthlutunar
voru 13.300.000 krónur. Sex
verkefni hlutu styrk. Hæstan
styrk hlaut þýðing á prentun á
Knapamerkjabókum, 6.800.000
krónur. Þróun á kynbóta-
mati íslenska hestsins hlaut
2.000.000 kr., Snjalltæknivæðing
WorldFengs.com fékk einnig
2.000.000 kr. Erfðarannsóknir
á drómasýki í íslenska hestinun
fékk 1.500.000 kr. og rannsóknir
á áhrifum holdarstigs íslenskra
hesta á efnaskipti, þrek, jafnvægi
í hreyfingum og endurheimt hlaut
1.500.000 kr. Þá var könnun á mati
á eiginleikanum vilji og geðslag í
kynbótadómi í íslenskri hrossa-
rækt styrkt um 150.000 kr.
Tilgangur Stofnverndarsjóðs
íslenska hestsins er að veita styrki
til þróunar- og rannsóknaverkefna í
hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla
að viðhaldi verðmætra eiginleika í
íslenska hrossastofninum, verndun
erfðafjölbreytileika stofnsins og/
eða auka þekkingu á stofninum og
útbreiðslu hans, samkvæmt reglu-
gerð.
Glóðafeykir frá Halakoti er hæst dæmda hross ársins. Hann fór sem fulltrúi
Íslands á Heimsmeistaramótið í Danmörku en ný heimkynni hans eru í Frakk-
landi. Hér fagna Glóðafeykir og Einar Öder Magnússon Landsmótssigri í
Blær frá Miðsitju hlaut sinn hæsta dóm í sumar, 8,64, en fór síðan til Danmerkur þar sem stefnt er með hann á keppni. Mynd / Jón Björnsson
hlotið fyrstu verðlaun í kynbótadómi.