Bændablaðið - 29.08.2019, Qupperneq 7

Bændablaðið - 29.08.2019, Qupperneq 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 2019 7 LÍF&STARF Í síðustu vísnaþáttum hafa mestmegnis verið birtar vísur eftir Björn S. Blöndal Vatnsdæling. En þar sem hugurinn er um þessar stundir mjög vistaður í Húnavatnssýslu þá verða í þessum þætti birtar vísur eftir Vestur-Húnvetninginn Jón S. Bergmann. Jón var fæddur á Króksstöðum í Miðfirði þann 30. ágúst 1874, en lést 9. september 1927. Jón var afar hagmæltur og ekki síður hraðkvæður svo orð fór af. Jón tileinkar Sigríði systur sinni þær stökur sem hér verða birtar: Um sjálfa stökuna orti Jón þrjár fyrstu vísur þáttarins: Eru skáldum arnfleygum æðri leiðir kunnar. En ég vel mér veginn um veldi ferskeytlunnar. Þegar skyggði‘ á þjóðarhag þrældómsmyrkrið svarta, ferskeytlunnar létta lag lagði yl í hjarta. Meðan einhver yrkir brag og Íslendingar skrifa, þetta gamla þjóðar-lag, - það skal alltaf lifa. Jón yrkir svo um „almannaróminn“ sem ýmist lætur vel í eyrum eða rýir fólk allri æru: Mörgum óar óstjórn löng, er þó nóg af lögum; sundrung þróast, fækka föng, fjölgar Gróusögum. Kona nokkur, talin gaflhlað hið versta, fékk þennan vitnisburð Jóns: Mærin hafði á mönnum vald, -margar átti hún sögur, ekki fyrir innihald, en umgerðin var fögur. Með hækkandi aldri, þá minnkar eftirspurnin. Jón sendi konu þessa hughreystingu: Þó að hárið hélulitt hugnist miður sveinum, mundu, ljúfa ljósið mitt, að lengi er von á einum. Vísuna næstu nefnir Jón „Góð kaup“: Auðinn lagði hún allan til, efni í fyrsta þáttinn, sem hún hélt að hér um bil hefði borgað dráttinn. Um mikilsmetinn mann orti Jón: Aldrei var svo ráðið ráð, rætt eða fært í letur, alvara né hnyttið háð, að Helgi vissi ei betur. „Líkkistusmiðurinn“. Jón yrkir honum þessa vísu: Þegar sveitin sorgarljóð syngur vini liðnum, þá er eins og hrædýrshljóð hlakki í kistusmiðnum. Jón nefnir vísuna, „ hófleg bjartsýni“: Þetta hefir farið fremst frónski prestaskólinn, ef að þessi klerkur kemst klakklaust upp í stólinn. Um leirhnoðara nokkurn orti Jón næstu tvær vísur: Ljókkar enn þín ygglibrá yfir ljóði mínu, því að snöp eru engin á andans hrjóstri þínu. Fara um eyrun eins og þeyr orð þín, laus í skorðum; aldrei blæstu anda í leir eins og Drottinn forðum. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com 232MÆLT AF MUNNI FRAM Fulltrúar NBC funduðu í Reykjavík: Norrænir bændur eiga samleið í loftslagsmálum – Forseti Íslands bauð gestum upp á kaffi og með því að íslenskum sveitasið Tæplega 70 norrænir bændur og starfsmenn norrænna bændasamtaka komu til fundar í Bændahöllinni dagana 21.–22. ágúst sl. Fulltrúarnir voru frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Íslandi en þeir vinna saman í Samtökum norrænna bændasamtaka, NBC. Meðal gesta voru formenn allra norrænu bændasamtakanna og annað áhrifafólk í norrænum landbúnaði. Fundir sem þessir eru haldnir á tveggja ára fresti og þar er farið yfir þau mál sem hæst standa í landbúnaði hverju sinni. Norðurlandaþjóðirnar skiptast á að halda fundina en sambærilegur fundur var síðast haldinn hér á landi árið 2009. Með fundinum lauk tveggja ára formennskutímabili Íslands í NBC en Norðmenn taka nú við forystuhlutverkinu. Bændur geta verið hluti af lausninni Aðalumfjöllunarefnið í ár voru loftslagsmálin og þær áskoranir sem þeim fylgja. Þá voru haldnir fyrirlestrar um fjölbreytt mál, s.s. um nýliðun í landbúnaði, dýraheilsu, samvinnufélög og alþjóðamál. Fulltrúar skiptust á skoðunum og deildu reynslu sín á milli. Það kom skýrt fram í máli fundargesta að allir eru að vilja gerðir að mæta þeim áskorunum sem hamfarahlýnun jarðar hefur í för með sér. Þó svo að aðstæður séu að mörgu leyti ólíkar á Norðurlöndunum og búskaparskilyrði fjölbreytt á hópurinn margt sameiginlegt. Auknar kröfur neytenda um ábyrga framleiðsluhætti kalla á aðgerðir í öllum nútímalandbúnaði og þar geta Norðurlöndin skapað gott fordæmi. Löndin eru misjafnlega langt komin í sínum aðgerðum en flest bændasamtök á Norðurlöndunum hafa þegar markað sér skýra stefnu í loftslagsmálum. Þau vinna að því með stjórnvöldum að minnka kolefnisfótspor landbúnaðarins og auka kolefnisbindingu með ýmsum hætti. Forseti Íslands bauð bændum á Bessastaði Að fundi loknum fór hópurinn í vettvangsferð á Reykjanesið. Byrjað var á því að heimsækja Bessastaði þar sem hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók á móti norrænu bændunum og fræddi þá um sögu staðarins. Hópurinn fékk höfðinglegar móttökur og var m.a. boðið upp á kaffi að íslenskum sveitasið – með kleinum, pönnukökum og fleiri góðgerðum. Eftir heimsóknina á Bessastaði tóku bændur hús á HS-Orku í Svartsengi, Orf-líftækni og fiskeldisstöð Hafrannsóknastofnunar á Stað við Grindavík. Öll þessi fyrirtæki og stofnanir eru góð dæmi um nýsköpun og kraft sem býr í íslenskum landbúnaði og matvælageiranum. HS-Orka framleiðir rafmagn og dælir upp jarðhita og er í nánu samstarfi við ýmis matvælafyrirtæki á Suðurnesjum. Orf-líftækni hefur þróað einstaka tækni til þess að erfðabreyta byggi og nýta afurðirnar í snyrtivörur. Fiskeldisrannsóknir Hafrannsóknastofnunar miða m.a. að því að auka nýtingu jarðhita í fiskeldi og þróa aðferðir til þess að berjast við laxalús. /TB Guðrún S. Tryggvadóttir, formaður BÍ, og hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Í pallborðsumræðum kom skýrt fram að norrænir bændur vilja axla ábyrgð í loftslagsmálum og leggja sitt af mörkum. Björn Örvar hjá Orf líftækni sagði frá starfsemi fyrirtækisins í hrauninu við Grindavík. Fulltrúar ungra bænda á Norðurlöndunum með Guðna forseta á tröppunum á Bessastöðum. Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi á Björgum og formaður Félags ungra bænda. Hópurinn fékk höfðinglegar móttökur á Bessastöðum. Ragnar Jóhannsson sagði frá fiskeldis- rannsóknum á Reykjanesi. Fulltrúar bænda á NBC-fundinum ásamt hr. Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, fyrir framan Bessastaði. Norrænir bændur vinna þétt saman og reka samstarfsvettvang til þess að skiptast á skoðunum og deila reynslu sín á milli. Með fundinum lauk tveggja ára formennskutímabili Íslands í NBC en Norðmenn taka nú við forystuhlutverkinu. Myndir / TB
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.