Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Blaðsíða 12

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Blaðsíða 12
Gyða J. Ólafsdóttir og Oddný F. Lárusdóttir: Nýja MS-húsið — aðdragandi og aðgerðir Iapríl 1986 hóf MS-félag íslands rekstur sjúkradagvistar í Álandi 13 í húsnæði sem Reykjavíkurborg leigir félaginu til handa MS-sjúkl- ingum. Leyfi fékkst frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti fyrir 20 sjúklinga, til sjúkra- og iðjuþjálfunar, félags- og læknisfræðilegraraðstoðar. Frá upphafi hefur stefnan verið að dagvistin væri lfkari stóru heimili en stofnun. Því hefur verið reynt að hafa alit sem heimilislegast, heimabakað kaffibrauð o.s.frv. Ferðaþjónusta er fyrir þá sem þurfa á að halda, en sumir koma á eigin vegum. Dagvistin veitir fólki ekki aðeins líkamlega þjálfun heldur er félags- legum þörfum sinnt, meðal annars með stuttum ferðalögum, skoðaðar sýningar o.fl. Tvisvar í viku er farið í sund, en prýðileg aðstaða er til þessa í sundlaug Grensásdeildar Borgarspítalans. Það nýjasta varðandi sjúkraþjálfun er hestamennska, sem er mjög góð jafnvægisþjálfun, farið er vikulega að Reykjalundi þar sem við njótum þessarar aðstöðu. Margir hafa notið góðs af þessu framtaki félagsins. AðstandendurMS- fóiks fengu nú tækifæri til að vinna utan heimilis og sinna sínum hugð- arefnum, sjúkraþjálfunin gerði það að verkum að fólki leið betur og þurfti því sjaldnar að leggjast á sjúkrahús. Fljótlega fór að þrengjast um starfsemina því húsnæðið var ekki nema 190ferm. Eftirspurnineftirdvöl var meiri en húsrúm leyfði, því var enn sótt um leyfi til heilbrigðisráðu- neytis til dvalar fimm sjúklinga til viðbótar sem fékkst eftir 40 ferm. stækkun á húsnæðinu, sem var að hluta til fjármögnuð úr Framkvæmda- sjóði fatlaðra. Stækkunin dugði skammt, því fljótlega var komið í sama horfið. Og var nú komið að veigamikilli Gyða J. Ólafsdóttir. ákvörðun hjá félaginu, nauðsynlegt var að fá stærra húsnæði undir þessa viðamiklu starfsemi. 1990 fékkst staðfest að Fiússjóður ÖBÍ. léti MS-félaginu í té hluta lóðar sinnar við Sléttuveg. Nú eftir þriggja ára undirbúning og viðræður við stjórnvöld, og rúmum 7 árum frá því starfsemi dagvistunarinnar hófst, er draumurinn hjá félagsmönnum um stærra húsnæði í sjónmáli. Hönnun lauk í maí sl., hönnuðir voru Jón Ólafur Ólafsson og Sigurður Einarsson hjá Batteríinu, Almenna verkfræðistofan sá um verkfræði- þáttinn. Húsbyggingin var boðin út í lok maí og við opnun tilboða kom í ljós að Feðgar s.f. áttu lægsta tilboðið kr. 49.679.325, en upphaflegkostnað- aráætlun var um 60 milljónir. Þá var ekki eftir neinu að bíða og þann 11. júní sl. var tekin fyrsta skóflustungan að nýju MS-húsi við Sléttuveg 5, við hlið Oddshúss. Fjármögnun á framkvæmdunum er með ýmsu móti: Reykjavíkurborg, heilbrigðisráðuneytið og Fram- kvæmdasjóður fatlaðra styðja félagið Oddný F. Lárusdóttir. auk þess sem félagið hefur í mörg ár aflað fjár með sölu jóla-, gjafa- og minningarkorta. Mörg líknarfélög hafa og stutt MS-félagið bæði með fjárframlögum og með ýmsu öðru móti og er það félaginu ómetanlegt. I nýja húsinu verður veruleg áhersla lögð á sjúkraþjálfun, en aðstaða til hennar verður mjög góð sem gerir það að verkum að hægt verður að leggja meiri áherslu á fyrirbyggjandi meðferð en rannsóknir hafa leitt í ljós að slfkt getur seinkað gangi sjúk- dómsins, og þar með verða sjúklingar lengur virkari þjóðfélagsþegnarog það léttir ekki einungis þeim lífið, heldur minnka einnig fjárhagslegar byrðar hins opinbera, því kostnaður á hvern óvinnufæran sjúkling er óheyrilegur. Reynslan hefur leitt í ljós að kostir sjúkraþjálfunar og dagvistunar eru ótvíræðir fyrir fólk með MS. Það er því von MS-félagsins að þetta nýja hús verði til þess að MS-fólk geti átt betra líf í framtíðinni. Gyða og Oddný — form. og varaform. MS-félagsins.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.