Bændablaðið - 07.09.2017, Síða 46

Bændablaðið - 07.09.2017, Síða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017 SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA Lerkiskógur – vöxtur og þroski Fyrstu eiginlegu bændaskógarnir voru gróðursettir kringum 1970 og umfangið jókst síðan veru- lega með tilkomu Héraðsskóga og Nytjaskógræktar á bújörðum eftir 1990. Skógræktin hefur gengið vonum framar og gefið jafnvel meiri uppskeru og fyrr en búist var við í upphafi. Fyrir þá sem hyggja á skógrækt er hægt að glöggva sig á ræktunarferlinu með eftirfarandi dæmi um ræktun lerkis á annars uppskerulitlu landi. Árið – Upphafið: Lerki er afburða trjátegund til að lifa og þroskast á þurru uppskerulitlu landi. Plönturnar eru oftast fljótar að hefja vöxt og skapa skjól fyrir gróður sem annars hefði ekki náð sér á strik. Lerki er mest gróðursett í mela, sanda og þurrt mólendi. Kjörsvæði þess er inn til landsins, sérstaklega á Norður- og Austurlandi. Um 2500–3500 tré eru gróðursett á hvern hektara lands. Ár 5-10 – Skógurinn verður sýnilegur Eftir 5 ár frá gróðursetningu er lerki orðið sýnilegt í landinu. Trén mynda lítilsháttar skjól og gras og ýmis gróður tekur að vaxa í skjóli einstakra trjáa. Lerkisveppirnir, sem henta vel til matargerðar og hjálpa trjánum að þrífast í þurru landi, líta dagsins ljós. Uppbygging jarðvegs er hafin og rakaskilyrði batna. Tvítoppaklipping getur bætt mjög form trjánna og aukið verðmæti þeirra síðar. Ár 15-20 – 1. Grisjun Lerki er ljóselsk trjátegund og vegna innbyrðis samkeppni trjánna um ljós hefst sjálfgrisjun snemma. Á þessu tímabili er því mikilvægt að mannshöndin komi inn og velji hvaða tré verða framtíðarstofnar timburskógarins og gefa verðmætustu trjánum pláss til vaxtar. Strax á þessu stigi má nýta afurðirnar sem girðingastaura, viðarskífur og eldivið. Undirgróður eykst og beitarskilyrði í skóginum batna enn frekar. Hæfilegt er að fækka stofnum niður í um 1200- 1600 tré á hektara. Ár 30 til 50 – Grisjunartímabil Markmið grisjunar er að færa vöxt skógarins yfir á beinvöxnustu trén en samhliða að nýta sem best þau tré sem felld eru við grisjunina. Eftir því sem skógurinn eldist hækkar hlutfall timburbola sem henta til flettingar í borðvið sem að jafnaði er verðmætasta afurð eldri skóga. Það sem ekki nýtist sem borðviður má t.d. nota til eldiviðar, í kurl eða sem kolefnisgjafa í kísilmálm- iðnaði. Við 50 ára aldur er eðlilegt að fjöldi standandi trjáa hafi verið grisjaður niður í um 500 tré á hektara. Ár 50 til 70 – Lokahögg: Umhirða skógarins á framleiðslutímanum miðast við að hámarka tekjur skógarins við lokahögg. Þá eru flest eftirstandandi tré beinvaxin og stór hluti timbursins nýtist til flettingar. Viður af lerki hefur góðan styrk og hentar sem byggingatimbur. Kjarnaviður lerkisins inniheldur náttúrulega fúavörn sem gefur viðnum betri endingu utandyra heldur en viður flestra annarra trjátegunda. Hverju skilaði skógurinn á 60 ára tímabili? • Bætt beit frá 15 ára aldri • Lerkisveppir á aldursskeiðinu 10 til 25 ára • 400 girðingastaurar/ha við 20 ára aldur • 170 m3/ha af timbri sem sam- svarar um 4 timburbílum eins og á myndinni hér fyrir neðan. Þar af eru: • 130 m3 viðar í t.d. kurl, eldivið og iðnaðarnot frá 30 ára aldri • 40 m3 af borðvið, mest í lokahöggi Brynjar Skúlason Land sem bíður gróðursetningar. Mynd / Héraðsskógar 10 ára skógur í sama landi og á myndinni hér til vinstri. Mynd / Héraðsskógar Grisjun í 20 ára lerkiskógi á Hálsmelum þar sem áður var ber melur. Mynd / Pétur Halldórsson Mynd af vel hirtum ungskógi lerkis. Mynd / Benjamín Davíðsson Fullvaxinn, vel hirtur lerkiskógur tilbúinn til lokahöggs. Íslenskt grisjunartimbur á leið til Grundartanga. Mynd / Pétur Halldórsson

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.