Bændablaðið - 07.09.2017, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Í vor, 2017, sótti höfundur lífræna
ráðstefnu í Þýskalandi. Þar var
meðal annars skoðaður bóndabær
Irene og Josef Braun í Freising.
Frá 1988 er þessi bóndabær í
lífrænu samtökunum Bioland
e.V. sem er með strangari reglur
en Evrópusambandið um lífræna
vottun (ESB nr. 834/2007).
Braun-fjölskyldan hefur
aftur og aftur gert verðmæta
frumkvöðlavinnu á mörgum sviðum.
Josef Braun er þekktur í Þýskalandi
fyrir framlag sitt fyrir frjósemi
jarðvegs. Hann er alltaf að prófa
nýjar og oft óhefðbundnar leiðir,
sem hann kynnir í erindum og við
móttöku hópa á bæ sínum.
Braun er með tvær aðaláherslur á
bæ sínum:
• Mjólkurframleiðsla: 22
mjólkurkýr, 1 kynbótanaut og
nautgripi
• Plöntuframleiðsla: 17 ha
graslendi, 38 ha ræktunarlandi
(kornrækt, smári)
Sáðskipti:
• Smári (tvíær)
• Hafrar
• Vetrarhveiti
• Smári (einær)
• Hafrar eða fóðurblanda af korni
og ertublómaætt
• Vetrarrúgur
Frá 1984 hefur Josef ekki notað
plóg og frá 1994 hefur hann unnið
lágmarks jarðvinnu án þess að
losa jarðveg og án þess að stjórna
illgresi.
Aðeins efstu 6 cm eru losaðir áður
en sáning fer fram. Jarðvegurinn
er alltaf með jarðvegsþekju út
af millirækt og ertublómaætt.
Hlutverk jarðvegsþekju er að verja
jarðveginn fyrir þornun, ljósi og
rofi og tryggja stöðugt framboð af
lífrænum efnum. Með blöndu af
plöntum í sáðskipti sem hafa rætur
sem fara mis djúpt niður, grunnar-
(t.d. hvítsmári), miðdjúpar-
(t.d. rauðsmári) og djúpar (t.d.
refasmári), er hægt að ná 100%
útbreiðslu róta á jarðvegssvæðinu.
Með þessu móti ná plöntur að nýta
steinefni og snefilefni niður á allt
af 4 m dýpi.
Josef trúir að dýrin í jarðveginum
framleiði allt sem plöntur þurfa.
Ánamaðkar eru viðurkennd
vísbending um frjósemi jarðvegs
og með fjölgun ánamaðka fjölgar
öðrum dýrum í jarðvegi í viðeigandi
hlutföllum.
Ánamaðkar framleiða
ánamaðkaskít sem inniheldur
köfnunarefni. Ánamöðkum í
jarðvegi á bóndabæ Braun fjölgar
stöðugt og er meira en 300
ánamaðkar / m2. Til samanburðar
er bara 16 ánamaðkar / m2 á
hefðbundnum bóndabæ. 300
ánamaðkar / m2 framleiða 40 t af
ánamaðkaskít á ári sem samsvarar
140 kg N / ha. Þar sem jarðvegurinn
er fullur af rótum, ánamöðkum
fjölgar og ekki er farið um ræktað
land með þung tæki er þjöppun lítil
og engin þörf á að losa jarðveginn
að sögn Josefs.
Kúaskítur er geymdur úti undir
þaki í 6 vikur. Þar sem skíturinn
er of blautur er bætt við lífrænum
úrgangi, trjágreinum, möluðu bergi
og viðarkolum. Þannig er hægt að ná
góðu C:N hlutfalli og réttum raka.
Þessi blanda er blönduð tvisvar í
viku og loftræst er fjórum sinnum
á dag til að ábyrgjast súrefni.
Jarðgerðin tekur 6 vikur þar
til rotmassinn er þroskaður. Öll
fræ af illgresi og sýklar drepast í
jarðgerðinni. Josef horfir ekki á
rotmassa sem áburð í hefðbundnum
skilningi, heldur sem súrdeig fyrir
jarðveg til að efla lífverur „jarðveg-
plöntur“ til að lifna aftur.
Mjólkurkýr og nautgripir eru í
hallandi hálmstíu (Tretmiststall)
sem var byggð árið 1988 (mynd
1). Dýrin geta valið um að éta
hey í fjósinu eða gras á graslendi.
Þau hafa möguleika á að fara út
allt árið. Fyrir utan hey og gras
fá kýrnar gallað korn í hvert sinn
sem mjaltir fara fram. Meðaltal af
mjólkurframleiðslu er 6.800 lítrar
af mjólk á kú á ári.
Kýrnar bera í hjörðinni
Að meðaltali hafa liðið 348 dagar
á milli burða hjá kúnum síðastliðin
10 ár. Kýrnar bera í hjörðinni og
kálfarnir eru u.þ.b. 14 daga hjá
móður áður en þeir eru settir í stíu
fyrir kálfa. Þeir eru aldir á nýmjólk
þar til þeir ná allt að 180 kg.
Þrír til fjórir kálfar eru notaðir
til að viðhalda stofninum og ganga
undir fósturkú fyrsta árið auk þess
að fá hey. Á meðal kúnna eru sex
svín (mynd 2).
Þar sem nóg pláss er fyrir
hendi, er það enginn vandi. Josef
telur að vegna góðs fóðurs aukist
mjólkframleiðslan og frjósemi
nautgripanna, heilsan batnar og það
hefur líka áhrif á bragð mjólkur
og notagildi hennar til framleiðslu
á osti.
Mjólk er unnin á bænum og
mismunandi ostar framleiddir.
Markaðssetning er svæðisbundin,
framleiðandi-neytandi samfélag
„Tagwerk” og að hluta til áskriftar-
kassar. Jafnvel kjöt er unnið af
slátraranum og kjötvörur seldar
beint. Að auki eru á bænum Braun
varphænur og kjúklingar (mynd
3).
Plönturnar ekki þurrkaðar á
graslendi
Plönturnar eru ekki þurrkaðar á
graslendi, vegna þess að næringarrík
lauf myndu tapast og stönglar verða
afgangs (mynd 4). Eins og margar
vísindalegar rannsóknir hafa sýnt,
hefur samsetning fóðurs mikil
áhrif á gæði mjólkur, og einkum
samsetningu mjólkurfitu. Ef kýr
éta aðallega hey (í staðinn fyrir
hátt hlutfall af kjarnfóðri og maís
í hefðbundinni fóðrun), er það
heilsueflandi fyrir fólk til að fá
nauðsynlegar omega-3fitusýrur.
Rafmagn framleitt með
viðarkolum og askan nýtt
Á bænum er fræ af hnappakornblóm
(Centaurea jacea L.), selgresi
(Plantago lanceolata L.), villt
gulrót (Daucus carota subsp.
carota) og garðakornblóm (Cyanus
segetum Hill) framleidd. Að auki
eru þau með 5 ha skóg. Josef gerir
tilraunir með að blanda saman
landbúnaði og skógrækt sem kallað
er „agroforestry“ (mynd 5).
Síðan 2009 er á bæ Braun
framleitt rafmagn (30 kW) og hita
(66 kW) með viðarkolum sem hann
vinnur úr skóginum, það gefur kost
á að þurrka hey og korn og nota hita
fyrir fjós og íbúðarhús ásamt hitun
á vatni fyrir framleiðslu á osti.
Við notkun á viðarkolum safnast
aska sem hefur jákvæð áhrif á
jarðvegsfrjósemi með því að auka
moldarframleiðslu í ræktuðu landi
verulegur.
Kjarninn: Aðeins í heilbrigðum
jarðvegi vaxa heilbrigðar plöntur
sem gefur hollt fóður fyrir
heilbrigðar kýr sem gefa góða
mjólk fyrir góðan ost.
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Lífrænn bóndabær – Braun í Þýskalandi
Mynd 1: Nautgripir og svín saman í hallandi hálmstíu. Mynd 2: Nautgripur og svín leika saman.
Mynd 3: Hús fyrir varphænur.
Mynd 4: Heyþurrkun og geymsla.
Mynd 5: Akrar umkringdir trjám.
Christina Stadler
auðlinda- og
umhverfisdeild LbhÍ
christina@lbhi.is