Bændablaðið - 01.12.2016, Side 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Fyrir rúmum sex árum hófu
Guðbjörg Gissurardóttir og Jón
Árnason útgáfu á tímariti sem kall-
ast Í boði náttúrunnar og kemur
það út þrisvar á ári. Nýlega sendu
þau frá sér sérrit sem kallast Fæða
/ Food og er bæði á íslensku og
ensku.
Guðbjörg segir að Fæða sé sér-
rit um íslenskan mat og matarhefð.
„Ólíkt flestum blöðum um mat er
Fæða ekki uppfull af uppskriftum
því við erum meira að fjalla um
matarmenningu og hefðir, sköpunar-
kraftinn í kringum mat, smáfram-
leiðendur, sprota og frumkvöðla í
matargerð og hvað má búa til úr
íslensku hráefni.“
Matur og myndlist
Blað, ef blað skyldi kalla því það lík-
ist meira bók enda prentað á þykkan
pappír, er allt hið glæsilegasta. Meðal
efnis er að finna áhugaverða umfjöll-
un um Áslaugu Snorradóttur, sem er
brautryðjandi í sjónrænni matargerð
þar sem matur og myndlist mætast.
„Íslenska lambið fær sinn sess
í ritinu og tekið alla leið,“ segir
Guðbjörg. „Það er úrbeinað og sagt
frá margs konar réttum sem hægt er
að búa til úr því. Sjálf er ég svo inn-
blásin af umfjölluninni að ég hef haft
læri á sunnudögum með brúnuðum
kartöflum, rauðkáli og grænum baun-
um síðan ég las hana.“
Pönnukökur og vínartertur
„Í ritinu er fjallað um íslenskar
pönnukökur sem eru einstakt fyrir-
bæri. Fáir vita líklega að pönnukök-
ur með rabarbarasultu slógu í gegn
á Bessastöðum sem desert eftir að
Gorbatsjov smakkaði þær og var yfir
sig hrifinn.
Annað skemmtilegt og fróðlegt
efni sem mig langar að nefna er
umfjöllun um vínartertuna. Þessar
tertur voru í eina tíð feikilega vin-
sælar hér á landi en svo er eins og
þær detti úr tísku. Vínartertan lifir
aftur á móti góðu lífi meðal Vestur-
Íslendinga í Kanada og er aðalkakan
í Íslendingaboðum þar. Í ritinu er við-
tal við níræða vínartertudrottninguna
í Kanada sem bakar vínartertur þegar
mikið stendur til
eftir uppskrift
sem amma henn-
ar hafði með sér
frá Íslandi undir
lok þarsíðustu
aldar.
Svipbrigði
bragðs
Í myndasyrpu
sem kallast
Ungir bragðlaukar voru nokkur ung-
menni fengin til að smakka gamlan
íslenskan mat með ólíku bragði,
meðal annars
hákarl, söl og
fjallagrös, og
teknar myndir
af svipbrigð-
um þeirra.
Auk þessa
alls er umfjöll-
un um osta
og sjálfbærar
veiðar og ýmis-
legt fleira í nýja
ritinu sem Í boði
náttúrunnar var
að senda frá sér.
/VH
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Tímaritið „Í boði náttúrunnar“:
Fæða/Food
Rannsóknir og þróun:
Útgjöld hækka
Frá árinu 2013 til ársins 2015 hafa
útgjöld til rannsókna og þróunar
á Íslandi hækkað sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu úr 1,76%
í 2,19%.
Á heimasíðu Hagstofu Íslands
segir að á sama tíma hafi útgjöld til
rannsókna og þróunar staðið í stað í
Evrópusambandinu, í 2,03–2,04%
af vergri landsframleiðslu. R&Þ-
útgjöld sem hlutfall af landsfram-
leiðslu eru nú sambærileg á Íslandi
og í Frakklandi og Slóveníu. Árið
2015 er Svíþjóð með hæsta hlutfallið,
3,26%, en Austurríki eru með 3,07%
og Danmörk 3,03%. Útgjöld til R&Þ
í Finnlandi lækka úr 3,29% í 2,90%
á tímabilinu. Hagstofa Íslands tók
við tölfræði rannsókna og þróunar
árið 2013 og er það ár því upphafið
að tímalínu Hagstofunnar. /VH
KOMDU MEÐ TIL
PARÍSAR
fyrir starfandi bændur til Frakklands í febrúar næstkomandi með heimsóknum í
verksmiðju Massey Ferguson í Beuavais og á landbúnaðarsýninguna Sima (www.simaonline.com) sem haldin er annað hvert ár í París.
Bókanir og upplýsingar um ferðina veita vélasölumenn í síma 480 0400
Áætlaður kostnaður á þátttakanda í tvíbýli er kr.
98.000,-
Fimmtudagur 23. febrúar
07:45 Borttför með Icelandair til París Orly FI 548.
11:55 Lending á Paris Orly
14:00 Heimsókn til bónda
16:00 Komið á hótel í Beauvais.
19:00 Kvöldverður á hóteli
Föstudagur 24. febrúar
08:00 Brottför frá hóteli í verksmiðju Massey Ferguson.
08:30 Komið í verksmiðjuna – verksmiðjuheimsókn.
Fræðsluerindi um mikilvægi rétts loftþrýstings
í dekkjum og val á dekkjum
13:00 Hádegisverður hjá Massey Ferguson
14:00 Brottför frá Massey Ferguson til Parísar.
16:00 Komið á hótel í París.
19:00 Brottför með rútu í kvöldverð í París.
Drög að dagskrá ferðarinnar eru eftirfarandi:
Laugardagur 25. febrúar
Frjáls dagur í París
Sunnudagur 26. febrúar
08:00 Brottför frá hóteli til sýningar með rútu.
09:00 Komið á sýninguna
18:00 Brottför af sýningu á hótel.
20:00 Brottför með rútu á veitingarstað
Mánudagur 27. febrúar
09:30 Brottför frá hóteli til París Orly með rútu
13:00 Flug FI 549 til Keflavíkur
15:35 Lending í Keflavík
Þar sem aðeins 50 sæti eru í boð er miðað við að hámarki
2 miða á hvert lögbýli og fyrstur kemur fyrstur fær.
Innifalið: Flug, rútuferðir, gisting og fæði í 3 daga auk
aðgangseyris á sýninguna.
Fararstjóri er: Finnbogi Magnússon
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Jötunn og Massey Ferguson efna til fræðsluferðar