Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Blaðsíða 33

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Blaðsíða 33
HAUSTORAR Greini ég enn frá æsku óm frá lambanna jarmi. Blikaffénaðifríöum feigarspor mörkuð harmi. Ilm af litverpum laufum lyngið hríminu siungið. Angurværð yfir hlíðum óvissu loftið þrungið. * * Enn er héla um hauður haustlitir þekja ból. Enn er haustharmur kveðinn hjörðinni ervoriðól. Helgi Seljan. Þeir Kristinn og Ómar Bragi leika á hér heilmikil heimspeki á ferðinni. Kaldhæðnislegt grín er gert að við- horfum og venjum, spjótum beint að hinum gamaldags hugsunarhætti sem tengdist og tengist of mikið enn lífsháttum fatlaðra. Það sem mér þykir h vað sterkast við stykkið er að það eru fatlaðir sjálfir sem gera grín að eigin þolraun og gera grín að sjálfum sér um leið. Ádeila sem deilir á sjálfa sig um leið virkarheiðarleg. Þáttur sem þessi á erindi til okkar allra, þó kannski sérstaklega þeirra „ófötluðu“ sem ekki hafa leitt hugann að daglegu lífi fatlaðra. Ég ætla ekki að tína til einstök atriði úr textanum, skotin hæfa flestöll í mark. Túlkun Ómars á hinum full- komna fatlaða er skot út af fyrir sig, pelabarn sem stendur og situr eins og „alvörufólkið“ vill. Þetta er auðvitað dálítið ýkt en til að geta upplifað birtu þarf maður jú að þekkja myrkur. Ég hef það á tilfinningunni að gamansam- ur leikþáttur um vandamál líðandi stundar geti haft meiri áhrif en margur lærður fyrirlestur. Mér er kunnugt um að Halaleikhópurinn hefur hug á að sinna verkefnum sem þessu í framtíð- inni samhliða öðru leikstarfi og eru ábendingar og óskir áreiðanlega vel þegnar. Við sem störfum að málefnum als oddi. fatlaðra þurfum stöðugt að berjast við vanþekkingu og hugsunarleysi. Leik- ræn tjáning þar sem fatlaðir sjálfir koma við sögu er beitt vopn í þeirri baráttu. Það gefursvo margaframsetn- ingarmöguleika og getur auk þess verið ósköp skemmtilegt. Sigurður Björnsson. HLERAÐ í HORNUM Hvað sagði ljóskan, þegar hún sá sebrahestinn? „Ó, ég hélt þetta væri gangbraut". * Virðulegur embættismaður gisti ævin- lega í húsmæðraskóla einum þegar hann var á ferð, enda forstöðukonan góð vinkona hans. Svo hættu bæði störfum, en hittust í yfirfullri rútu eitt sinn og þá gall við í forstöðukonunni: „Jæja, Jón minn. Nú ert þú alveg hættur að sofa hjá mér“. * Átján ára stúlka spurði ömmu sína: „Hvers myndirðu óska þér, amma, ef þú værirafturorðin átján ára?“ „Einsk- is annars“, var svarið. * Gömul kona í ensku þorpi var með afbrigðum umtalsgóð og fann alltaf öllum sitthvað til málsbóta. Nýi sókn- arpresturinn frétti þetta og fór á fund hennar og hugðist nú reyna á þolrifin í þeirri gömlu. Hann leiddi talið að ýmsu og ýmsum á lakari veg, en gamla konan var alltaf tilbúin með góðu hlið- amar og málsbætumar. Sem lokatil- raun þegar hann var að fara spurði hann hana, hvað hún segði um djöful- inn og hans verk. „Ja, ef allir væru eins iðnir við kolann og hann, þá færi margt betur“, svaraði sú gamla. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS r

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.