Bændablaðið - 29.08.2019, Síða 35

Bændablaðið - 29.08.2019, Síða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 2019 35 Umhverfisviðurkenningar hafa verið veittar árlega þeim sem þótt hafa verið til fyrirmyndar við fegrun lóða sinna. Að þessu sinni voru veittar þrjár viðurkenningar, tveir heimilisgarðar hrepptu hnossið að þessu sinni, annar á Borðeyri og hinn á Hvammstanga, og þá var veitt viðurkenning fyrir sveitabæ/fyrirtækjarekstur í sveitarfélaginu. Hlíðarvegur 22, Hvammstanga hlaut viðurkenningu fyrir snyrtilega og fallega einkalóð. Eigendurnir, Guðmundur Gíslason og Margrét Jóhannesdóttir, hafa hugað vel að umhirðu lóðarinnar sem ber þeim gott vitni um atorku og umhyggju fyrir fallegu umhverfi. Lyngbrekka á Borðeyri fékk viðurkenningu fyrir snyrtilega og fallega einkalóð. Eigendurnir, Guðný Þorsteinsdóttir og Sveinn Karlsson, hafa hugað vel að umhirðu lóðarinnar sem ber þeim gott vitni um atorku og umhyggju fyrir snyrtilegu umhverfi. Reykir í Hrútafirði hlutu viðurkenningu fyrir snyrtilega landareign ásamt blómlega ræktun sumarblóma. Eigendurnir, Hulda Einarsdóttir og Ólafur H. Stefánsson, hafa hugað vel að landareign sinni og sumarblómaræktun sem ber vott um atorku og umhyggju fyrir fallegu umhverfi. Nefnd vegna umhverfis­ viðurkenninga er skipuð af sveitarstjórn og heldur nefndin utan um valið ásamt Ínu Björk Ársælsdóttur umhverfisstjóra. Nefndina skipa Erla B. Kristinsdóttir, Birgir Þór Þorbjörnsson og Sólveig Hulda Benjamínsdóttir. /MÞÞ Fjöldi vara á frábærum afslætti! Komdu við og gerðu góð kaup. Útsalan hefst 30. ágúst í öllum verslunum Líflands. Umhverfisviðurkenningar Húnaþings vestra afhentar í 21. sinn Frá vinsti eru Hulda Einarsdóttir, Ólafur Stefánsson, Guðmundur Gíslason, Guðný Þorsteinsdóttir, Sveinn Karlsson og Ína Björk Ársælsdóttir, umhverfisstjóri í Húnaþingi vestra. Lyngbrekka. Reykir. Frá undirskrift samningsins um Stekka klett sem Matthildur bæjar­ stjóri og Hlynur skrifuðu nýlega undir. Miðstöð skapandi lista og kvikmynda á Höfn Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar, skrifaði í síðustu viku undir leigusamning um Stekkaklett við Hlyn Pálmason. Áform Hlyns ganga út á að byggja upp skapandi miðstöð lista og kvikmynda með undirbúnings­ og eftirvinnslustúdíói í þeim tilgangi að styrkja atvinnu­ og menningarlíf í sveitarfélaginu, auk þeirra námstækifæra sem verkefnið býður upp á fyrir íbúa sveitarfélagsins. Undirskrift samningsins fór fram á sama tíma og kvikmyndin „Hvítur, hvítur dagur“ var forsýnd á Höfn en myndin tengist Stekkakletti sterkt. Myndin hefur hlotið mikla velgengni um heim allan og samhliða hefur Hlynur öðlast virðingu sem einn af hæfileikaríkustu ungu listamönnum Skandinavíu. /MHH Bænda 12. september

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.