Bændablaðið - 07.09.2017, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
Lerkiskógur – vöxtur og þroski
Fyrstu eiginlegu bændaskógarnir
voru gróðursettir kringum 1970
og umfangið jókst síðan veru-
lega með tilkomu Héraðsskóga
og Nytjaskógræktar á bújörðum
eftir 1990.
Skógræktin hefur gengið vonum
framar og gefið jafnvel meiri
uppskeru og fyrr en búist var við
í upphafi. Fyrir þá sem hyggja á
skógrækt er hægt að glöggva sig
á ræktunarferlinu með eftirfarandi
dæmi um ræktun lerkis á annars
uppskerulitlu landi.
Árið – Upphafið: Lerki er afburða
trjátegund til að lifa og þroskast á
þurru uppskerulitlu landi. Plönturnar
eru oftast fljótar að hefja vöxt og
skapa skjól fyrir gróður sem annars
hefði ekki náð sér á strik. Lerki er
mest gróðursett í mela, sanda og
þurrt mólendi. Kjörsvæði þess er inn
til landsins, sérstaklega á Norður- og
Austurlandi. Um 2500–3500 tré eru
gróðursett á hvern hektara lands.
Ár 5-10 – Skógurinn
verður sýnilegur
Eftir 5 ár frá gróðursetningu er
lerki orðið sýnilegt í landinu. Trén
mynda lítilsháttar skjól og gras og
ýmis gróður tekur að vaxa í skjóli
einstakra trjáa. Lerkisveppirnir, sem
henta vel til matargerðar og hjálpa
trjánum að þrífast í þurru landi, líta
dagsins ljós. Uppbygging jarðvegs
er hafin og rakaskilyrði batna.
Tvítoppaklipping getur bætt mjög
form trjánna og aukið verðmæti
þeirra síðar.
Ár 15-20 – 1. Grisjun
Lerki er ljóselsk trjátegund og
vegna innbyrðis samkeppni
trjánna um ljós hefst sjálfgrisjun
snemma. Á þessu tímabili er
því mikilvægt að mannshöndin
komi inn og velji hvaða tré verða
framtíðarstofnar timburskógarins
og gefa verðmætustu trjánum pláss
til vaxtar. Strax á þessu stigi má
nýta afurðirnar sem girðingastaura,
viðarskífur og eldivið. Undirgróður
eykst og beitarskilyrði í skóginum
batna enn frekar. Hæfilegt er að
fækka stofnum niður í um 1200-
1600 tré á hektara.
Ár 30 til 50 – Grisjunartímabil
Markmið grisjunar er að færa vöxt
skógarins yfir á beinvöxnustu trén
en samhliða að nýta sem best þau tré
sem felld eru við grisjunina. Eftir
því sem skógurinn eldist hækkar
hlutfall timburbola sem henta til
flettingar í borðvið sem að jafnaði
er verðmætasta afurð eldri skóga.
Það sem ekki nýtist sem borðviður
má t.d. nota til eldiviðar, í kurl eða
sem kolefnisgjafa í kísilmálm-
iðnaði. Við 50 ára aldur er eðlilegt
að fjöldi standandi trjáa hafi verið
grisjaður niður í um 500 tré á
hektara.
Ár 50 til 70 – Lokahögg: Umhirða
skógarins á framleiðslutímanum
miðast við að hámarka tekjur
skógarins við lokahögg. Þá eru flest
eftirstandandi tré beinvaxin og stór
hluti timbursins nýtist til flettingar.
Viður af lerki hefur góðan styrk
og hentar sem byggingatimbur.
Kjarnaviður lerkisins inniheldur
náttúrulega fúavörn sem gefur
viðnum betri endingu utandyra
heldur en viður flestra annarra
trjátegunda.
Hverju skilaði skógurinn
á 60 ára tímabili?
• Bætt beit frá 15 ára aldri
• Lerkisveppir á aldursskeiðinu
10 til 25 ára
• 400 girðingastaurar/ha við 20
ára aldur
• 170 m3/ha af timbri sem sam-
svarar um 4 timburbílum eins
og á myndinni hér fyrir neðan.
Þar af eru:
• 130 m3 viðar í t.d. kurl, eldivið
og iðnaðarnot frá 30 ára aldri
• 40 m3 af borðvið, mest í
lokahöggi
Brynjar Skúlason
Land sem bíður gróðursetningar. Mynd / Héraðsskógar 10 ára skógur í sama landi og á myndinni hér til vinstri. Mynd / Héraðsskógar
Grisjun í 20 ára lerkiskógi á Hálsmelum þar sem áður var ber melur.
Mynd / Pétur Halldórsson
Mynd af vel hirtum ungskógi lerkis. Mynd / Benjamín Davíðsson
Fullvaxinn, vel hirtur lerkiskógur tilbúinn til lokahöggs.
Íslenskt grisjunartimbur á leið til Grundartanga. Mynd / Pétur Halldórsson