Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Blaðsíða 39

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Blaðsíða 39
Sveinn Allan Morthens framkv.stj.: MÁLEFNIFATLAÐRA Á N ORÐURL ANDIVESTRA RitstjóriFréttabréfsÖryrkjabanda- lags Islands fór þess á leit við mig að ég fjallaði um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra. Mér er bæði ljúft og skylt að verða við þessari bón. Sú leið sem blaðið hefur farið, að leita til svæðisskrifstofa um hversu háttar í málefnum fatlaðra í umdæminu er fræðandi og einnig er hægt að gera grófan samanburð á þeirri þróun sem er á hverju svæði. Því er þannig farið að þjónusta við fatlaða er misjafnlega útfærð á svæðunum þó allar svæðis- skrifstofur vinni samkvæmt sömu lögum. Forsaga Þjónusta við fatlaða á sér stutta sögu á Norðurlandi vestra. Fyrsti vísir að beinni þjónustu við fatlaða í heima- byggð kemur með lögum um málefni þroskaheftra 1979 og fyrsti starfsmað- ur svæðisstjómar var Bjarne Helle- man, sálfræðingur ráðinn 1982. Upp úr því er farið að vinna að því að koma á fót leikfangasöfnum á Blönduósi og áSiglufirði. Sambýli vartekiðínotkun 1984 á Siglufirði og þá var um leið skipulögð sumardvöl fyrir fatlaða á Egilsá. Rétt er að taka fram að skóla- heimilið á Egilsá tók til starfa haustið 1983 og starfaði til vors 1992. Heim- ilið var fyrir fötluð böm sem heima- skólar gátu ekki sinnt. Egilsá var rekin á vegum Fræðsluskrifstofu Norður- lands vestra. Þjónustumiðstöð var rekin á Sauðárkróki 1986-88. Árið 1988 var tekið í notkun sambýli á Sauðárkróki svo og leikfangasafn, einnig var skrifstofa svæðisstjómar flutt frá Varmahlíð á Sauðárkrók. Sambýlið á Gauksmýri var tekið í notkun 1990 og sama ár var gerður samningur við fyrirtækið Þormóð ramma h/f á Siglufirði um vemdað vinnuhom. Sálfræðingur var ráðinn til starfa á Svæðisskrifstofu 1991 og iðja/dagvist fyrir fatlaða á Siglufirði hóf starfsemi 1992. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki hóf Sveinn Allan Morthens. kennslu á atvinnulífsbraut fyrir þroskahefta og seinfæra nemendur um áramótin 1990-1991. Vistheimili fyrir börn á skólaaldri tók við af Egilsá 1992 um haustið. Á næsta ári er fyrir- hugað að taka í notkun sambýli fyrir fjölfatlaða á Sauðárkróki og sambýli fyrir mikið fatlaða íbúa af Sólborg verður byggt á Blönduósi. Þótt framanskrifað sé lrkast bygg- ingarannál segir það þó margt um þá þróun sem verið hefur. Frá upphafi hefur verið lögð nokkur áhersla á að þjónusta við fatlaða sé sem næst heimabyggð enda eru markmið lag- anna skýr hvað þetta snertir, neyt- andinn á ekki að þurfa að sækja þjón- ustuna lengri veg en nauðsynlegt er. Uppbygging hefur miðast við þetta og þjónustan er því dreifð um umdæm- ið. Þiónusta við fatlaða er bvggðamál. þeir eiga rétt á að nærsamfélagið sinni þörfum þeirra. Því hlýtur það að vera kappsmál að sveitarfélög taki sem allra mestan þátt í þjónustu við fatlaða en aðnkiðtryggi ámótiaðfiármagnkomi til rekstrarins. Fyrirkomulag þjónustu Þegar litið er til þess hversu hröð uppbyggingin hefur verið hljóta að vakna spurningarum hvort þjónustan sé söm að gæðum og magni. Þjónustan gæti verið betri, á því leikur enginn vafi, en lögðer áherslaáað þjónustan sé einstaklingsmiðuð og að neytandinn þurfi að sækja þjónustuna sem stystan veg. I þeim tilgangi eru þrjú leikfanga- söfn starfandi, eitt fyrir Húnavatns- sýslur á Blönduósi, eitt fyrir Skaga- fjörð á Sauðárkróki og eitt á Siglufirði. Við leggjunt mikla áherslu á að hægt sé að veita alhliða þjálfun fyrir börn og ráðgjöf til foreldra. Samvinna við heilsugæslustöðvarhefur með árunum þróast á jákvæðan hátt. Gott samstarf er við Greiningar og ráðgjafarstöð ríkisins, enda er það nauðsynlegt þar sem aldrei verður hægt að veita þá sérfræðiráðgjöf, sem Greiningarstöðin býr yfir, á dreifbýlissvæði eins og Norðurlandi vestra. Svæðisskrifstofan hefur lagt áherslu á að stoðþjónusta fyrir fatlaða sé góð á svæðinu. Sálfræðingur starfar á Svæðisskrifstofu, verksvið hans er alhliða ráðgjöf og þjónusta við fatlaða og aðstandendur þeirra auk ráðgjafar og handleiðslu til starfsmanna. Þetta er ákaflega brýnt m.a. vegna þess að ekki eru starfandi sálfræðingar eða félagsráðgjafar á vegum sveitar- félaganna eða heilsugæslu. Svæðis- skrifstofan hefurboðið uppálögfræði- þjónustu u.þ.b.einn dag í mánuði, Jóhann Pétur Sveinsson hdl. veitir þessa þjónustu. Sumardvöl fatlaðra hefur í reynd verið stoðþjónusta og komið að hluta í stað skammtímavistunar. Sumar- dvölin hefur verið rekin í tengslum við almenna sumardvöl Bændaskólans á Hólum og kirkjunnar. I sumar var lögð sérstök áhersla á reiðmennsku fatlaðra og kom til landsins danskur félagsráðgjafi sem hefur menntað sig í reiðþjálfun fatlaðra og þjálfaði börn sem voru í sumardvöl. Bændaskólinn á Hólum stóð fyrir komu hans og greiddi kostnaðinn, en mikill áhugi er hjá forsvarsmönnum Bændaskólans að geta veitt þjónustu sem nýtist fötl- uðum. Liður í því er að byggja FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.