Bændablaðið - 07.09.2017, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 07.09.2017, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017 Fjölmennur fundur Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda og Félags sauðfjárbænda í Skagafirði: Sauðfjárbúin standa frammi fyrir verulegu tekjutapi Bændur hvarvetna úr héraði, af Ströndum, Húnavatnssýslum og Skagafirði troðfylltu Félags- heimilið á Blönduósi þegar sauð- fjárbændur blésu þar til fundar á miðvikudagskvöld í síðustu viku. Vel á fjórða hundrað manns mættu til fundarins og voru umræð- ur fjörugar þrátt fyrir að þungt hljóð væri í bændum vegna þeirr- ar alvarlegu stöðu sem uppi er í sauðfjárbúskap um þessar mundir. Sláturleyfishafar bjóða um 35% lægra verð fyrir afurðir en í fyrra þegar verð lækkaði að jafnaði um 10% miðað við árið þar á undan. Mikil tekjuskerðing blasir því við sauðfjárbændum líkt og farið var yfir á fundinum. Frummælendur voru þau Ágúst Andrésson, formaður Landssamtaka sláturleyfishafa og framkvæmdastjóri Kjötafurðastöðvar KS á Sauðárkróki, Oddný Steina Valsdóttir og Unnsteinn Snorri Snorrason frá Landssamtökum sauðfjárbænda og Sigríður Ólafsdóttir, ráðunautur á rekstarsviði Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins. Varð ekki til á einni nóttu Ágúst nefndi í sinni framsögu að sú alvarlega staða sem við væri að etja um þessar mundir hefði ekki orðið til á einni nóttu. Aðdragandann mætti rekja nokkur ár aftur í tímann og ýmsir óhagstæðir þættir í ytra umhverfi skiptu þar sköpum, m.a. hefði útflutningur svo gott sem algerlega brugðist á liðnum árum. Markaðir sem áður hefði verið flutt út á, svo sem Rússland og Noregur, lokuðust og fríverslunarsamningur milli Íslands og Kína virtist enn sem komið er aðeins virka í aðra áttina. Ágúst sagði það, eftir á að hyggja, yfirsjón að hafa ekki tekið vandann fastari tökum fyrr, en ef til vill hafi menn ekki viljað trúa því að allt færi á versta veg. Ágúst ræddi um birgðir sem til væru af kindakjöti í landinu nú í upphafi sláturtíðar, en þær námu um 2.000 tonnum um þarsíðustu mánaðamót, júlí-ágúst. Vænti hann þess að töluvert hefði tekist að saxa á þær undanfarnar vikur og með bjartsýni að leiðarljósi væntu menn þess að þær væru komnar niður í um 1.200 tonn um nýliðin mánaðamót. Þessi vandi hefði blasað við mönnum að áliðnum síðasta vetri og þá þegar hefðu menn byrjað að vekja á honum athygli, þ.e. í hvað stefndi með haustinu. Lítið hefði þokast, en afar brýnt væri að taka málið föstum tökum nú til að koma í veg fyrir að sama staða væri upp á teningnum að ári. Hann hefði sjálfur á árinu 2008 verið talsmaður þess að afnema útflutningsskyldu, en vegna þeirrar erfiðu stöðu sem við væri að eiga nú talaði hann fyrir því að taka hana upp að nýju, tímabundið t.d. til tveggja ára. Með því mætti koma í veg fyrir offramboð á lambakjöti á markaði innanlands. Ljóst væri þó að ráðherra ætlaði sér ekki að fara þá leið. Mikið tekjutap blasir við sauðfjárbændum Um 420 sauðfjárbú eru á Norðurlandi vestra og Ströndum. Fram kom í máli Sigríðar Ólafsdóttur ráðunautar að búin standi frammi fyrir mikilli tekjuskerðingu nú í haust miðað við þá verðskrá sem lögð hefur verið fram ofan á 10% skerðingu síðastliðið haust. Samkvæmt hennar útreikingum nemur tekjutapið á meðalbú um 1,5 milljónum króna á ári. Ljóst sé því að bændur muni ekki ná endum saman. Varpaði Sigríður upp á fundinum útreikningum sínum varðandi sauðfjárbú af ýmsum stærðum, 100 kinda búi, 500 og 1.000 og er það sama upp á teningnum hjá öllum, við blasir tekjutap. Minnst er það á smæstu búunum, um 320 þúsund króna tap á ári, 1,5 milljónir króna á 500 kinda búinu og 3,2 milljónir á 1.000 kinda búum. Sigríður sagði rekstrargrunn búa af þeirri stærð horfinn. Við það bætist afleidd áhrif, umsvif þjónustu af ýmsu tagi við bændur mun dragast saman. Staðan í héraðinu snerist því ekki eingöngu um sauðfjárbændur og þeirra tekjulækkun heldur samfélagið allt. Viljum sjá heildarlausnir Þau Oddný Steina Valsdóttir, formaður LS, og Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, fóru yfir stöðu viðræðna við stjórnvöld og voru í raun allt annað en bjartsýn á gang mála. Sindri nefndi að menn vildu sjá heildarlausnir, lausnir sem dygðu til framtíðar. Tillögur ráðherra landbúnaðarmála væru ekki til þess fallnar, ríkisvaldið einblíndi á lausnir til að draga úr framleiðslu, sem vissulega væri eðlilegt, en horft væri algerlega framhjá markaðsþættinum. Nauðsynlegt væri að taka á birgðavandanum, að öðrum kosti mætti allt eins gera ráð fyrir að sauðfjárbændur bönkuðu upp á hjá stjórnvöldum strax aftur næsta haust með sama vanda í farteskinu. Kúvending sem kemur ekki til greina Þá hefði það hleypt illu blóði í forystumenn bænda þegar stjórnvöld kröfðust þess á fundi sama dag og Blönduósfundurinn var haldinn að samhliða þeim aðgerðum sem farið yrði í nú til að bæta stöðuna yrðu þeir að fallast á að núgildandi búvörusamningar yrðu endurskoðaðir. Þar væru um að ræða kúvendingu, sem alls ekki kæmi til greina. Þeim tillögum sem Bændasamtökin kynntu stjórnvöldum á fundinum var fálega tekið þar á bæ. Fram kom í máli Oddnýjar Steinu að tilfinning sín væri sú að stjórnvöld ætluðu sér ekki að gera neitt í málinu, skaðinn væri skeður og bændur yrðu bara að standa þetta af sér með einhverjum hætti, hrunferli blasti því við æði mörgum. „Staðan er allt annað en skemmtileg, en við verðum að horfast í augu við hana, það verður fækkun, annað er óhjákvæmilegt,“ sagði hún. Stjórnvöld hafa ekki val Margir tóku til máls í almennum umræðum, m.a. Teitur Björn Einarsson, alþingis maður Sjálfstæðis- flokks í Norðvesturkjördæmi, sem sagði stjórnvöld ekki hafa neitt val, þau yrðu að taka á málum og stuðla að því að lausn fyndist. Um væri að ræða efnahagslegar hamfarir og stjórnvöld bæru sína ábyrgð, bændur gætu ekki setið einir í súpunni. Teitur Björn sagði það vissulega rétt að tíminn hefði nýst illa og hann skildi vel þann pirring sem væri meðal bænda vegna þess. Nú þyrfti að taka á og nýta þau tæki sem virkuðu. Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG í Norðvesturkjördæmi, fór einnig yfir stöðu mála og fyrri fundi og umræður um vandann og nefndi að svo virtist sem enginn vilji væri til að leysa birgðavandann, honum ætti bara að vísa inn í framtíðina. Fannst henni fráleitt að nýta þetta alvarlega ástand til að hrófla við gildandi búvörusamningi og setja mál í algjört uppnám. Sjálf hefði hún ekki á reiðum höndum töfralausnir en mikilvægt væri að taka þverpólitískt á málum og lenda því. Eru sláturleyfishafar að gefast upp á að selja vöruna? Margir þeirra bænda sem til máls tóku á fundinum spurðu hvort sláturleyfishafar væru að gefast upp á markaðsmálunum, en fram hafði komið hjá Ágústi að innanlandsmarkaður fyrir lambakjöt næmi um 6.500 tonnum á ári. Veltu menn fyrir sér hvort ekki mætti með góðu og sameiginlegu átaki stækka þann markað. Einnig þótti bændum sæta furðu að undanfarið hefði á samfélagsmiðlum verið vakin athygli á að vörur af ákveðinni tegund skorti í verslanir. Framsetning vörunnar væri líka á stundum heldur óaðlaðandi. Spurt var hvort menn væru að gefast upp á að selja vöru sauðfjárbænda. Breyting í verslunarháttum Ágúst sagði lítinn hluta vörunnar seldan frosinn í pokum, sem vissulega væri ekki skemmtileg pakkning. Batt hann vonir við að tilkoma Costco á íslenskum markaði myndi færa mál til betri vegar og hrista upp í markaði. Erfitt hefði verið að eiga við helstu samkeppnisaðila bandaríska risans, þar sem helst hefði verið óskað eftir vöru sem hægt væri að selja á tilboðsverði. Costco óskaði eftir ákveðnum skurði og framsetningu á vörunni sem væri með öðrum hætti en áður hefði tíðkast. „Gamaldags“ framsetning sem fundarmenn hefðu í nokkrum mæli agnúast út í myndi vonandi heyra sögunni til. Innanlandsmarkaður er mikilvægastur Innanlandsmarkaðurinn væri sauð- fjár framleiðendum langmikilvæg- astur, en á honum væri mikið framboð af öðru kjöti, m.a. kjúklingi og svínakjöti, þar sem slátrað væri í hverri viku. Kjötneysla væri einnig almennt að dragast saman og ákveðinn hluti landsmanna væri af erlendu bergi brotinn og ekki vanur lambakjöti. „Allt tekur þetta frá okkur,“ sagði hann. Þá kom fram ákveðinn ótti við að í kjölfar hins mikla tekjutaps og yfirvofandi fækkun á sauðfé myndu margir bregða búi með tilheyrandi erfiðleikum í hinum dreifðari byggð- um, byggðum sem síst mættu við að fólki fækkaði. /MÞÞ FRÉTTIR Vel á fjórða hundrað manns mættu til fundarins á Blönduósi og voru umræður fjörugar þrátt fyrir að þungt hljóð væri í bændum vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem uppi er í sauðfjárbúskap um þessar mundir. Myndir / MÞÞ „Hundakjöt. Hundakjöt. Hundakjöt,“ sagði Heidi Laupert, bóndi í Örnólfsdal í Borgarfirði, á fund- inum í Félagsheimilinu á Blönduósi í liðinni viku. Orðin féllu um leið og Heidi tíndi upp hvern bit- ann af öðrum úr KS-plastpoka sem geymir frosið súpukjöt. Hvorki innihaldið né umbúðirnar þótti henni aðlað- andi og virðist sem flestir fundarmanna hafi deilt þeirri skoðun með henni ef marka má viðtökurnar sem hún fékk er hún hélt tölu á umræddum fundi. Bar Heidi KS-pokann saman við umbúðir utan af þekktum hundamat og þótti ólíku saman að jafna, sá síðarnefndi væri mun smekklegri en sá með frosna kjötinu sem ætlað væri til manneldis. /MÞÞ Hundakjöt eða súpukjöt? Ágúst Andrésson, framkvæmdastjóri Konurnar hlustuðu af athygli, en létu þó ekki verk úr hendi sleppa. Það var greinilegt á fasi manna að mikil alvara er á ferðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.