Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Síða 2

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Síða 2
fréttabréf ÖRYRKJABANDALAGS ÍSLANDS 3.TÖLUBLAÐ 6. ÁRGANGUR 1993 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Helgi Seljan Prentun: Steindórsprent/ Gutenberg h.f. Ljósmynd á forsíðu: Björn G. Eiríksson FRÁ HÖFNINNI Frá ritstjóra Að baki er sumarið, sólríkt víða, en heldur hryssingslegt annars staðar. Veðurfarssveiflur okkar kæra lands eru hluti af umhverfi okkar og þó óblítt blási á stundum þarf engan að undra, hvað þá að æðrast skuli. Sveiflumar í íslenzku samfélagi eru oft ærið lfkar og í veðurfarinu, góðæri í öllum greinum skiptist á við þrengingatíð þar sem alltof margt reynist öndvert ganga. Auðvelt er svo að yfirfæra þetta á einstaklinginn sjálfan sem sveiflast getur frá hamingjuhæðum yfir í algera örvænting. Sígandi lukka er bezt, segir orðtakið og sannleikur er í því fólginn. I félagslegu tilliti er nú að ganga í garð tími anna og athafna eftir leyfi sumarsins þar sem starfsemin liggur gjarna í dálitlum dvala. Hér á bæ er eins og jafnan áður í mörg hom að líta. Framundan er aðalfundur bandalagsins þar sem umsvif öll eru tíunduð og litið fram á leið. Hinn mikli fjöldi úrlausnarefna sem hingað berst daglega sannar hvoru tveggj a: mikla þörf margra fyrir aðstoð af ýmsu tagi og eins hver nauðsyn er hér á þjónustu í svo mörgu. Þegar enn nýju tölublaði Fréttabréfsins er fylgt úr hlaði skal enn minnt á það, hversu brýnt er að sem flestir komi að efni þess, að hinn almenni félagi láti til sín heyra. I þessu blaði ereinmitt reynt að fá fram raddir fleiri og á því verður að vera eitthvert áframhald. f senn þarf Fréttabréfið að vera baráttutæki, boðberi hugmynda og miðill tíðinda af vettvangi starfsins. Fréttabréfið hefur þessi ár sannað að margir ritfærir aðilar hafa lagt því liðsinni mætagott sem vissulega verður seint fullþakkað. Sú hvatning skal samt enn einu sinni ítrekuð að enginn liggi á ritliði sínu sem um það er fær að láta þar til sín taka. Hverpistillafþvítagierdýrmæturogsýnirbeturbreiddbandalagsins og víðfeðmi málaflokksins en öll mælgi ritstjórans samanlögð. Með ósk um ágætan vetur, svo í andlegu sem í veðurfarslegu tilliti. Helgi Seljan. EFNISYFIRLIT Frá ritstjóra ..2 Rifjað upp í rælni 20 Velferð í voða ..3 Kveðja frá Geðhjálp 21 Fræðslufundir og útgáfustarf ..4 Að synda eða sökkva 22 M.G.-félag Islands stofnað ..5 Velferð allra 24 Heimsókn fulltrúa Evrópuráðsins ..6 Framkvæmdasjóður fatlaðra 25 í aðdraganda aðalfundar ..7 Frá LAUF 25 Þrjár ljóðaþýðingar ..7 Hæfingarstöð í Keflavík 26 Af vettvangi SPOEX ..8 Spurt og spáð 27 Huldusjúkdómurinn ..9 Af stjórnarvettvangi 28 Hlerað í hornum 10, 13, 14, 17, 33 Samstarf samtakanna 29 Tölvumiðstöð fatlaðra 10 Fullkominn fatlaður öryrki 32 Úr vísnabanka Böðvars Hvers er rétturinn? 34 Guðlaugssonar 11 Lög ÖBÍ 35 Nýja MS-húsið 12 Minningar frá þjóðhátíð 36 Skóflustunga tekin að nýju MS-húsi 13 Lífs míns sælust sumartíð 37 Lífið - þetta líf 14 Málefni fatlaðra 39 Tíðindi í textasímamálum 15 Heimabyggðin fyrir alla 42 Hugleiðing vegna árs fjölskyldunnar 16 I brennidepli 46 Hugleiðing 18 Frá Örtækni 48

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.