Bændablaðið - 29.08.2019, Qupperneq 40

Bændablaðið - 29.08.2019, Qupperneq 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 201940 Tollverðir á Norður-Írlandi hafa gert upptækt svínakjöt sem reyndist vera sýkt af vírus sem veldur afrískri svínaflensu. Vírusinn getur leynst í frosinni kjötvöru svo mánuðum skiptir og getur haft gríðarlega slæm áhrif á svínarækt berist hann í lifandi svín. Vírusinn sem um ræðir er sagður gríðarlega smitandi og sýking af hans völdum stundum kölluð svína-ebóla. Þetta er í fyrsta sinn sem vírusinn greinist í kjöti á Bretlandseyjum en hann hefur verið að breiðast út um heiminn undanfarin ár. Að sögn tollayfirvalda á Norður- Írlandi voru gerð upptæk rúm 300 kíló af sýktu svínakjöti í farangri farþega sem var á leið til landsins með flugi. Við rannsókn Agri-Food and Biosciences Institute á kjötinu fundust merki um vírusinn. Stórauka þarf eftirlit Samkvæmt yfirlýsingu frá landbúnaðar- og sveitarstjórnar- ráðuneyti Norður-Írlands er málið alvarlegt þrátt fyrir að ekki sé talin hætta á að vírusinn hafi borist í lifandi svín í landinu. Formaður félags svínabænda á Norður- Írlandi segir að fundurinn sýni hversu litlu geti munað að afrísk svínaflensa berist til landsins og að grípa verði til stóraukins eftirlits vegna hættu á að pestin berist til landsins með löglegum eða ólöglegum innflutningi. Að hans sögn er um að ræða mestu ógn sem svínakjötsframleiðsla á Bretlandseyjum stendur frammi fyrir um þessar mundir. Í framhaldi af fundinum hafa yfirvöld í landinu tilkynnt að þau muni auka eftirlit með innflutningi á matvælum til landsins og á sama tíma fræðslu á hættunni sem því fylgir. Stökkbreyting gæti gert vírusinn hættulegan mönnum Þrátt fyrir að vírusinn sem veldur afrískri svínaflensu sé ekki beint hættulegur mönnum hefur verið bent á að hann geti hæglega stökkbreyst og orðið það þar sem líffræðilega sé ekki mikill munur á mönnum og svínum. Heimssamtök um dýraheilbrigði áætla að um 6.000 tilfelli af afrískri svínaflensu séu í heiminum í dag. Flensan berst hæglega milli sýktra dýra með snertingu, með mönnum, áhöldum, fóðri og með flugum. Vírusinn sem veldur flensunni getur leynst í marga mánuði í frosnu kjöti sem flutt er milli landa. Niðurskurður í Kína Eins og komið hefur fram í Bændablaðinu glíma Kínverjar við mikla útbreiðslu á afrískri svínapest og gert ráð fyrir að Kínverjar þurfi að farga um 150 til 200 milljónum svína til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu sjúkdómsins. Kínverska landbúnaðarráðuneytið hefur rakið fyrstu smittilfellin til þess að svín hafi verið fóðruð á matarúrgangi frá eldhúsum og veitingastöðum. Áætlaður samdráttur Kínverja í svínakjötsframleiðslu vegna afrísku svínaflensunnar á þessu ári samsvarar ársframleiðslu á svínakjöti í Evrópu. Samkvæmt gögnum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, hefur sjúkdómurinn nú breiðst út um allt Kína og einnig til Hainan-eyju og til fleiri Asíulanda eins og Víetnam, Kambódíu og Mongólíu. Í skýrslu FAO um útbreiðslu afrískrar svínaflensu í heiminum segir að hún sé veruleg ógn við fæðuöryggi í heiminum. Útbreiðsla í Evrópu Afrísk svínaflensa hefur verið að breiðast út um Evrópu undanfarin ár og greindist meðal annars í Belgíu á síðasta ári. Alls staðar þar sem pestin hefur greinst hefur verið gripið til þess ráðs að skera niður. Auk þess sem Frakkar, Þjóðverjar og lönd í Austur-Evrópu hafa lógað fjölda villisvína til að hefta útbreiðslu pestarinnar. Danir, sem framleiða mikið af svínakjöti, hafa gripið til þess ráðs að reisa girðingar á landamærum sínum við Þýskaland til að draga úr hættu á að pestin berist til landsins með villisvínum. /VH Afrísk svínaflensa greinist á Norður-Írlandi UTAN ÚR HEIMI Afríska svínaflensan hefur breiðs út víða um lönd. Á þessari mynd er svínum í Rússlandi fargað vegna svínaflensunnar. Áætlaður samdráttur Kínverja í svínakjötsframleiðslu vegna afrísku svínaflensunnar á þessu ári samsvarar ársframleiðslu á svínakjöti í Evrópu. Útbreiðsla svínaflensunnar í heiminum eins og hún var þann 5. júní síðastliðinn, samkvæmt frétt Bloomberg. Síðan hefur Írland bæst á kortið. Útbreiðsla skógarelda í Síberíu og reyks af þeirra völdum. /Mynd NOAA/NASA. Infernó í Síberíu: Gríðarlegir skógar- eldar í Rússlandi Stjórnlausir skógareldar hafa logað í Síberíu síðastliðna þrjá mánuði og þegar hafa rúmlega tólf milljónir hektarar skóglendis orðið eldunum að bráð. Eldarnir, sem eru þeir mestu í sögu Rússlands, eru fyrir löngu hættir að vera sér rússneskt vandamál og snerta alla jarðarbúa. Skógar í Rússlandi þekja um 45% landsins og eldarnir, sem eru margir, eru dreifðir yfir stórt og illa aðgengilegt svæði og því erfitt að vinna á þeim. Fyrir nokkrum árum var tekin upp sú stefna í Rússlandi að láta skógarelda á afskekktum stöðum brenna út ef ekki teldist efnahagslega hagkvæmt að berjast við þá. Umhverfisverndarsinnar bentu á að ákvörðunin gæti leitt til þess að árlegir skógareldar, sem oft væru smáir, gætu náð sér á strik og orðið ill- eða óviðráðanlegir. Spádómurinn rættist í ár vegna þurrka og staðbundinna vinda sem hafa magnað eldana. Samkvæmt því sem segir í The Moscow Times telja yfirvöld í Rússlandi sig hafa sannanir fyrir því að upptök sumra eldanna séu af manna völdum og til þess gerðir að leyna ólöglegu skógarhöggi á stórum svæðum. Víða neyðarástand Stjórnvöld í Rússlandi hafa brugðist við eldunum með því að lýsa yfir neyðarástandi á stöðum þar sem mestar líkur eru á að eldarnir valdi alvarlegum skaða. Hermenn og sérhannaðar flugvélar hafa verið send á nokkur svæði til að ráða niðurlögum eldsins. Heilsuspillandi reyk vegna eldanna leggur víða yfir fjölmennar byggðir og talið að reykurinn muni víða koma til með að hafa slæm áhrif á heilsu manna og dýra. Villtu dýralífi á eldasvæðunum er einnig ógnað, auk þess sem eldarnir losa gríðarlegt magn af koltvísýringi út í andrúmsloftið. Samkvæmt loftmyndum var reykur frá eldunum þegar farinn að berast yfir Kanada og Bandaríki Norður-Ameríku um síðustu mánaðamót. Gróður brennur víða um heim Auk þess sem miklir skógareldar geisa í Amason hafa íbúar Kanaríeyja, Grikklands og Alaska einnig verið að berjast við alvarlega skógarelda undanfarið. Skæðir gróðureldar komu einnig upp við Sisimiut á Grænlandi í síðasta mánuði. Samkvæmt mælingum Alþjóðlegu veðurathugunar- stofnunar innar var hitastig í júlí síðastliðinn að meðaltali það hæsta sem mælst hefur í 140 ár eða frá því að veðurmælingar hófust . /VH Eldar í Síberíu. Mynd / Moscow Times. Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 Hafa áhrif
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.