Bændablaðið - 28.01.2016, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2016
Þeir sem hafa komið í danskan
eða skánskan beykiskóg í full-
um skrúða skilja vel hugtakið
„skógarsalur“ sem einhvers
staðar komst inn í íslenskar bók-
menntir – og gott ef ekki er í frægri
Kjarvalsmynd líka.
Fáar ef nokkur af norðlægum
trjátegundum myndar jafn hályft-
an skóg með súlulaga trjábolum
með sléttum og gljáfægðum berki.
Birtan fær dularfulla grágræna slikju
og á skógarbotninum skrjáfar fallið
lauf frá fyrra sumri. Á stöku stað
eru breiður af blómstrandi snotr-
um, hvítum og gulum, innan um
laufruskið meðan laufþekjan er enn
ekki fullútsprungin. Og jafnvel hinn
stæki hrammlaukur (Allium ursinum
L.) þar sem raki og birta leyfir.
Evrópskt eðaltré í útrás
Beyki, Fagus sylvatica L., er eitt
af megintrjám laufskóganna í
Vestur-Evrópu. Útbreiðsla þess
nær frá Kákasusfjöllum í austri
og vestur um hálendið allt til
Atlantshafs. Þegar norðar dregur
er það frekar á láglendinu beggja
vegna Ermarsunds og og teygir
sig þaðan yfir Eyrarsundsbyggðir
Danmerkur og Svíþjóðar. Á stöku
stað má rekast á sjálfsána beykilundi
upp eftir Oslófirði og í suðursveitum
Smálandanna sænsku.
Alls staðar þar fyrir norðan
er beyki komið fyrir tilverknað
manna og þrífst sæmilega sem
garðtré í Upplöndum Svía, norðan
Stokkhólms. Á Íslandi og í Færeyjum
hefur beyki verið gróðursett á
nokkrum stöðum og virðist standa
sig furðuvel. Þótt vöxtur sé hægur
hafa trén tosast upp. Helstu og elstu
eintökin af beyki hér á landi er að
finna í Hellisgerði í Hafnarfirði sem
hafa staðið þar síðan garðurinn var
gerður. Og afar fallegt beykitré var,
og er vonandi enn, við Laufásveg 67.
Það óx upp af fræi sem fengið var í
Osló í kringum 1950. Austan undir
vegg gamla Miðbæjarskólans við
Reykjavíkurtjörn kúrir sig myndar-
legur beykibrúskur sem Morthen A.
Hansen gróðursetti þar á skólastjóra-
árum sínum við þann skóla. Vonandi
fær hann að vera þar um allan aldur,
þótt hann sé orðinn ansi nærgöngull
við hús og grunn. Á síðari árum hefur
innflutt beyki verið staðalvara hjá
flestum garðplöntusölum á höfuð-
borgarsvæðinu. Nú má því víða sjá
all-vöxtuleg beykitré í görðum.
Berjablámi, tímgun og ástarlíf
Fullvaxið beykitré tekur mikið pláss.
Þótt trén séu smá og nett til að byrja
með, má alveg reikna með því að
þau taki nokkra tugi fermetra undir
sig þegar þeim vex fiskur um hrygg.
Einkum eru það klónar og tilbrigði
með purpurarauðum laufum sem
virðast standa sig ágætlega hér.
Purpurarauði liturinn stafar af litar-
efninu antósýani, sem við getum líka
kallað berjabláma, og er eiginlega
vörn trjánna gegn næturfrostum um
laufgunartímann og hverfur eftir að
sumarið er sest að fyrir alvöru. En hjá
sumum einstaklingum gerist það ekki
og um það bil helmingur afkomenda
þeirra fær þennan lit í arf. Tilbrigðum
með súluvöxt eða hangandi grein-
ar verður að fjölga með ágræðslu á
venjulega beykirót.
Enn sem komið er hafa beykitré
á Íslandi ekki borið frjó fræ þótt þau
hafi borið það við að blómgast. En
hvort það er veðurfarinu, þ.e. skorti á
sumaryl, að kenna eða því að hörgull
er á kynþroska mökum í nágrenninu
svo að aðfrjóvgun er engin. Líklega
eru beykitré af því tagi að annan
einstakling þarf til að úr blómgun-
inni verði barn. Þótt trén beri bæði
karlblóm og kvenblóm er hætt við að
þau séu ekki sjálffrjó. Vísir að aldin-
myndun, beykihnotum, hefur komið
á trén en reynst geld þegar þeim hefur
verið sáð. Beyki hefur sambýli líkt
og birki. Blómin eru á greinaendum
ofarlega á trjánum, kynin aðskilin í
karlblóm sér og kvenblóm sér.
Frjóvgun á sér stað með vindfræv-
un. Beyki verður sjaldan kynþroska
fyrr en það hefur náð þriggja metra
hæð þar sem það stendur stakt. En í
skógum eru trén oftast orðin 60–80
ára gömul áður en þau þroska aldin
í fyrsta sinn.
Uppeldi og aðbúnaður
Aldin beykitrjánna kallast beyki-
hnot. Þau falla til jarðar á haustin
og þola ekki að þorna upp áður en
þau komast í jörð og búa sig undir
spírun með vorinu. Við eðlilegar
aðstæður sjá villisvín og skógarmýs
af ýmsu tagi um að koma beyki-
hnotunum á heppilegt dýpi þar sem
þau geta eftirþroskast, álað og skot-
ið upp kímblöðunum um leið og
vorið heldur innreið sína. En þrátt
fyrir að framboðið af beykihnot-
um sé ríkulegt á hverju hausti er
nýliðun fremur lítil. Hnot sem ekki
kemst um 8–10 cm ofan í jörðina
stuttu eftir að það fellur af trénu
á enga von og verður afætum eða
veðrum að bráð.
Ef menn ætla að sá beyki og ala
það upp, þarf að safna hnotunum
strax og koma þeim í deigan mosa
eða sand og láta þau eftirþroskast
við 3–6°C hita þar til fer að örla á
kímrót. Þá þarf að sá þeim í djúpa
potta með grófvikurblandaðri sáð-
mold, hverju fyrir sig, og hafa í
frostlausu gróðurhúsi. Venjulega
er þetta tímabært í mars. Fylgjast
þarf með að plönturnar myndi ekki
hringrót í sáðpottinum.
Hringrótarmyndun í beyki er
afar erfitt að leiðrétta og beyki
sem hefur fengið hringrót, þ.e.
rótin hefur vafist í hringi í uppeld-
ispottunum, þolir ekkert vindálag
og kolfellur ef eitthvað hvessir
vind eftir að trén hafa náð að auka
umfang sitt. Ef hægt er, er betra að sá
í vel unninn og varinn reit utanhúss
eftir eftirþroskann (kaldörvunina)
og hylja fræin með blöndu af mold
og vikri til helminga. Lagið þarf að
vera 6–9 cm þykkt ofan á fræjun-
um. Uppeldi fyrstu 2–3 árin þarf að
vera í vörðum reit, plönturnar hafðar
með 15–20 cm millibili í moldinni
en skorið á milli þeirra árlega upp
úr miðju sumri. Eftir það má setja
plönturnar út á á beð eða gróðursetja
þær á framtíðarstað. Beyki þolir ekki
að vaxa á bersvæði eða í samkeppni
við grastegundir. En það má reyna að
planta því í gisinn aspar- eða sitka-
grenisskóg. Það þarf góðan jarðveg
sem í er komið gott örverulíf. Í eðli
sínu er beyki kalkelsk tegund svo
að ein lúka eða svo af skeljakalki í
plöntunargrópina er gott veganesti
fyrir plönturnar meðan þær eru að
koma sér fyrir og finna heppilegar
sveppaslæður og örverur til að
mynda rótarsambýli með og auð-
velda sér þannig lífsbaráttuna um
alla framtíð sína.
Að bauka við beykið
Beykitimbur er þungt, hart og seigt.
Vegna seiglunnar er auðvelt að
sveigja það og forma í ýmsa nytja-
muni. Beyki er þeim kostum búið að
gefa ekki frá sér bragð og auðvelt er
að halda því hreinu. Það hefur því
mikið verið notað í skrínur og áhöld
sem brúkuð eru við matartilbún-
ing. Beykiviður var áður fyrr mikið
notaður í ýmiss konar búsáhöld og
kyrnur, axarsköft og pála. Hann er
eftirsóttur í dyraumbúnað, þiljur,
parketgólf og húsgögn. Sömuleiðis er
beyki mikið notað í ýmsa smámuni,
listiðnað, minjagripi og leikföng.
Um aldaraðir hefur beyki verið
notað í tunnugerð. Af því er dregið
starfsheitið „beykir“ og notað um
þá menn sem höfðu þann starfa að
setja saman tunnurnar og berja í þær
hlemmana. Og hver man ekki eftir
tunguspöðunum sem læknar ráku
upp í okkur hér á árum áður. Öllu
viðkunnanlegra notagildi hefur beyk-
ið þó í öllum þeim aragrúa íspinna
sem kæta börn víða um heim.
Beykitimbur er fremur breytilegt
og svarar öllum rakabreytingum
með þenslu eða samdrætti. Þessi
eiginleiki og sú staðreynd að beyki-
viðurinn er oft mjög maðksmoginn
af bjöllulirfum gerir hann að óáreið-
anlegra burðarvirki en krafist er af
stoðviðum til húsbygginga og þykir
beykiviðurinn því ónothæfur til þess
brúks. Reyndar heitir beykitimbur
einfaldlega beyki. En samt er ekki
langt síðan að smiðir töluðu um
„brenni“ og áttu þá við beykivið.
Ástæðan mun vera sú að á tímum
danskra kaupmanna hér var iðulega
fluttur inn eldiviður, sem auðvit-
að heitir „brænde“ upp á dönsku.
Íslenskir hagleiksmenn, sem ávallt
bjuggu við langvarandi spýtnaskort,
uppgötvuðu þarna úrvals smíðavið
en kunnu ekki að nefna öðru nafni
en danska heitinu á eldiviðnum.
Beyki er orkumikið eldsneyti og
eftirsóttur arinviður. En það þykir
ótækt til pappírsgerðar vegna þess
að trénið er dökkt og trefjarnar eru
það stuttar að pappírinn verður
fremur stökkur og endingarlítill.
Aftur á móti hefur beyki þótt gott
efni í sterklegar umbúðir.
Í Frakklandi er nokkur eftir-
spurn á koluðum beykikvistum sem
listmálarar nota við myndgerð sína.
Einnig er sagt að Gallar hafi unnið
pottösku úr beykiöskunni og notað
til að lýsa á sér hárið. Frökkum
hefur sem sé ávallt verið annt um
listina og útlit sitt!
Nafnið – og afleiður þess
Ættkvíslarheiti beykisins, Fagus, er
ævagamalt og má rekja það aftur
í frumtungu vestrænna tungumála,
sanskrít, líkt og svo mörg önnur
trjáheiti. Það er nokkuð á reiki hvað
nafnið merkir, en líklegasta skýr-
ingin mun eitthvað hafa með æt
fræ að gera. Í germönskum málum
hefur F breyst í B. Stofninn fag-
verður að bag- sem síðan þróast á
ýmsa vegu. Þýska heitið er Buche,
danska bøg, sænska bok o.s.frv. Í
íslensku er heitið „bók“ (kvk) notað
um eitt einstakt tré, fleirtölumyndin
og safnheitið „beyki“ er notað
um hóp af beykitrjám og timbrið
sem fellur til af þeim. Orðmyndin
„bæki“ er líka til í sömu merkingu
og beyki. Í öðru samhengi könnumst
við svo við orðið bók og í fleirtölu
bækur, en þá erum við komin inn á
bókmenntasviðið. Vegna þess hve
beyki var auðfáanlegt á meginlandi
NV-Evrópu, fíntrefjótt og auðvelt
að fleyga úr því þunnar og jafnar
flögur sem klofnuðu ekki á árhringj-
unum, hentaði það ágætlega í spjöld
sem hægt var að rista í eða skrifa
á. Og jafnvel betri kostur var að
blekið sem notað var blæddi ekki
inn í viðinn, heldur hélst vel á yfir-
borðinu. Ef reynt var að nota timb-
ur annarra trjátegunda til þess arna
varð skriftin subbulegri og oftast
ólæsileg. Spjöldin var síðan hægt að
binda saman með uppröðuðum texta
í góðu samhengi og samfellu. Bókin
var orðin til. Þetta var áður en á allra
færi var að útvega sér pergament eða
bókfell til að skrifa á. Því talar fólk á
germönsku málsvæðunum um bækur
en ekki „libres“ eins og tíðkaðist þar
sem rómversk menning hafði sest að.
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Hið feiknavæna beykitré
Í háum skógarsal – Gribskógur á Sjálandi.
Logagyllt purpurabeyki í haustskrúða.